Flug : tímarit um flugmál - 01.03.1955, Blaðsíða 25

Flug : tímarit um flugmál - 01.03.1955, Blaðsíða 25
yfir hafið og rnikið er um þrýstiloftsknúnar flug- vélar. Þarf mikla aðgæzlu við flugumferðarstjórn vegna þess, hve vélarnar eru misjafnlega hraðfleyg- ar og hafa misjafnlega mikið flugþol." Hvernig er háttað flugumferðarstjórn á þessu svreði? „Um leið og flugvél leggur af stað og ætlar yfir okkar svæði, fáum við nákvæmar upplýsingar um ferðir hennar, flugáætlun, flugleið, flughraða o. s. frv. og fylgjumst við með vélinni meðan hún er á okkar svæði. Allt úthafsflug er blindflug og verður flugmaðurinn að hlíta öllum fyrirmælum flug- umferðarstjórnarinnar. Við þurfum að úthluta hverri vél flughæð og gæta þess, að ferðir hennar séu í fullkomnu öryggi. Ef eitthvað er að og við ná- um ekki sambandi við flugvél, sem er undir um- sjón okkar, verðum við að lýsa yfir hættuástandi. Kemur þá til kasta flugbjörgunarmiðstöðvarinnar á Reykjavíkurflugvelli, sem skipuleggur alla björg- unarstarfsemi og leit úr lofti og stjórnar aðgerðum þeirra aðilja, sem til greina koma. Eins og ég sagði áður, er allt úthafsflug blindflug og þó að loftið sé víðáttumikið er ekki útilokað að árekstrar geti orðið þar. Til þess að bægja frá þeirri hættu er um þrjár varúðarreglur að ræða. Flugvélar fá aldrei að fljúga í sömu flughæð, ef þær eru nálægt hver annarri. Verður þá að vera um 1000 feta hæðar- munur á þeim. Ef tvær flugvélar eiga að fljúga í samhliða stefnu, verða að vera 120 mílur á milli þeirra. Ef tvær flugvélar fljúga í sömu hæð á sömu leið verða að vera 30 mínútur á milli þeirra. I öll- um útreikningum um þessar ferðir verður að gæta mikillar nákvæmni og ganga þannig frá þeim, að vélarnar séu öruggar jafnvel þó svo illa færi, að ekkert samband væri hægt að hafa við þær.“ „Sá, sem cetlar inn til Björn Jónssonar, kemst ekki hjá því að sjá á dyrum ytri skrifstofunnar skilti með nafninu „NOTAM-skrifstofa“. Vér spyrj- urn Björn hvað þetta þýði. „NOTAM-skrifstofan er sérstök deild flugstjórn- armiðstöðvarinnar. Ein slík upplýsingaskrifstofa er í hverju landi innan ICAO og er hlutverk hennar að senda út allar upplýsingar um flug, flugþjón- ustu og ýmislegt annað, sem að gagni má koma vegna flugsins, og jafnframt taka á rnóti slíkum upplýsingum frá öðrum NOTAM-skrifstofum. Slík- um upplýsingum er síðan dreift út til þeirra aðilja, sem þeirra þurfa með. Safnað er sarnan upplýsing- um um flugvelli, aðflug, radíóvita, fjarskiptaþjón- ustu o. fl. og eru tilkynningar sendar út víða um heim. í símskeytum eru til dæmis sendar út upp- lýsingar um bilanir á radíóvitum, áistand flug- brauta eða aðrar rekstrartruflanir á flugvöllum, sem standa stuttan tíma. Einnig eru sendar í skeyl- um tilkynningar um breytingar eða aukningu á flugþjónustukerfinu. Skriflegar tilkynningar eru einnig sendar út og eru í þeirn upplýsingar ýmiss konar, sem ekki eru sérstaklega aðkallandi. Loks er gefin út eins konar flughandbók fyrir hvert land og er í hana safnað saman öllum hagnýtum upp- lýsingum varðandi flug í hverju landi og á flug- stjórnarsvæði hvers lands. Slík flughandbók hefur ekki verið gefin út fyrir ísland enn þá, en hún er í undirbúningi. li. Úr flugturninum i Reykjavik. FLUG - 23

x

Flug : tímarit um flugmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.