Læknaneminn - 01.03.1970, Page 82
70
LÆKNANEMINN
í fyrirlestri um reynslu þeirra í Kaup-
mannahöfn af kennslu læknisfræðilegr-
ar eðlisfræði og vandkvæðum, sem við
var að striða í byrjun. íslenzkir lækna-
nemar sóttu ekki þennan mannfund, og
fyrirlesari var einskis spurður í fundar-
lok. Nefnd hefur verið skipuð til tillögu-
gerðar um eðlisfræðikennslu í Lækna-
deild H.I. S.S.
Brother Surgeons.
Eftir Garet Rogers.
Gorgi Books, Bashley Road,
London, N.W.
2. útgáfa, endurprentuð 1967.
1 þessari sagnfræðilegu skáldsögu er
fjallað um ævi og stai-f Hunter bræðr-
anna, læknanna Williams og Jöhns.
Helzti burðarás sögunnar er lýsing á
hinum undarlega persónuleika Johns
Hunter, en hann var snjail vísindamað-
ur, einkum á sviði líffærafræði. Frá-
sögnin er afar viðamikil, nákvæm ald-
arfarslýsing, sem mest tekur mið af
Lundúnaborg á 18. öld. Þá er einnig
lýst starfi og starfsskilyrðum lækna á
þessum tímum.
Sagan er hrikalega spennandi og má
ætla, að taugasterkum fyrsta hluta
mönnum kynni að þykja fróðlegt að
kynnast sögulegri viðureign Johns
Hunter við liffærafræði og meinafræði
og hinum ægilegu örlögum, sem hann
skóp sjálfum sér í leit að sannleika.
Þess má geta, að margir safngripir
liffærasafns GÍasgow háskóla eru
runnir undan rifjum þeirra Hunter
bræðra, og fylgja sumum gripunum sög-
ur, sem tíðkast að segja Islendingum,
sem stunda líkskuro þar á staðnum. Frá
flestum þessum gripum er skiljanlega
sagt í bókinni.
aegroter
The Doctor and the Devils.
Eftir Dylan Thomas.
G. M. Dent & Sons, Ltd.,
Aldini House, Bedford Street,
London. (Kvikmyndahandrit).
Dr. Knox hét líffærafræðingur í Ed-
inborg snemma á 19. öld. Hann var
afar snjall fyrirlesari og studdist mjög
við líkskurð við rannsóknir sínar. Á
þessum tíma voru það lög, að ekki
mætti kryfja aðra en þá, sem komu úr
gálganum. Þrátt fyrir skálmöld, nægði
þetta ekki hinum framsækna vísinda-
manni og dr. Knox skipti þess vegna
við líkræningja og tvo misendismenn,
sem myrtu fólk til að útvega efnivið
til líkskurðar. Morðingjarnir voru
leiddir fyrir rétt og síðan hengdir. Frá-
sögnin af athæfi þeirra var skráð í dóms-
bækur og þangað sækir Dylan Thomas
uppistöðu í þetta hrollvekjandi kvik-
myndahandrit. Nöfnum er breytt og
ýmsu vikið við, en lýsing aldarfars er
einkar skýr og frásögnin lifandi og
snjöll um líf og starf liffærafræðings-
ins, sem taldi tilganginn helga meðalið,
og ill örlög óþokkanna, sem útveguðu
honum efnivið til líffærafræðirannsókna.
Myndirnar, sem dregnar eru upp í þessu
kvikmyndahandriti, eru svo lýsandi, að
lesandanum finnst fyrr en varir, að
hann sé sjálfur þátttakandi í óhugnan-
legum viðburðum hinnar skuggalegu
Edinborgar á öndverðri 19. öld.
aegroter
Biochemical Values in Clinical
Medicine.
Eftir Robert Duncan Eastham.
Htg. John Wright & Sons Ltd., 1967.
Sumar bækur eiga sér tilverurétt að
mestu vegna þess, að þær komast í vasa.
Stærðarinnar vegna er efnið þannig
skorið niður, að þær verða óhæfar til
lestrar, fjalla ekki um neitt til hlítar
og spanna ekki yfir nema hluta af því,
sem mann fýsir að vita. Samt kaupir
maður fjöldan allan af þess konar bók-
um, þyngir sloppa með þessu í nokkra
mánuði, hendir þeim síðan upp í skáp
eða undir rúm og lítur aldrei í þær
framar, en fer að lesa „alvörubækur".
Ofannefnd bók er í þessum flokki.
Hún er skrifuð af meinafræðingi fyrir
„junior medical staff“ og fjallar um
meinaefnafræðilegar rannsóknir, niður-
stöður þeirra og breytingar á niðurstöð-
um við ýmsar aðstæður, sjúklegar og
ekki sjúklegar.
Helztu biokemiskum rannsóknum, sem
gerðar eru á sjúkrahúsum, er raðað í
stafrófsröð og gefin eru upp normal-
gildi, helztu fysiologiskar breytingar og
helztu sjúkdómar, sem geta breytt nið-
urstöðum rannsóknarinnar. Þá fylgja
einnig tilvitnanir í tímarit.
1 nóvemberlok var verðið kr. 185, eða
kr. 1,17 á hverja síðu lesmáls. Utanmál
eru 10x18x1 cm og þyngdin 125 g þann-
ig, að hún kemst léttilega í sloppvasa
hjá stúdent eða í buxnavasa hjá kandi-
dat svo lítið beri á.
JHJ