Læknaneminn


Læknaneminn - 01.06.1965, Side 17

Læknaneminn - 01.06.1965, Side 17
LÆKNANEMINN 17 Læknanám og læknakennsla Haukur Kristjánsson, dósent. Það þætti víst ærið fjarstæðu- kennt að læra til bílprófs án öku- tækis. En kennsla í sumum grein- um læknisfræði við Háskóla ís- lands hefir þó allt fram á síðustu ár verið hliðstæð því. Sem betur fer hefir nokkuð rofað til í þess- um efnum undanfarið, og vonandi birtir betur, áður en langt um líð- ur. Háskóli íslands var í upphafi af vanefnum ger og fyrst og fremst til þess ætlaður að bæta úr embættismannaskorti landsmanna, og ber hann þess enn nokkurn svip. Læknadeildin ein var ætluð raun- vísindum, en hefir alla tíð dregið alltof mikinn dám af hinum hug- lægt þenkjandi systurdeildum sínum. Ritstjóri Læknanemans hefir óskað álits míns á því, hvernig breyta ætti kennslutilhögun deild- arinnar, og er mér ljúft að verða við tilmælum hans, en þar eð mig skortir nána þekkingu á ýmsum þáttum kennslunnar, hlýtur svari mínu að verða þröngur stakkur skorinn. Það er skoðun mín, að þeir er hug hafa á læknisfræðinámi, ættu þegar að hefja það í síðustu bekkj- um menntaskólanna. Þar mætti kenna margt af því, sem nú er kennt í fyrsta hluta, en til þess þarf auðvitað að gerbreyta menntaskólunum frá því, sem nú er. Nám í líffærafræði hefir lengi verið eitt mesta vandræðamál allrar læknisfræðikennslunnar. Vegna fámennis og annara þjóð- félagslegra aðstæðna hefir verið ómögulegt að framkvæma lík- skurði í deildinni a. m. k. hefir svo verið í mörg ár, en án líkskurða verður þessi mikilvæga grein aldrei lærð, svo í lagi sé. Síðast- liðið ár fóru nokkrir stúdentar til Skotlands til æfinga í líkskurði, og er vonandi, að það tákni þáttaskil. Vitanlega gæti einnig komið til mála að fá lík erlendis frá og kryf ja þau hér heima. Hvergi væri meiri þörf umsjónarkennara (tutors) en við líffærafræði- kennslima, en það fyrirkomulag væri raunar æskilegt í öllum meiri háttar greinum deildarinn- ar. Annars brestur mig nána þekk- ingu á núverandi kennslutilhögun í fyrsta hluta og miðhluta, og mun því leiða þau mál að mestu hjá mér. Vegna þess vandræðaástands, sem ríkt hefir í sjúkrahúsmálum, hefir kliniska kennslan hvergi nærri verið svo góð sem skyldi. Nú hillir undir aukið spítalarými með auknum sjúklingafjölda og um leið fjölþættari sjúkdóma en áður. Þetta gefur stórbætta möguleika til betri kennslu, og reynir nú á forráðamenn læknadeildar til

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.