Læknaneminn - 01.03.1970, Síða 44
S8
LÆKNANEMINN
tímann, sem fólk gengur með
sýkilinn í sér (2,3).
Gállvegir:
Algengustu sýklar í gallvegum
eru ýmsar coli bakteríur, en flest
lyf, sem verka á þær, skiljast lítið
út í galli. Helzt mun vera að nota
tetracyklín eða ampicillín.
Bein oq liðir:
Bráðar ígerðir í beinum og lið-
um eru venjulega af völdum klasa-
sýkla og eru penicillín og meticill-
ín því aðallyfin, eftir því hvort
talið er, að um penicillín næman
eða ónæman stofn sé að ræða. Gefa
barf háa skammta í 4—6 vikur.
Nýlegt lyf, linkomycín er talið ná
betur inn í bein en önnur lyf og
hefur revnzt vel við langvinnum
beinígerðum.
Leq:
Febris puerperalis orsakast oft-
ast af keðjusýklum og er vissast
að gefa bæði penicillín og strept-
omycín, þar eð penicillín eitt er
ekki alltaf nóg. Sýking eftir fóst-
urlát getur orsakazt af mörgum
sýklategundum, t. d. klasasýklum,
keðiusýklum, E. coli og entero-
kokkum, Penicillín og streptomyc-
ín saman mundu gagna gegn flest-
um þessum sýklum, en sennilega
er vissara að gefa einnig meticillín
eða kloxacillín, ef um penicillín-
kliúfandi sýkla skyldi vera að
ræða.
Heiláhimnur:
Meningitis infectiosa orsakast
oftast af einum af þrem eftirfar-
andi sýklum: Str. pneumoniae,
Neiss. meningitides og H. influ-
enzae. Ampicillín verkar á alla
þessa sýkla, þó bezt á H.influen-
zae, og er nú víða farið að nota
það eitt, á meðan beðið er eftir
vitneskju um, hvaða sýkill sé að
verki. Breytt er í penicillín, ef Str.
pneumoniae eða N.meningitides
finnast við sýklaskoðun eða rækt-
un.
Hjarta:
Hjartaþelsbólga er oftast af
völdum keðjusýkla, og er þá peni-
cillín gefið í stórum skömmtum í
4—6 vikur. Margir telja vissara
að gefa streptomycín með, þar eð
þá sé minni hætta á að upp vaxi
stofnar með penicillínónæmi.
Blóð:
Sýking í blóði með óþekktum
sýkli er mjög alvarlegt ástand,
sérstaklega ef lost fer með. Verð-
ur þá að velja lyf, sem verkar
bæði á Gram-jákvæða og Gram-
neikvæða sýkla, t. d. cefaloridín
eða kanamycín.
Húð:
Sýking í húð er oftast af blönd-
uðum uppruna og eru því notuð
lyf, sem verka á margskonar
sýkla. I húðáburði á helzt ekki að
nota sýklalyf, sem líka eru notuð
til inngjafar, vegna ofnæmishættu.
Helztu sýklalyf í húðsmyrsli eru
bacitracín, framycetín, neomycín
og klórhexidín. Það síðastnefnda
er einnig notað í upplausnir til að
eyða klasasýklum af húð og úr
nefi klasasýklabera.
Hér að framan hefur verið leit-
azt við að gefa lauslegar leiðbein-
ingar um, hvernig eigi að nota
sýklalyf. Hins vegar hefur aðeins
verið tæpt á því vandamáli, sem
mörgum er nú efst í huga í sam-
bandi við sýklalyf, en það er mis-
notkun þeirra. Fjölmargar greinar
hafa birzt um þetta efni á undan-
förnum áratug bæði í erlendum
læknatímaritum (3) og íslenzkum,