Læknaneminn - 01.03.1970, Page 76
LÆKNANEMINN
n
undervisning síðan 1966 eru gerðabók stjórnarinnar (Styrelseprotokoll
1966—1969), nýútkominn kynningarbæklingur um sambandið og fjöl-
ritað fréttayfirlit, Federationen informerar, sem berst nú hingað. Full-
trúi Islendinga í stjórn sambandsins fyrstu þrjú árin var Tómas Helga-
son, prófessor. Framkvæmdastjórn annaðist Arne Marthinsen, læknir,
frá Osló þar til í júlí 1968, að við tók núverandi framkvæmdastjóri
Stephan Rössner, ungur læknir í Stokkhólmi, Sambandið er rekið
fyrir beina styrki frá stjórnum Norðurlandaþjóðanna. Nam heildar-
fjárhæð á árinu 1968 um 1,2 milljónum íslenzkra króna.
1 ljós hafa komið vissir örðugleikar við að skipuleggja viðamikla
og fjölmenna fræðslufundi eins og voru í Helsingfors 1964 og í Gauta-
borg 1966. Fundir í sympósíumformi urðu því ríkjandi. Skulu hér
taldir hinir helztu.
1. í marz 1968 var rætt í Öðinsvéum um stofnun nýrra lækna-
deilda. Þetta mál var ofarlega á baugi vegna nýstofnaðrar deildar 1
Óðinsvéum, og í undirbúningi voru deildir í Kuopio, Finnlandi, Tromsö
í Noregi og Linköping í Svxþjóð. I eigu F. L. á að vera rauð bók um
ráðstefnuna:
Etablering av nye medicinske fakulteter, Rapport fra symposium
avholdt i Odense den 27—29 marts 1968.
2. I september 1968 var skipulögð ráðstefna í Stokkhólmi um
hjálpargögn í læknakennslu, sem nefndist ,,On the use of audiovisual
resources in medical education". 1 samvinnu við WHO var þangað
boðið tveim bandarískum sérfræðingum í þessari grein frá National
Medical Audiovisual Center í Atlanta. Um þetta fjallar 60 bls. fjöl-
ritað hefti í eigu F. L. Það er áreiðanlega fróðlegt, en vantar myndir,
og skilar því ekki vel sýnikennslu sérfræðinganna. Þetta er akur, sem
nauðsyn er á að erja í læknadeild H. I.
3. Næst var í nóvember 1968 í Stokkhólmi fjallað um stöðu klín-
ískrar lyf jafræði í kennslu og heilsugæzlu. Þarna tók sambandið frum-
kvæði um að skipuleggja umræður norrænna manna um nýja sérgrein,
sem átti fremur óljósan sess. Þótti ótvírætt gagn af samanburði á
reynslu fundarmanna frá mismunandi löndum. Þátttakendur voru
25—30 talsins. Samin var ályktun um klíníska lyfjafræði, sem birtist
í Lákartidningen 66, suppl IH: 14—15, 1969.
4. I marz 1969 var haldin í Ábo í Finnlandi ráðstefna, sem nefnd-
ist „Administration av de medicinska fakulteterna". Þangað komu
fulltrúar kennara, starfsmenn læknadeilda og stúdentar til að gera
grein fyrir ólíkum stjórnarháttum. Islenzkir fulltrúar voru prófessor-
arnir Ölafur Bjarnason og Tómas Helgason. Enginn stúdent var fyrir
Félag læknanema. Skýrsla um þennan fund eftir próf. Otto H. Meurman
átti að birtast í Nordisk Medicin nú í janúar 1970. Fjallað var um efnið
í 3 köflum:
I. Samræming kennsluáætlana.
n. Námslýðræði.
m. Samvinna læknadeilda í hverju landi
Jörgen Nystrup tók þarna niður ágrip umræðna fyrir norræna
læknanema. Sú samantekt er til hjá F. L. Umræður teygðust inn á
ýmsar brautir, t. d. um það vandamál, hvert markmið læknismennt-