Læknaneminn - 01.03.1970, Page 69
LÆKNANEMINN
59
GUÐJÓN MAGNÚSSON, stud med:
Aukaþing I. F. M. S. A.
Um síðustu áramót sótti ég aukaþing IFMSA, sem fram fór í
Zurich í Sviss. Til þingsins var boðað til að freista þess að jafna
ágreining innan samtakanna, en frá þeim ágreiningi var skýrt í síð-
asta tbl. Læknanemans.
Þingið sóttu nú fulltrúar frá Efnahagsbandalagslöndunum að frá-
töldu Frakklandi, en það eru einmitt læknanemar í þessum löndum,
sem gagnrýnt hafa IFMSA mest. Ekki hefur verið friðsamt heima
fyrir í löndum þessum. Miklar hræringar í hópi stúdenta hafa m.a.
leitt til þess, að landssamtök læknanema hafa verið lögð niður. Ástæð-
an er sú, að leiðtogarnir á toppnum voru orðnir einangraðir frá hin-
um almenna stúdent og hættir að endurspegla skoðanir fjöldans,
Nú fer félagsstarfið víða fram í hinum svokölluðu „basic groups“,
sem e.t.v. mætti kalla grunnhópa. Þeir verða til vegna þess, að hópur
læknanema finnur hjá sér þörf til að vinna að einhverju ákveðnu
málefni. Engin stjórn er kjörin. Allir, sem áhuga hafa, geta verið
með og fundir eru með frjálslegu sniði. Á ítalíu hafa þessir grunn-
hópar endurreist landssamtökin. I stuttu máli má segja, að baráttan
snúist um:
1. Stöðu læknisfræðinnar í þjóðfélaginu.
2. Afstöðu lækna til þess þjóðfélagskerfis, sem þeir búa við.
3. Andstöðu gegn okri á lyfjum og skefjalausri eyðslu lyfja-
fyrirtækja í auglýsingar.
4. Aukna kennslu í félagslækningum (social medicin) og geð-
lækningum.
Víkjum nú að þinginu.
I.
Fyrstu dagana var rætt í 3 hópum um starf og stefnu IFMSA.
Síðan var tekin afstaða til þeirra tillagna, er fram komu. Lögðu
ítalía og Þýzkaland fram tillögu þar sem segir m.a.:
„1. Grundvöllur landssamtaka og alþjóðasamtaka læknanema verð-
ur að vera rétt skilgreining á læknisfræði og stöðu læknis í
þjóðfélaginu.
2. Læknisfræði er hægt að skilgreina sem samspil (complex) líf-
fræðilegrar þekkingar, er hefur heilsugæzlu að markmiði.
3. Allir eru á einu máli um, að hægt sé að gæta heilsu með því
að útrýma sjúkdómsvöldum, og hvort sem um er að ræða
„natural" sjúkdóma eða „artificiaT' sjúkdóma, þá er orsak-
anna alltaf að leita í umhverfinu.
4. Umhverfið, sem er sjúkdómsvaldur um allan heim, er myndað