Flug : tímarit um flugmál - 01.03.1955, Blaðsíða 8
Flugmálastjóri og fulltruar hans.
„Fyrstu árin var unnið að því að leggja grund-
völlinn að einhverri flugstarfsemi og flugmálum
almennt. Þegar í upphafi voru samherjar mínir í
Svifflugfélagi íslands og Flugmálafélagi íslands
framsæknir og framsýnir menn og við beindum
máli okkar til íslenzkra æskumanna. Þeir hlýddu
þessu kalli og upp frá því hefur aldrei verið neinn
skortur á ungum og áhugasömum mönnum til að
starfa í þágu íslenzkra flugmála við hin ýmsu störf,
sem þar þarf að vinna. Þegar á þessum fyrstu ár-
um var mjög mikill áhugi fyrir flugi og flugsam-
göngum og er Flugfélag Akureyrar var stofnað jókst
sá áhugi og jafnframt var trú almennings á flug-
samgöngum endurvakin, er menn fengu að reyna
kosti þeirra sjálfir. Ekki má gleyma Svifflugfélagi
íslands í þessu sambandi. í því félagi hófu starf
fjölmargir þeirra manna, sem nú standa í fylking-
arbrjósti í íslenzkum flugmálum og rnargur fé-
lagsmaður þess fann köllun sína innan þeirra sam-
taka. Svifflugið var í fyrstu dægrastytting þeirra,
en síðar varð flugið undirstaðan að lífsstarfi og lífs-
afkomu þeirra.
Á þessum árum var lent á tugum sjálfgerðra flug-
valla um land allt og síldarleit, sjúkraflug og önn-
ur flugmálastarfsemi hafin. í desember 1943 var
skipuð nefnd til þess að undirbúa löggjöf um flug-
samgöngur og flugvelli og eftir tillögum nefndar-
innar voru sett lög árið 1944, en í þeim lögum var
heimilað að stofna embætti flugmálastjóra. Á
stríðsárunum hafði viðhorfið í íslenzkum flug-
málum gjörbreytzt og aðstaðan varð öll önnur. Fór
nú að hilla undir stórfelldar framfarir og blóma-
tíma í íslenzkri flugmálasögu, því á stríðsárunum
höfðu verið gerðir tveir stórir flugvellir og tveir
minni. f styrjaldarlok var einnig liægt að kaupa
hentugar farþegaflugvélar fyrir mjög lítið verð.
Flugfélag íslands fékk þá rnjög aukna möguleika
til þess að annast reglubundið áætlunarflug og
flugfélagið Loftleiðir, sem stofnað var 1944, fór
rnjög myndarlega af stað. Var nú neytt heimildar
í lögum og embætti flugmálastjóra stofnað 15.
marz 1945 og Erling Ellingsen skipaður í það.
Fyrstu verkefni flugmálastjórnarinnar voru að taka
við Reykjavíkurflugvelli af brezka flughernum og
skipuleggja rekstur hans og koma allri starfsemi
þar í fast horf. í innanlandsfluginu eygðu menn nú
nýtt mark og mið, og ekki leið á löngu þar til Loft-
leiðir h.f. hófu sókn fyrir því, að komið yrði upp
6 - FLUG