Flug : tímarit um flugmál - 01.03.1955, Qupperneq 44
hagnazt á útgerðinni. Það er einlæg ósk okkar, að
gifta og heppni megi ávallt fylgja „Sólfaxa" á
öllum leiðum yfir lönd og höf.“
Meðal farþega til Reykjavíkur í þessari fyrstu
ferð Sólfaxa var jólasveinninn Kertasníkir, sem
Flugfélag íslands hafði boðið í snögga ferð til
Kaupmannahafnar. Var honum ákaft fagnað af
yngstu kynslóðinni, þegar hann gekk niður land-
ganginn. Fór jólasveinninn síðan upp í ræðustól
og hafði með sér harmoníkuleikara og söng fyrir
börnin. Að lokum úthlutaði hann verðlaunum eft-
ir happdrættisnúmerum, er börnin fengu við inn-
ganginn, en öllum börnunum, um 2000 talsins, var
afhentur jólapoki áður en þau héldu heim.
Sólfaxi var keyptur frá Noregi eins og áður er
getið, og var hann áður í eigu Fred Olsen flug-
félagsins. Áður en flugvélin kom hingað til lands
höfðu farið fram breytingar á farþegarými hennar
á verkstæði SAS í Kaupmannahöfn. M. a. voru sett-
ir nýir stólar í hana, farþegarými smekklega klætt
og hátalarakerfi komið fyrir í því. Sólfaxi er að
öllu leyti vel búinn og traustur farkostur, sem hin-
um íslenzka flugflota er mikill fengur í.
FLUGFÉLAG ÍSLANDS BÆTIR VIÐ NÝJUM
VIÐKOMUSTÖÐUM ERLENDIS.
Sumaráætlun Flugfélags íslands gengur í gildi
1. maí n. k. Með auknum flugvélakosti er félaginu
nú auðið að auka allverulega millilandaflugferð-
ir í sumar. Teknar verða upp ferðir til Hamborg-
ar og Stokkhólms, en Flugfélag íslands hefur ekki
áður haldið uppi reglubundnum flugferðum til
þessara staða. Verða farnar tvær ferðir í viku hverri
til Hamborgar en ein ferð til Stokkhólms með við-
komu í Ósló. Ráðgert er að fljúga þrisvar í viku
til Kaupmannahafnar, en undanfarin sumur hafa
verið farnar þangað tvær ferðir í viku.
Til Bretlandseyja hefur aðeins verið um eina
ferð að ræða í viku, en í sumar er í ráði að hafa
ferðirnar tvær. Önnur verður til Glasgow og Lund-
úna en hin til Glasgow og síðan áfram til Kaup-
mannahafnar. Allt frá því að Flugfélag íslands hóf
flugferðir til Skotlands fyrir næstum 10 árum, hafa
flugvélar félagsins haft viðkomu á Prestvíkurflug-
velli. Hefur Flugfélagið nú í hvggju að beina ferð-
um sínum til Renfrewflugvallar við Glasgow í stað
Prestvíkur, a. m. k. ylir sumarmánuðina. Miklar
umbætur hafa nýlega verið gerðar á þessum flug-
velli, sem er að ýmsu leyti betur staðsettur en Prest-
vík. Hafa t. d. flugvélar, sem annast innanlands-
flug í Bretlandi, viðkomu á Renfrew, og auðveld-
ar það mjög allar samgöngur milli Skotlands og
Lundúna.
Flugfélag Islands mun hafa íslendinga í þjón-
ustu sinni á öllum þeim stöðum erlendis, sem flog-
ið verður til á sumri komanda.
ÍSLENZKIR VERKFRÆÐINGAR HEIMSÆKJA
KASTRU PFLU GV ÖLL.
Gullfaxi, millilandaflugvél Flugfélags íslands,
hefur verið á Kastrupflugvelli við Kaupmanna-
höfn frá því skömmu eftir áramót. Þar hefur verið
framkvæmd á flugvélinni svonefnd 8000 tíma skoð-
un, en alþjóðareglur mæla svo fyrir, að allsherjar-
skoðun skuli fara fram á flugvélum, þegar þeim
hefur verið flogið í 8000 klukkustundir.
Nýlega bauð Flugl'élag íslands íslenzkum verk-
fræðinemum, sem stunda framhaldsnám í Kaup-
mannahöín, í kynnisferð til Kastrupflu^vallar. —
Undir leiðsögn tveggja starfsmanna F. í., þeirra
Birgis Þórhallssonar, sem veitir forstöðu skrifstofu
félagsins í Höfn, og Ásgeirs Magnússonar vélvirkja,
voru þeim sýndar ýmsar framkvæmdir á Gullfaxa,
sem fram fara á verkstæðum SAS. Auk þess var ís-
lenzku verkfræðinemunum
boðið að skoða vélaverkstæði
SAS í Kastrup, en þau eru
talin einhver fullkomnustu í
heimi.
Að lokinni kynnisferðinni
þáðu verkfræðinemarnir veit-
ingar hjá Flugfléagi íslands,
sem fram voru bornar í veit-
ingasölum flugvallarins.
/•
Sólfaxi á Kastrup-flugvelli.
42 - FLUG