Læknaneminn - 01.03.1970, Blaðsíða 78
66
LÆKNANEMINN
fundarins í Læknablaðinu. Fræðslufundurinn fjallaði um menntun
læknakennara í uppeldis- og kennslufræðum (universitetspedagogik
för medicinare). Sóttu hann um hundrað fulltrúar, aðeins tveir frá
íslandi. Komið er ágrip af erindum á fundinum eftir Nystrup, sem
sent var norrænu læknanemafélögunum:
Notat fra det 3. nordiske medicinske under'/isningsmöde i
Stockholm 10.—11. oktober 1969, 6 bls.
Bók með erindum óstyttum og umræðum er í prentun og berst
til F. L. væntanlega áður en langt um líður. Gefst þá tækifæri til að
fjalla frekar um fundarefnið, sem skiptir íslenzka læknadeildarkenn-
ara og læknanema ótvírætt máli. F. L. á fjölritað yfirlit um markmið,
skipulag, dagskrá og kostnað við læknakennslunámskeið í Uppsölum
síðastliðið haust:
Lokalkurs i universitetspedagogik för medicinare vid Upp-
sala universitet den 29. sept—3. okt. 1969.
Til eru einnig nokkur gögn um nýjustu kennslutæki.
Eftirtaldir fundir og symposia verða haldin á þessu ári á veg-
um NFMU:
1. I Árósum verður 4.—6. júní í sumar haldið fjórða alþjóðlega
Geigy-sympósíum um rannsóknir á læknismenntun í samvinnu við
IRME (International Society for Research in Medical Education) og
NFMU. Gert er ráð fyrir, að þetta sympósíum vinni einkum í formi
starfshópa (workshops). Nokkrir sérlega boðnir fyrirlesarar frá Norð-
urlöndum, meginlandi Evrópu, Bandaríkjunum og Afríku munu stýra
starfshópunum, sem verður skipt niður eftir efnunum: Methods of
evaluation, teaching technioues, anplication of evaluation in planning
curriculum. Gert er ráð fyrir um hundrað þátttakendum, þar af verði
um helmingur stúdentar. Full ástæða er til að F. L. eigi þarna fulltrúa.
2. 8.—9. júní verður sympósíum í Osló um menntun lækna fyrir
almennan praksís, bæði grunn-, framhalds- og eftirmenntun.
3. 10.—11. september verður í Árósum sympósíum fyrir þrjátíu
norræna þátttakendur um erfðafræði í námsefni lækna (próf. Jan
Lindsten). Þar sem taka á þessa kennslugrein upp í námsefni lækna-
deildar H. I, á næstunni, hlýtur hún að senda fulltrúa.
4. Næsta haust verður haldið í Helsingfors sympósíum um efnið
„Málsátningsfrágor inom lákarutbildningen" eðaummarkmiðlæknis-
mennt.unar (próf. H. Teir). Þetta efni er ofarlega á baugi um þessar
mundir og velta margir vöngum vfir bví. Ekki væri fráleitt að hugsa
sér íslenzkan fulltrúa á þessari ráðstefnu.
5. Ráðstefna um menntun lækna til þjónustu í þróunarlöndunum
verður í haust í Árósum á vegum sambandsins (Mauri Johansson).
Hún er haldin að t.illögu læknanema og í samvinnu við Nordisk Medi-
cinarrád. Á fundi NMR í október sl. bar á góma, að íslendingar mennt-
uðu fleiri lækna en þeir hefðu nauðsvnlega börf fyrir sjálfir. Gæti
kúfurinn hæglega farið til bróunarlandanna til nokkurra ára hjálpar-
þjónustu, t. d. í samráði við Svía. Menntun gætu læknarnir fengið á
námskeiðum ,sem haldin eru í Svíbjóð ,fvrir lækna, sem vinna að sér-
stökum verkefnum í bróunarlöndunum. Áhugamönnum um þessi efni
vil ég benda á f jölritað plagg frá Nystrup: