Flug : tímarit um flugmál - 01.03.1955, Blaðsíða 43

Flug : tímarit um flugmál - 01.03.1955, Blaðsíða 43
Sólfaxi rúmar 60 farþega i sretL FLUGFÉLAG ÍSLANDS EIGNAST NÝJA MILLILANDAFLUGVÉL. Samfara hinni öru þróun í flugmálum okkar ís- lendinga hefur flugflotinn íslenzki vaxið að und- anförnu. Nýjasti millilandafarkosturinn kom hing- að til lands skömmu fyrir áramót, og var það fjögurra hreyfla flugvél af Skymastergerð, sem Flug- félag íslands keypti frá Noregi. Mikill mannfjöldi tók á móti hinni nýju flug- vél, þegar hún lenti í fyrsta sinn á Reykjavíkur- flugvelli daginn fyrir Þorláksmessu. Fór vel á því, að yngsta kynslóðin var þarna í miklum meiri- hluta, því að æskufólk á án efa eftir að fagna mörg- um og stórum áföngum í flugmálum okkar. Hefur þróun þeirra jafnan hrifið hugi æskufólks á ís- landi, ef til vill er það þess vegna, að flugið hefur létt svo mörgum íslendingi erfiðar dagleiðir. Móttökuathöfn vegna komu hinnar nýju flugvél- ar fór fram í einu af flugskýlum Flugfélags íslands. Guðmundur Vilhjálmsson, formaður stjórnar F.Í., bauð alla viðstadda velkomna og bað síðan frú Jónínu Gísladóttur, konu Brands Tómassonar, yfirvélvirkja félagsins, að gefa flugvélinni nafn. Steig hún síðan upp í greniskreyttan ræðustól og sagði, að vélin skyldi Sólfaxi heita og bað heill og hamingju fylgja nafninu. Um leið klofnaði kampa- vínsflaska á stefni vélarinnar. Þá flutti Ingólfur Jónsson, flugmálaráðherra, ræðu fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, sem stutt hef- ur að flugvélakaupunum. Fórust honum m. a. orð á j^essa leið: ,,Við fögnum í dag góðum og nytsöm- um farkosti, sem þjóðin hefur eignazt og kemur í fyrsta sinn í dag til landsins. Farkosturinn er fjögra hreyfla Skymastervél ,sem hefur fengið nafnið „Sól- faxi.“ Flugvélin tekur 60 farþega. Flughraði er 330 km. á klukkustund. Kostnaðarverð vélarinnar mun verða kr. 7.100.000,00. Munu það teljast góð kaup miðað við gæði og frágang vélarinnar. Flugfélag íslands átti fyrir eina slíka vél, „Gullfaxa.“ Hefur heppni og gifta ávallt fylgt þeirri vél og félagið f?J0R6UDT no'GrsuG rsuHos Gullfaxi á verkstírói SAS ii Kastrup-flugvelli.

x

Flug : tímarit um flugmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.