Læknaneminn - 01.03.1970, Page 27
LÆKNANEMINN
23
mal magnar einnig míkrosóm
hvatana, sem brjóta niður stera
(vide supra) og e. t. v. önnur
heimaefni líkamans, og meðan
ekki er vitað um áhrifin, sem það
getur haft á fóstrið og kornabörn,
er rétt að fara varlega í slíka
notkun.
VIII. Lokaorð
Það mikla einstaklingsfrávik í
niðurbroti lyfja, og þá einkum
fituuppleysanlegra lyfja, gerir
erfitt fyrir lækna að ná viðunandi
lyfjasvari, þegar eingöngu er mið-
að við skömmtun (doseringu) lyfs
eftir kg líkamsþunga og/eða yfir-
borðsflatarmáli. Aftur á móti hef-
ur það sýnt sig, að í einstakling-
um með mjög mismunandi niður-
brotshraða lyfja er ákveðin
plasmaþéttni, sem er mjög svipuð
í mismunandi einstaklingum,
nauðsynleg til þess að árangur
náist. Bendir þetta til, að móttak
(receptor) hinna ýmsu einstakl-
inga sé svipað að næmi, þrátt fyr-
ir að niðurbrotshraðinn sé mjög
mismunandi. Það er því líklegt, að
í framtíðinni verði nauðsynlegt að
reikna út, a. m. k. fyrir sum lyf,
skammta fyrir hvern einstakan
sjúkling, og þá miðað við helming-
unartíma lyfsins í viðkomandi
sjúklingi. Á þetta einkum við,
þegar haft er í huga, að lyf verða
stöðugt virkari og líkari að bygg-
ingu ýmsum heimaefnum líkam-
ans, og þar af leiðandi eitraðri.
Leggja verður þó áherzlu á, að
ofangreint skammtakerfi gildir
aðeins fyrir þau lyf, þar sem
plasmaþéttni er í samræmi við
lækningamátt þeirra (terapeutísk
áhrif) og á ekki við um lyf, sem
verka óriftanlega (irreversible),
eins og reserpín, alkýlerandi efni
og MAO-tálma. Með því að byggja
lyf jameðferð á plasmaþéttni ásamt
lyfjasvari, er örugglega hægt að
bæta til muna meðferð ýmissa
sjúkdóma.
NOKKUR HBIMILDARRIT
1. Conney, A. H., Pharmaeological
Review, vol. 19, no. 3.
2. Burns, J. J., Implications of Enzyme
Induction for Drug Therapy. Amer.
J. Med., 37: 327—331, 1964.
3. Conney, A. H. et al., Biochemical
Pharmacological Consideration of
Zoxazolamine and Chlorzoxazone
Metabolism. Ann, N. Y. Acad. Sci.,
86: 167—177, 1960.
4. Conney, A. H. et el., Drug Induced
Changes in Steroid Metabolism.
Ann. N. Y. Acad. Sci., 123: 98—109,
1965.
5. Hammer et al., Proceedings of the
First International Symposium on
Antidepressant Drugs. Milan, 25.—
27. apríl 1966.
6. Yaffe, S. L. et al., Enchangement of
Glucuronide-Conjugating Capacity
in Hyperbilirubinemic Infant due to
Apparent Induction by Phenobarbi-
tai. New Eng. J. Med., 257: 1461—
1466, 1966.
7. Welch et al., Cigarette Smoking:
Stimulatory Effect on Metabolism
of 3,4-Benzpyrene by Enzymes in
Human Placenta. Science, 160: 541,
1968.