Læknaneminn


Læknaneminn - 01.06.1965, Síða 26

Læknaneminn - 01.06.1965, Síða 26
26 LÆKNANEMINN Ég lærði það aldrei að marki. Þeir í Greenwich segjast ætla að byggja nýtt sjúkrahús mjög fljót- lega. Þetta var farið að kvisast um síðustu aldamót. Það er eins og þar og hér á íslandi, að talað er um og ráðgert æði lengi, áður haf- ið er. Byggingin sem sagt gömul, læknarnir aftur á móti ungir flest- ir og ágætir, að ég mátti dæma. Sem fyrr segir, hafði ég hugsað mér að vera á lyflæknisdeild. I viðtökupappírum, sem ég fékk, var sagður ákveðinn vinnutími o. s. frv., en auðvitað mátti ég haga mér eins og mér sýndist, og það gerði ég; þvældist um allar deildir á öllum tímum sólarhrings, engu háður. Ég vil segja strax, að ég álít, að með dvöl sem þessari megi mikið læra í læknisfræði og að sjálfsögðu sitthvað þar út fyrir, hafi menn hug á. Mér fór svo, að minna lærði ég í faginu en mátt hefði, en þá ýmislegt annað í staðinn. Ég var fjórar vikur á sjúkrahúsinu. Hin- ar fyrstu tvær var ég duglegur, þá þriðju átti ég við constipation að stríða — sú vika fór fyrir lítið — og þá fjórðu var ég allar stundir „í bænum.“ Ég var yfirleitt á deildum fyrir hádegi, en síðdegis fór ég oft á svonefnda out-patient clinic, en það eru stofnanir nátengdar sjúkrahúsum, þar sem sérfræðing- ar hafa bækistöðvar sínar og taka á móti fólki, sem þeirra leitar. Á deildum var mesti fjöldi sjúklinga og þar með hinum ólíklegustu sjúkdómum að kynnast, og er það mikilvægt. Annað var ekki lítil- vægara, að á fjölmennum deildum má sjá sama sjúkdóminn í hinum breytilegustu myndum. Og raunar fannst mér að á out-patient klínik- inni væri hvað fróðlegast að vera. Þar varð hver sjúkdómur svo oft á vegi manns. Ég var sinn daginn með hverjum sérfræðingi og hafði bæði mikið gagn og gaman af. Af þessum sökum þykist ég mega hvetja læknanema til námsferða utan, en raunar af fleiri sökum líka, þótt ég nefni ekki hér. Við þetta sjúkrahús, sem ég dvaldist á, voru læknar frá fjölda- mörgum löndum, einkum sam- veldislöndunum, bæði við sér- fræðinám og almenn störf. Þeir voru af öllum mannlegum litum; þetta gerði andrúmsloftið sér- kennilegt og viðkunnanlegt, að mér fannst. Að kynnast fólki með ólíkar skoðanir og lífsvenjur þeim, sem við höfum alizt upp við, er ekki aðeins gaman, heldur megin- nauðsyn. Um hjúkrunarkonur og annað starfslið er hið sama að segja, það var alls staðar af jarð- kúlunni. Mér kom á óvart, hve margt fólk í Englandi er ,,litað“. Það mun vera langflest í London sjálfri. Og mér varð ljóst betur en áður, að kynþáttavandamálið er erfitt viðureignar líka í Englandi, enda þótt það sé ekki opinbert. ■— og Bretinn muni seint viðurkenna það. En hér á fslandi er okkur nauðsyn að diskútera þessi mál og kynna okkur betur. Það er aðeins tímaspursmál, hvenær við þurfum að taka hreina afstöðu til þess, og höfum reyndar fengið nasasjón af fyrir nokkrum mánuðum. Ég verð að viðurkenna, að ég hef lítið kynnt mér þessi mál; hef því ekki hreina afstöðu. Mér líkaði yfirleitt vel við þá menn af öðrum kyn- stofni, er ég hafði skipti við á ferð minni, ekkert síður en hvíta. Það segir raunar ekki mikið. En ég get sagt annað, að ég mundi síður vilja, að dóttir mín giftist svörtum manni. Ég er það íhaldssamur. Þetta er þátturinn ég vil. Lái mér

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.