Læknaneminn - 01.03.1970, Síða 58
LÆKNANEMINN
48
SJÚKRA TILFELLI
HJALTI ÞÓRARINSSON, dósent
Sjúklingur er 77 ára gömul
kona, sem var vistuð á sjúkrahúsi
vegna hósta, vaxandi mæði, seyð-
ingsverkja í vinstri síðu og mikils
magnleysis. Einkennin byrjuðu
þrem mánuðum fyrir komuna á
sjúkrahúsið.
Konan hafði yfirleitt verið
heilsuhraust. Hún hafði aldrei
reykt. Uppgangur hafði verið
nokkur, fyrst slímkenndur, en síð-
ar gulgrænleitur. Af og til lítils
háttar blóðtrefjar í hráka. Verk-
urinn í vinstri síðu hafði ekki ver-
ið sár, en stöðugur og versnaði
nokkuð við djúpa öndun. Sjúkling-
ur hafði tvisvar á þessu tímabili
fengið hitaköst, sem stóðu í 7—10
daga. Mestur hiti mældist 39,4°
að kvöldi. Heimilislæknir hafði
gefið fúkalyf í bæði skiptin.
Sjúklingur hafði létzt um 12—
14 kg á þessum þrem mánuðum.
Nokkuð hafði borið á ógleði. upp-
köstum og niðurgangi síðustu 2—
3 vikurnar fyrir komuna á sjúkra-
húsið. Síðustu vikurnar hafði
sjúklingur haft vaxandi óþægindi
frá liðamótum, einkum ökklalið-
um, verki og sársauka við hreyf-
ingar.
Við komuna á sjúkrahúsið var
konan miög veik, næstum ósjálf-
biarga. Húðlitur fölur, en ekki
húðblámi. Ekki fundust útvortis
eitlastækkanir.
Framan á búknum og í handar-
krikum voru brú.nleitir blettir á
húðinni. þeir stærstu 1x1,5 cm.
Blóðþrýstingur var 105/70
mm Hg, púls 100/'mín., linur, en
reglulegur. Öndun 24/mín., frem-
ur grunn. Það var sýnilega minni
öndunarhreyfing á vinstri brjóst-
helft og deyfa þeim megin, mest
neðst. Við hlustun var öndun nær
upphafin yfir neðri tveim þriðju
hlutum vinstra lunga, en mjög
veikluð öndun yfir vinstri lunga-
toppi, nokkuð blásandi. Töluverð
þrýstingseymsli ofan við og yfir
ökklaliðum og sársauki við hreyf-
ingar í þeim. Annað ekki mark-
vert við skoðun.
Röntgenmyud af lungum sýndi
þéttan skugga yfir vinstra lunga
og hjarta, og miðmæti var svolítið
vinstra megin miðlínu. Röntgen-
mynd af ökklum sýndi töluverða
nýmyndun á beini, beggja vegna
bæði á sköflungi og sperrilegg
rétt ofan við kastlínur.
Blóðrauði mældist 10.6 g %,
hæmatocrit 34%, hv. blk. 7,800,
sökk 20, blóðsykur 97 mg %, blóð-
urea 130 mg %, (n. 17—40), alk.
fosfatasi 5,4 Bodanski ein. (n.
1.5—4), natríum í serum 122
mEq/1 (n. 130—145), kalíum
5,8 mEq/1 (n. 4.1—5.6), klóríð 90
mEq/1 (n. 97—106), bíkarbónat
27 mEq/1 (n. 24—28). Þvag
APS-.
Leit að illkynja frumum í hráka
tvívegis neikvæð.
Sjúklingi var gefin all mikill
vökvi og lækkaði blóðurea þá
fliótt niður í 80 mg%. Hiti var
37,3—38° á meðan sjúklingur
dvaldi á sjúkrahúsinu.