Læknaneminn - 01.11.1969, Page 91
LÆKNANEMINN
79
Hún er nýgift. Hun hafði síðast tíðir fyrir meira
en 2 mánuðum. Síðastliðna nótt fór að blæða frá
skeið og hún fékk fljótlega verk með blæðingunum.
Tveimur stundum síðar fékk hún hita og við
komuna snemma í morgun var hitinn 41,3°C. Hún
kvartar undan mikium eymslum yfir neðanvert
kviðarholið. Við skoðun sést, að leghálsinn er ^pirtn
og þaðan er mikil útferð. Strok hefur verið gert
hátt í skeið og sent til ræktunar og í næmispróf.
Allt að 2 sólarhringar geta liðið,
áður en svar berst
varðandi ræktun og næmispróf.
Hvaða meðferð
vilduð þér veita sjúklingnum
strax í upphafi?
Sjúkdómseinkenni benda til þess, að um fósturlát sé að ræða með
ígerð í legi og byrjandi lífhimnubólgu. Hugsanlegt er, að penicillínasa-
myndandi stafýlókokkar séu þar að verki ásamt öðrum bakteríum.
Nauðsynlegt er að byrja gjöf sýklalyfja strax og hyggilegt er að gefa
lyf, sem er virkt gegn öllum venjulegum (grampósitífum) bakteríum.
OKBENIN er virkt gegn stafýlókokkum, þ.á.m. penicillínasamyndandi
stafýlókokkum, streftókokkum og pnömókokkum. Um helmingur allra
ígerða í sambandi við fósturlát stafar af þessum bakteríum. Gjöf
ORBENINS þegar í upphafi getur því, ef að líkum lætur, læknað eða
komið í veg fyrir ígerðir í sambandi við fósturlát á skömmum tíma.
ORBENIN (kloxacillínnatríum) er til komið og framleitt
hjá Beecham Recearch Laboratories, Brentford, Englandi,
sem eru brautryðjendur í framleiðslu hálfsamtengdra peni-
cillínsambanda.
Umboðsmaður er G. Ólafsson h.f., Aðalstræti 4, Reykjavik,
sem veitir allar frekari upplýsingar.