Flug : tímarit um flugmál - 01.03.1955, Qupperneq 21
Ralsjártœkin á Akureyri: Ratsjáin.
„Flugmálastjórnin rak sjálf sendistöð á Rjúpna-
hæð frá 1946, en nú er fjarskiptaþjónustan í hönd
um Landssíma íslands í umboði Flugmálastjórn-
arinnar og er miðstöð fjarskiptanna í Gufunesi.
Fjarskiptakerfið innanlands hefur verið að mótast
á undanförnum árum, en allar framkvæmdir í þeim
efnurn eru mjög fjárfrekar. Á árunurn 1946—48
voru settar upp litlar fjarskiptastöðar á helztu við-
komustöðum í innanlandsflugi, en það er ekki fyrr
en 1951, sem verulegur skriður kemst á þessi mál.
Þá voru fengnir liingað sérfræðingar frá ICAO og
var fyrir þeim G. E. Goudie verkfræðingur. Með
honum störfuðu þrír útlendir sérfræðingar og
unnu þessir menn sleitulaust í tvö ár við að koma
upp fullkomnu leiðsögukerfi með radíóvitum og
talstöðvum á helztu viðkomustöðum. Þessir sér-
fræðingar keyptu fyrir okkur miklar birgðir af
nýjum og notuðum radíó-senditækjum og yfirfóru
þau og endurbættu og settu þau síðan upp á Ak-
ureyri, Egilsstöðum, Sauðárkróki og í Vestmanna-
eyjum, en fullkominn stefnuviti hafði verið settur
upp á Seltjarnarnesi 1948, en Goudie og menn hans
endurbættu þann vita og settu upp varasendi þar.
Eftir að sérfræðingar þessir fóru, hafa verið sett
upp fjarskiptatæki á ísafirði, Blönduósi og í Bol-
ungavík og á Eyrarbakka, og í vor verður lokið við
að setja upp radíóvita á Höfn í Hornafirði. Þá eru
einnig litlir radíóvitar í Skagafirði, Eyjafirði og á
Héraði. Meðan ICAO-nefndin starfaði hér var unn-
ið eins mikið að þessum málum á tæpurn tveimur
árum og venjulega hefði verið gert á 5—7 árum. Með
þessum sérfræðingum störfuðu tveir íslendingar,
þeir Guðjón Tómasson og Ingólfur Bjargmunds-
son og hafa þeir síðan séð um viðhald radíóvit-
anna, Ingólfur á norðursvæðinu og Guðjón á suð-
ursvæðinu."
Hverju hlutverki hafa pessi i fjarskiptatœki að
gegna?
„Þegar radíóvitar voru komnir upp á helztu við-
komustöðum hér á landi, var hægt að koma
á föstu flugleiðakerfi í innanlandsflugi og hefur
það aukið stórlega öryggi flugsins og einnig er
hægt að fljúga miklu oftar en áður, því að nú eru
vélarnar ekki eins háðar veðri og áður. Nú er flog-
ið milli radíóvitanna, en áður þurfti flugmaður-
inn að velja heppilegustu flugleið með tilliti til
veðurs.“
Hvað er að segja um aðrar framkvcemdir í pess-
um málum?
„Þær eru að sjálfsögðu margvíslegar, en hér næg-
ir aðeins að drepa á, að á Akureyri er aðalfjar-
Ratsjártcekin á Akureyri: Loftnetsút-
búnaður.