Læknaneminn


Læknaneminn - 01.06.1965, Page 12

Læknaneminn - 01.06.1965, Page 12
12 LÆKNANEMINN (a) (b) Mynd 2. Rauð blóðkorn; eðlileg (a), sigðfrumur (b). (Dr. C. L. Conley). mynda nú orðið þýðingarmikinn flokk sjúkdóma, sem á ensku er kallaður ,,hæmoglobinopathias“. Dr. V. Ingram í Cambridge vann það afrek að sýna fram á galla í sameindaskipun sigðfrumu-hæmo- globins. Með því að melta hæmoglobin með kleyfiefninu trypsin brotnaði hæmoglobinið í peptid-hópa. Næsta skref var að sundurgreina peptid- hópana, og það gerði Dr. Ingram með electrophoresis í eina átt og síðan með chromatographi í aðra átt hornrétt á hina fyrri á sömu pappírsörk. Með þessari tækni kom fram mynd, sem kölluð hefur verið ,,fingraför“ hæmoglobinsins (sjá mynd 3). Séu ,,fingraför“ eðlilegs hæmo- globins borin saman við „fingra- för“ sigðfrumu-hæmoglobins, kem- ur fram lítilsháttar munur, en þó ótrúlega þýðingarmikill (Sjá mynd 3, blett nr. 4). Hinn fram- andi blettur í „fingraförum" sigð- frumu-hæmoglobinsins gaf til kynna afbrigðilegt peptid. Loka- skrefið hjá Dr. Ingram var að sundurgreina þetta peptid. Reynd- ist það innihalda aminosýruna valine á þeim stað í aminosýruröð peptidsins, þar sem aminosýran glutamin er í eðlilegu hæmoglobini (sjá mynd 4). Þessi fullkomna, lífefnafræði- lega greinargerð um arfgengan sameindasjúkdóm gefur glögga hugmynd um starf erfðastofnanna (genanna), hvernig þeir raða aminosýrum í peptid og peptidum svo í polypeptid til að mynda virk og starfhæf eggjahvítuefni líkam- ans, og hvað skeður, ef afbrigði- legur erfðastofn (stökkbreyttur) raðar aminosýrunum ranglega. Talnafrœðilegar og „Minis'kar“ erfðarannsóknir. Þrátt fyrir fjölmargar og spennandi nýjungar í erfðavísind- um síðustu ára, eru þó í góðu gildi

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.