Heimili og skóli - 01.04.1963, Page 5

Heimili og skóli - 01.04.1963, Page 5
Heimili og 1 skóli TÍMARIT U M UPPELDISMÁL UTGEFANDI: K E N NARAFE LAG EYJAFJARÐAR Ritið kemur út í 6 heftum ó ari, minnst 24 síður hvert hefti, og kostar órgangurinn kr. 50.00, er greiðist fyrir 1. júni. — Utgófustjórn: Hannes J. Magnússon, skólastjóri. Eiríkur Sigurðsson, skclastjóri. Póll Gunnarsson, kennari. Afgreiðslu- og innheimtumaður: Guðvin Gunnlaugsson, kennari, Vanabyggð 9, Akureyri. Ritstjóri: Honnes J. Magnússon, skólastjóri. Pósthólf 183. Akureyri. Sími 1174. PRENTSMIÐJA BJÖRNS JÓNSSONAR HF. INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR, YFIRHJÚKRUNARKONA: Hefur þoð þýöíngu oi henna börnum oð lesa bocnir d hvöldin! Erindi flutt á kirkjuviku í Akureyrarkirkju í marz 1963. Einu sinni sagði við mig lítil frænka mín: „Þegar ég er búin að lesa bænirnar mínar á kvöldin má enginn tala við mig, því að þá er ég komin í samband við góðu englana og þeir ætla að vaka yfir mér í nótt“. Hún átti fallegt veggteppi, sem amma hennar hafði saumað handa henni, það var með þremur englum, sem svifu í loftinu með laufgreinasveig á milli sín. Litla stúlkan sneri sér að teppinu, þegar hún var háttuð á kvöldin og komin í rúmið sitt, las bænirnar sínar og fól sig englunum og guði. Ef til vill hugsum við ei alltaf um hversu börn íhuga það, sem þeim er kennt eða hvernig þau skilja það. En hitt vitum við, að nafn guðs og hans engla eru nöfn, sem gefa fegurð og frið, og þótt lítið barn skilji ei þau vers, sem því eru kennd, þá veit það, að guð er góður, að englarnir eru góðir, og að þau eru sjálf góðu börnin, þegar þau hafa lesið bænirnar sínar — tal- að við guð og englana — og þau sofna með frið í harta. Einhverjar mínar fyrstu endurminningar eru frá því, þegar pabbi las bænir með okk- ur systkinunum á kvöldin. Við vorum látin lesa þær öl! í kór. Þeir bræðurnir, sem eldri voru, kunnu versin öll. en við hin kunnum lengi vel ekki nema síðustu orð hverrar hendingar. En alltaf þóttist ég viss um, að þar greindi pabbi ekki, hvort ég væri með HEIMILI OG SKÓLI 25

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.