Læknaneminn - 01.06.1965, Síða 36
36
LÆKNANEMINN
yr
4
eSldmÐniS
Fundur var haldinn í Félagi lækna-
nema 3. marz 1965. Gestur fundarins
var Sigurður Þ. Guðmundsson, læknir,
og flutti hann fyrirlestur um hyper-
parathyroidismus. Ræddi Sigurður fyrst
um almenna fysiologiu parathyroid-
kirtlanna, en vék síðan að ofstarfsemi
þeirra og rakti einkenni sjúkdómsins.
Áheyrendum til glöggvimar hafði Sig-
urður uppi spjöld nokkur, en á þeim
voru einkennin flokkuð niður og aðal-
atriðin dregin skýrum táknum. Öll var
ræða Sigurðar hin gleggsta og skil-
merkilegasta og flutt af þeirri orku og
eldmóði, sem honum eru gefin. Að fyr-
irlestrinum loknum voru bornar fram
nokkrar fyrirspurnir, en síðan gengið til
kaffidrykkju. Fyrsta tbl. Læknanemans
1965 var dreift á fundi þessum, og reyndi
fólk að ylja sér við kaffi og lestur
blaðsins. Setti þó hroll að liðinu því kalt
var í húsinu, enda kominn ís á firði fyr-
ir norðan um þetta leyti. Sigurður
Björnsson, hinn nýkjömi fulltrúi lækna-
nema í stúdentaráði, greindi frá fréttum
úr ráðinu að lokinni drykkju, og hitn-
aði mönnum ekki að heldur.
Sunnudaginn 14. marz 1965, kl. 15.00,
var fundur settur í Félagi læknanema,
og var hann liður í árshátíð félagsins.
Dr. med. Óskar Þórðarson, yfirlæknir,
var gestur fundarins, og flutti hann er-
indi um siðareglur lækna. Dr. Óskar
gaf fyrst sögulegt yfirlit, ræddi um
bernsku læknisfræðinnar og þær siða-
reglur, sem þá sköpuðust, hvernig þær
hafa þróazt og breytzt til þess, sem
þær eru í dag. Gerði dr. Óskar síðan
grein fyrir alþjóðasiðareglum lækna,
Genfarheitinu frá 1948, og las helztu
atriði úr hinum íslenzka Codex ethicus,
sem nú er í endurskoðun, og brýndi ekki
sízt fyrir áheyrendum þagnarskylduna,
sem oft er brotin. Var erindi dr. Ósk-
ars hið fróðlegasta og skemmtilegasta
og læknanemum hinn mesti fengur, þar
sem þessi mál eru lítt uppi höfð innan
deildarinnar og stúdentum ekki gerð
nógu góð grein fyrir því, sem ekki má.
Var gerður mjög góður rómur að máli
dr. Óskars og borinn fram fjöldi spurn-
inga, sem ræðumaður leysti greiðlega
úr. Nokkuð var farið að braka í bekkj-
um, áður fundi lauk, og kvaðst dr.
Óskar þekkja þau teikn öll, kvað mönn-
um vorkunn, þar sem gleði væri í vænd-
um.
Fundur var haldinn í Félagi lækna-
nema 24. marz 1965. Til fundarins var
boðið Ólafi Jenssyni, lækni, og talaði
hann um læknisfræðilega erfðafræði.
Ekki verður efni erindisins rakið hér,
en vísað til greinar á bls. 5 í þessu blaði.
Var erindinu mjög vel tekið af fundar-
mönnum, sem báru fram fjölda fyrir-
spurna og sýndu mikinn áhuga á kyn-
bótamálum mannkynsins. Ólafur leysti
hið greiðasta úr spurningum og svalaði
forvitni manna, en hvatti jafnframt til
varfærni í kynbótamálunum.
Aðalfundur Félags læknanema 1965
var haldinn 30. marz. Boðuð dagskrá
var samkvæmt lögum. Fráfarandi emb-
ættismenn félagsins, Jón G. Stefáns-
son, formaður, Bjarni Þjóðleifsson,
gjaldkeri, Þorvarður Brynjólfsson,
stúdentaskiptastjóri, og Magnús Jó-
hannsson, kvikmyndasýningastjóri,
gerðu grein hver fyrir sínum þætti i
starfsemi félagsins. Ekki höfðu fundar-
menn neitt að athuga við skil embætt-
ismannanna, og voru greinargerðir
þeirra samþykktar.
Að fram kominni tillögu þar að lút-
andi fékk fundarstjóri leyfi fundarins