Flug : tímarit um flugmál - 01.03.1955, Blaðsíða 30
Guðni Jónsson járnsmíðameistari er yfirverk-
stjóri Flugmálastjórnarinnar og hóf hann starf á
vélaverkstæði hennar árið 1947, en varð yfirverk-
stjóri 1. apríl Í948.
Hver eru helztu verkefni í yðar starfsdeild?
„Mesta vinnan er við viðhald flugbrautanna á
Reykjavíkurflugvelli. Þær eru 3 talsins, ein Í200
metra löng, önnur 1360 metrar og sú þriðja um 1400
metrar, en breiddin er 90 metrar á hverri fyrir sig.
Þessar brautir eru steyptar úr járnbentri stein-
steypu, sem er allt upp í 20 cm. þykk, en ofan á
það kemur slitlag af asfalti ca. 2 cm. þykkt. Þetta
slitlag veðrast mjög og þarf að endurnýja allt slit-
lagið þriðja hvert ár, en þar fyrir utan kemur oft
fyrir, að stórar liolur myndast allt niður í stein-
steypu og asfaltlagið losnar stundum á stórum köfl-
um, því að engin binding verður í tjörunni og verð-
ur þá oft að endurnýja stóra bletti. í sumar sem leið
urðum við að setja alveg nýtt slitlag á einn hektara
alveg niður á steypu.“
Hvað er flatarmál flugbrautanna mikið?
Guðni Jónsson.
„Það er um 25 hektarar og afköstin hafa komizt
upp í Í4.000 fermetra af nýju slitlagi á dag. Flug-
málastjórnin lætur sjálf búa til asfaltið í slitlagið
og er hráefnið í það sett í blöndunarvélar unr leið
og nota á það á brautirnar.“
Er ekki einnig mikið unnið við flugvelli utan
Reykjavíkur?
„Jú, það er mikil vinna bæði við viðhald og ný-
byggingar flugvalla. Við þurfurn að sjá um við-
hald á flugbrautum á öllum stærstu flugvöllunum
í innanlandsfluginu. Þetta eru malarvellir og þarf
að bera mikið ofan í þá á hverju ári og þjappa
brautirnar oft á ári. Auk þessa vinnum við að því
að gera nýja flugvelli og endurbæta þá eldri á ýms-
28 - FLUG
Snjóplógurinn á Reykjavtkur-
flugvelli.