Læknaneminn - 01.03.1970, Side 80
68
LÆKNANEMINN
INGIMUNDUR GÍSLASON, læknanemi:
Frá kennslumálanefnd
íslenzkum læknanemum og kennurum þeirra hættir til að fara á
mis við nýjustu framfarir í læknisfræði og kennslutækni. Veldur þessu
bæði fámenni og einangrun, en einnig íhaldssemi og deyfð.
Einkum á þetta við um nýjar bækur í fræðigrein okkar. Islenzkir
læknanemar kynnast nær eingöngu þeim bókum, sem beinlínis er ætl-
azt til, að þeir kaupi. Að vísu eru nokkrar bækur frá Háskólabóka-
safni á lesstofum læknanema og á sjálfu bókasafninu. Bækurnar á
lesstofunum eru nokkuð notaðar, en svo virðist, sem læknanemar noti
bækur á Háskólabókasafni sáralítið, hver sem orsökin er. Aðeins ein
bókaverzlun í Reykjavík selur læknisfræðirit, en þar er ákaflega lítið
úrval, mest sömu bækur og kenndar eru við deildina. Bóksala stúdenta
selur nær eingöngu hinar fyrirskipuðu kennslubækur. Einstaka lækna-
nemar hafa á ferðum sínum erlendis kynnzt nýjum bókum og keypt
þær til eigin nota. Sumar þessara bóka hafa síðan orðið mjög vinsæl-
ar hérlendis og mikio keyptar.
Kennarar okkar hljóta að kynnast nýjum bókum í starfi sínu og
kennslu. Hins vegar hirða þeir lítt mn að kynna okkur læknanemum
nýjar bækur. Kannski vegna þess, að þeir hafa sjálfir mestan áhuga
á bókum um mjög sérhæfð efni, sem eiga tiltölulega litið erindi til
læknanema.
Kennslumálanefnd fór þess nýiega á leit við tvo læknanema, Ara
Jóhannesson og Harald Briem, að þeir tækju að sér bókakynningu,
sem næði bæði til læknanema og kennara. Safna þeir nú að sér öll-
um auglýsingabæklingum og pésum, sem berast frá bókaútgefendum
og sem áður lentu í ruslakörfunni. Ætla þeir að kjmna sér efni bækl-
inganna og panta sýnieintök af væntanlegum bókum í samráði og
samvinnu við kennara, Háskólabókasafn og Bóksöluna. Einnig munu
þeir skrifa fréttir af nýjum bókmn í Læknanemann eða Meinvörp.
Læknanemar og kennarar, sem þurfa á upplýsingum að halda um
nýjar bækur, geta snúið sér til ofangreindra manna.
Kennslumálanefnd vill vekja athygli á safni sínu af bókum og
bæklingum um læknakennslu. Safnið, sem að vísu er lítið, en þó í
örum vexti, er til húsa í félagsherbergi læknanema. Þar er að finna
upplýsingar um nýjustu tilraunir erlendis á sviði læknakennslu. Þar
er einnig árgangur 1968 af bandaríska tímaritinu Journal of Medical
Education. Argang 1969 vantar, en árgangur 1970 hefur verið pant-
aður. Þá hefur tímaritið British Joumal of Medical Education verið
pantað. Bæði þessi tímarit flytja fróðlegar greinar um læknanám og
læknakennslu. Einnig eru þar greinar um próf í læknaskólum, en á því
sviði hafa nýlega orðið miklar framfarir. Þama birtast líka auglýs-