Flug : tímarit um flugmál - 01.10.1946, Page 18
FLUGNÁM Á ÍSLANDI
Undanfarið hefur mikill fjöldi íslenzkra æskumanna og kvenna stundað flugnám við þá þrjá flugskóla, er hér á landi
starfa. Hér að ofan birtist mynd af 8 ungum mönnum, sem nýverið luku „A“-prófi í vélflugi (Private). Próf þetta veitir
þeim réttindi til að stýra flugvélum af ýmsum stærðum, með farþega og flutning, en þó ekki í atvinnuskyni. Munu sumir
þeirra hyggja á frekara nám eða svo að þeir hljóti réttindi s;m atvinnuflugmenn. A myndinni eru, talið frá vinstri, fremri
röð: Hallgrímur Jónsson, Albert Tómasson, Valberg Lárusson. I aftari röð frá vinstri: Stefán Snorrason, Kjartan Guðbrands-
son, Ólafur Bachmann, Halldór Magnússon, Jósep Heiðberg. Þeir fjórir, senr tóku próf, en vanta á myndina, eru: Karl
Eiríksson, nú við flugvirkjanám í Ameríku, Einar Pálsson, sem nemur við háskóla í Englandi, Magnús Norðdahl og
Magnús Guðbrandsson.
teiknað á þunnar balzaflökur og skorið út með rak-
vélarblaði og límt svo saman. Fljúga þær ótrúlega
vel, ef þær eru rétt og vel smíðaðar.
Því miður höfum við ekki rúm til frekari útskýringa á
smíðinni í þessu blaði, en í næsta tölublaði mun væntanlega
birtast teikning af einu svifflugmodeli með smíðalýsingum.
Einnig munum við birta hér síðar kennslugreinar í undir-
stöðuatriðum flugeðlisfræðinnar og hvernig tilhögun skal vera,
þegar slík model og að framan eru nefnd, eru látin fljúga.
Þess er fastlega vænzt, að lesendur, sem áhugasamir eru fyrir
flugmodel-íþróttinni, skrifi blaðinu unr áhuganrál sín, t. d. mun
blaðið veita allar upplýsingar og fræðslu um þessi mál, sem
mögulegt reynist að veita, ef einhver óskaði þess. Skrifið
Modelsíðunni! Utanáskrift til okkar er: „FLUGMODELSÍÐ-
AN“, TÍMARITIÐ FLUG, Pósthólf 681, Reykjavík.
Hér eru 3 af snilldarverkum A. Tómassonar og M. Noiðdahls.
16 - FLUG