Flug : tímarit um flugmál - 01.03.1955, Síða 34

Flug : tímarit um flugmál - 01.03.1955, Síða 34
Guðjón Tómasson er deildarstjóri fyrir radíó- verkstæði Flugmálastjórnarinnar. Hann starfaði sem símvirki hjá Landssíma íslands og vann frá 1946 nær eingöngu í þágu flugmálastjórnarinnar. Árið 1953 starfaði hann með sérfræðingum frá ICAO undir stjórn Goudie verkfræðings við að koma upp radíóvitum og radíókerfi um landt allt. í árslok 1953 fór Guðjón til Bandaríkjanna ásamt þeim Birni Jónssyni og Hauki Claessen, en þá slóð fyrir alger bylting á skipulagi flugstjórnarinnar í flugturninum á Reykjavíkurflugvelli. Kynntu þeir sér nýjungar í fjarskiptamálunum og hvaða fyrir- komulag myndi heppilegast hér. Frá ársbyrjun 1954 hefur Guðjón verið fastráðinn hjá flugmála- stjórninni og haft yfirumsjón með viðgerðum og viðhaldi fjarskiptatækjanna. Vér spyrjum Guðjón fyrst um starfstilhögun í deild hans. „Á radíóverkstæðinu í Reykjavík eru 2 starfs- menn og á Akureyri starfar e'inn maður við eftirlit og viðhald radíótækja flugmálastjórnarinnar á Norður- og Austurlandi. Ókkar starf er fyrst og fremst viðhald og allar almennar viðgerðir á radíó- vitum vegna flugsins. Nú hefur verið komið upp 12 radíóvitum, sem starfa allan sólarhringinn, þó raunar sé um tvo radíóvita að ræða á hverjum stað, sem hvor um sig er í gangi 12 tíma í einu. Stefnuvitar eru tveir, annar í Keflavík, sem ekki er á okkar vegum, en hinn á Seltjarnarnesi. Það er viti fyrir allt aðflug í blindflugi til Reykjavíkur- flugvallar. Þá má geta tveggja vita í viðbót. Eru það svonefndir Marker-sendar, annar á Seltjarnar- nesi og hinn á Eyrarbakka. Leiðbeina þeir flugvél- um urn það, hvenær vélin er yfir ákveðnum stað. Auk þessara aðalvita, eru 7 minni radíóvitar víða um land og eru þeir teknir í notkun, þegar flug- Guðjón Tómasson. menn óska þess. Loks er svo ratsjártækið nýja á Akureyri. Þeir, sem vinna við hvern radíóvita, sjá sjálfir um viðgerðir og viðhald, en þó er nauðsyn- legt að fara í eftirlitsferðir af og til, venjulega einu sinni í mánuði, en við stefnuvitann á Seltjarnar- nesi þarf að hafa reglulegt eftirlit tvisvar í viku.“ í hverju er önnur vinna ykkar fólgin? „Mesta viðgerða- og viðhaldsvinnan er í flug- stjórnarmiðstöðinni á Reykjavikurflugvelli. Þar er mjög mikið af alls konar móttöku- og senditækjum. Sum þeirra eru orðin nokkuð gömul og þurfa mikils viðhalds með, en nú stendur til að endur- nýja þau tæki og endurbæta eftir því, sem fjár- magn leyfir. í þessu starfi er nauðsynlegt að hafa radíóverkstæði, sem er búið margvíslegum mæli- tækjum og fáum við sennilega meira af þeim áður en langt um líður. Einnig þurfum við að hafa til- tækar miklar birgðir af ýmis konar varahlutum, þótt við fáum allmikið af þeim frá Landssímanum. Auk þessara starfa þurfum við einnig að sjá um viðgerð og viðhald tækja í tveimur flugvélum flug- málastjórnarinnar." Hvað er að segja um nýjar framkvæmdir i þess- um fjarskiptamálum? „Radíóverkstæðið þarf að sjá urn uppsetningu á nýjum fjarskiptatækjum og frá því að sérfræðing- ar ICAO fóru héðan, höfum við unnið við upp- setningu nýrra tækja. Nú síðast er það radíóviti í Höfn í Hornafirði, sem búið er að setja upp og tekinn verður í notkun í vor, og í sumar er ráðgert að setja upp radíóvita í grennd við Reykholt í Borgarfirði." 32 - FLUG

x

Flug : tímarit um flugmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Flug : tímarit um flugmál
https://timarit.is/publication/1869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.