Læknaneminn - 01.03.1970, Side 68
58
LÆKNANEMINN
árlega, en áætlun Svía svarar til
allt að 15 nýrra sjúklinga. Ekki
veit ég, hvor talan er réttari, en
hef þó grun um að hin lægri sé
mun nær sanni. Auk hinna krón-
ísku sjúklinga ættu, samkvæmt
danskri reynslu, að bætast við u.
þ.b. 10 sjúklingar til bráðrar dia-
lysu árlega.
Jafnvel þótt aðeins sé reiknað
með sex nýjum sjúklingum til lang-
tíma dialysu árlega, er auðsætt, að
tvær nýmavélar hrökkva skammt
til önnustu slíkra sjúklinga, enda
verða þær vélar einnig að vera til
taks í bráðatilfellum. Enginn vafi
er því á nauðsyn þess, að reist
verði miðstöð langtíma dialysu í
Reykjavík. Nauðsynlegt er, að sú
miðstöð verði í nánum tengslum
við þá deild, er mesta nefrologíu
rekur.
Samkvæmt reynslu annarra
þjóða er líklegt, að heppilegt sé að
byggja slíka miðstöð upp úr u.þ.b.
sjö rúma einingum. Slík eining get-
ur, með fullri nýtingu, annað 35
sjúklingum og þar með allt að
fimm ára þörf hér á landi. Sið-
ferðileg skylda þjóðfélagsins að
sinna þessum sjúklingum er auð-
sæ og þyrfti því að vinda bráðan
bug að undirbúningi slíkrar mið-
stöðvar. Fjölmörg atriði þarf þó að
taka til athugunar við undirbúning
slíkrar miðstöðvar, eigi að byggja
hana og reka á hagkvæmasta hátt.
Gervinýmaiðnaðnrinn er orðinn
umfangsmikill og er orðin mikil
þörf allsherjar stöðlunar, ef nást
á hagkvæm nýting þess mikla úr-
vals tækja, sem á boðstólnum er.
Lokaorð.
Hin fjölmörgu mannslíf, sem
gervinýrað hefur bjargað, sanna
fyllilega tilverurétt þess. Dialysu-
meðferðar er þörf jafnt við bráða
nýrnabilun sem langvarandi. Með
reglubundinni dialysu má áram
saman viðhalda lífi og sæmilegri
heilsu sjúklinga með gjörónýt
nýru. Kostnaðarins vegna hefur
aðeins lítill hluti slíkra sjúklinga
notið þessarar meðferðar, en þess
er að vænta, að úr rætist með
lækkandi framleiðslukostnaði dia-
lysutækja. Þótt stöðugt sé unnið
að fullkomnun gervinýrans, og það
sé að þróast í margbrotið tæki, er
það þó undraverðast, hve einfalt
hið nothæfa gervinýra er í eðli
sínu og að hve miklu leyti það get-
ur komið í stað hinna flóknu líf-
færa, nýmanna.
Hjúkrunarnemar héldu árshátíð nýleg'a. Þar var meðal annars eftirfar-
andi sungið:
Og ekki verður munnur okkar kysstur
fyrr en í hjónabandinu.
Stúdentar sjást oft á róli
hér inn um sjúkrastofurnar.
Og lasta má það ei,
þótt þessi piltagrey,
þá langi í hjúkrunarmey.
Þetta tilkynnist hér með ef einhverjir hafa áhuga.