Heimili og skóli - 01.04.1963, Page 21

Heimili og skóli - 01.04.1963, Page 21
Þau sem fengu þrcnn fyrstu verðlaunin, ósamt teiknikennara, Einori Helgasyni, og skólastjóra. — Ljósm. Kr. Hallgrímsson. síðan verðlaunin hverjum og einum. Hann færði teiknikennaranum, Einari Helgasyni, að gjöf frá skólanum bókina Island, sem þakklætisvott fyrir frábærlega gott starf undanfarin ár. Skólinn fékk einnig viður- kenningu frá Bókaútgáfu Menningarsjóðs. Var það ritsafnið Lönd og lýðir, áritað af framkvæmdastjóra, Gils Guðmundssyni. Til gnmnns UNG stúlka gerði heimskautafaranum Robert Peary gramt í geði með því að bera upp fyrir hann alls konar meira og minna fávíslegar spurn- ingar um leiðangur hans. Loks spurði hún: „Já, en hvernig fer maður að vita hvenær maður er á norðurheimskautinu?11 „Ekkert er auðveldara,“ sagði eary. „Bara að stíga eitt skref yfir á hina hliðina. Þá verður norðanvindurinn allt í einu að sunnanvindi.“ STÓRIR SEÐLAR — SKIPTIMYNT. ÉG ER orðinn leiður á að hlusta á ræðurnar um hinn eilífa sannleika — kærleika — bræðralag — mildi — kristilegt hugarfar. Þetta kemur mér fyrir sjónir eins og verðmiklir peningaseðlar, sem gam- an er að eiga í veskinu sínu. En þegar til þess- kemur að leysa einhver hversdagsleg vandamál, og maður hefur ekkert minna á sér. — Hvað þá? ÞEGAR Henry Ford hinn eldri þurfti að tala við einhvern af samstarfsmönnum sínum, kallaði hann þá mjög sjaldan inn í skrifstofu sína. I stað þess gekk hann til þeirra þar sem þeir voru við vinnu sína og lauk þar erindi sínu. „Hvers vegna gerið þér ekki boð eftir þeim?“ spurði einn af kunningjum hans. „Myndi það ekki spara tíma?“ „Nei, alls ekki,“ svaraði Ford. „Ég hef tekið eftir því að ág get yfirgefið skrifstofu samstarfs- manna minna miklu fyrr en þeir yfirgefa mína skrifstofu.“ HEIMILI OG SKOLI 41

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.