Læknaneminn


Læknaneminn - 01.03.1970, Page 81

Læknaneminn - 01.03.1970, Page 81
LÆKNANEMINN 69 UM BÆKUR (Að gefnu tilefni skal það tekið fram, að bókaþátturinn er opinn fyrir alla lesendur LÆKNANEMANS. Tilgangur hans er fyrst og fremst að vekja áhuga lækna og læknanema á bókum þeim, sem um er fjallað. Vilji menn leggja okkur lið eru þeir beðnir að koma orð- um til ritnefndarmanna. Ritstjórn). Medicinsk Fysik. Eftir Paul Rönne. F.A.D.L.’s Forlag A/S, Kaupmanna- höfn 1968. 2. útgáfa, 367 bls. Af nafni bókarinnar má ráða nokkuð um efni hennar, en greinin læknisfræði- leg eðlisfræði er íslenzkum læknanem- um lítt eða ekki kunn af kennslu. Það er gat, sem vonandi tekst að fylla fljót- lega. Þekking á eðlisfræði matreiddri á þennan hátt, hliðstætt þekkingu á efna- fræði, er ekki óþægileg viðbót við um- fangsmikið námsefni í nútima læknis- fræði. Frekar verður hún til að flýta fyrir skynsamlegum skilningi á eðli- legri og sjúklegri líffærastarfsemi, á rannsóknaraðferðum og læknisaðgerð- um. Þótt þessi bók sé að hluta upprifjun á eðlisfræði- og stærðfræðiþekkingu danskra stúdenta, þá er óvíst, að hún fullnægi þörf íslenzkra læknastúdenta, m.a. vegna vanmenntunar okkar til að nota stærðfræði í eðlisfræði. Medicinsk Fysik skiptist í 20 kafla. Ekki er ætlazt til, að hún sé kennd í heild til forprófa í læknanámi, aðeins valdir hlutar hennar. Hún er einnig hugsuð sem uppflettibók á seinni náms- stigum, sbr. kafla um röntgengeislun og myndun, geislavirkni og dosimetri. Kaflar um t.d. rafmagnsfræði og raf- fræðiiegan grundvöll rannsóknartækja yrðu sennilega að mestu látnir bíða með- höndlunar hér, svo mörg grundvallarat- riði þurfa að ganga fyrir. Óþægileg reynsla er íslenzkum stærðfræðideildar- stúdent að sigla sífellt í strand strax við lestur 3. kafla, Matematiske be- greber og deres anvendelse pá biologiske fenomener, en bókin er sögð sniðin við hæfi danskra máladeildarstúdenta (!). Við lestur þessa kafla verður ljós þörf- in fyrir að hafa á valdi sínu hugtakið fallandi (gradient) og margt um eðli sveiflna til að skilja og sjá í samhengi mörg líffræðileg fyi'irbrigði. Þarna þarf augljóslega aðstoð til að tengja saman menntaskólalærdóm og lífeðlisfræði. Heppilegt upphafsnámsefni er: 2. kafli um hugtök og einingar í eðlisfræði, 5. kafli um fjaður, 6. kafli um vökva (hydrostatik og hydrodynamik), 7. kafli um loftkennd efni (um t.d. flæði, leysanleika og yfirborðsspennu), 8. kafli um varmafræði, 9. kafli um diffusion og sedimentation, þar sem t.d. jöfnu Nemst er gerð nokkur skil, svo og osmósu og tóniciteti upplausna. Gagn- legir eru einnig 15. kafli um skrásetn- ingu mælinganiðurstaða (registering) og 16. kafli um stjómkerfi (kontrol- systemer). Texti er um skilvindu (4.4.) og ýmsar gerðir smásjár og takmark- anir þeirra (17.12.-17.19.). 1 öllum þess- um köflum em fræðin eitthvað tengd hagnýtum notum í lífeðlis- og læknis- fræði. Við núverandi aðstæður hlýtur bók sem þessi að vera nokkur fengur íslenzkum læknanemum. Vert er að geta þess hér, að yfirmað- ur bókarhöfundar, dr. Jörgen Koch, for- stöðumaður Fysisk Laboratorium XI, H. C. Örsteds Institut, kom einmitt til Is- lands í ágúst síðastliðnum á vegum Verkfræðideildar H.l. Hann ræddi hér ingar um kennslutæki og kennslubækur. Læknanemum og kennurum er velkomið að fá lánaðar bækur eða tímarit um kennslumál úr þessu safni. Þeir eru beðnir að snúa sér til kennslumálanefndar, sem bregð- ast mun skjótt við.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.