Læknaneminn - 01.03.1970, Síða 70
60
LÆKNANEMINN
af hagkerfi, sem byggist á framleiðslu og samkeppni, þ.e.
byggist á kapitalistiskum lögmálum. Læknar líta fram hjá,
eða vilja líta fram hjá sambandinu milli hagkerfis og sjúk-
dóma. Með því stuðla læknar að viðhaldi þessa hagkerfis."
Harðar deilur urðu um þessa tillögu, sem lýsir betur en löng
skrif, hugsunarhætti, sem nú gerir vart við sig í æ ríkari mæli
meðal stúdenta.
Var það álit flestra, að of mikið væri gert úr umhverfi sem sjúk-
dómsvaldi, en hins vegar væru læknar yfirleitt of sinnulausir um hinn
mikilvæga þátt umhverfis í myndun sjúkdóma.
n.
Fyrir þingið hafði verið sendur út spurningalisti til læknanema-
félaga þar sem spurt var um álit þeirra á starfi og stefnu IFMSA.
Af svörum mátti ráða, að:
1. IFMSA er nauðsynlegt.
2. Aðalstarfssvið ætti að vera:
stúdentaskipti,
kennslumál,
heilbrigðismál.
3. IFMSA starfar ekki vegna áhuga hins einstaka læknanema,
heldur vegna áhuga forystumanna læknanema á alþjóðasam-
vinnu sem hjálp í starfi þeirra.
III.
Af öðrum samþykktum má nefna:
1. Aukaaðild verður felld niður.
2. Ársgjöld verða reiknuð út á grundvelli þjóðartekna og fjölda
læknanema.
3. Kosin var stjóm.
Var lagt hart að undirrituðum að samþykkja framboð til forseta-
kjörs, enda jafnan svo, þegar hart er deilt, að leitazt er við að finna
einhverja hlutlausa sem tengiliði. Þreyttur á nokkurra ára baráttu
við íslenzka tregðu hárra herra og áhugaleysi stúdenta, var svarið
ákveðið nei. Var Svisslendingurinn Daniel Zindel kjörinn forseti. Ekki
fór þó svo, að við Islendingar slyppum alveg. Var okkur falið það
verkefni að kanna inntökuskilyrði í læknadeildir í sem flestum löndum.
Niðurlag.
I heild má segja, að þetta þing hafi verið vel heppnað. Jafnaðist
ágreiningur nokkuð er á þingið leið, og skildu menn sem vinir. Má
telja víst, að IFMSA stendur traustar eftir. Lítill tími gafst til skemmt-
ana, en enginn komst þó undan því að fara á skíði. Vakti það greini-
lega furðu heimamanna að sjá slíkan afglapa í skíðaíþróttinni sem
mig, og það frá Islandi! Uppgötvaði ég þar ýmis sannindi, svo sem,
að ég get farið í splitt, gengur betur á einu skíði en tveimur og að
rassinn er bezta bremsan!