Læknaneminn - 01.03.1970, Page 85
LÆKNANEMINN
71
Hur lákemedlen verkar.
Eftir Stellan Ljungberg.
tTtgefandi Bokförlaget Prisma.
Stockholm, 1967.
Þegar vekjaraklukkan stanzar skyndi-
lega eða útvarpið þagnar, þá eru það
ýmsir, sem óðara byrja að hrista klukk-
una eða berja í útvarpið. Þannig hyggj-
ast þeir koma því, sem fer úrskeiðis, í
samt lag aftur. Slík vinnubrögð þykja
álika undarleg í augum úrmakara og
útvarpsvirkja eins og ,,tilviljanakennd“
lyfjagjöf í augum sérlærðra í lyfjameð-
ferð.
Bók þessi íjallar um almenna lyfja-
fræði, en höfundurinn er dósent i þeirri
grein. Bókin er pappírskilja, um 140 bls.
Henni er skipt niður í 14 kafla. Hún
er prýdd mörgum, skýrum myndum og
er skilmerkilega fram sett. Að mínu
viti er bókin góður inngangslestur að
lyfjafræðinámi, t.d. fyrst í miðhluta.
Sérstaklega eftirtektarverðir eru kafl-
arnir um kemíska konfíguration, kvantí-
tatíf atriði og farmakóterapí. Aðrir
ágætir kaflar eru um íkomu, eiturefna-
fræði og klínískt mat á lyfjaverkunum.
1 kaflanum um farmakóterapí er m.a.
nefnt boðorðið: Án greiningar — engin
meðferð. Meira að segja stendur þar,
að munurinn á tannlækni, sem borar í
heilbrigða tönn og fyllir hana amal-
gami og hins vegar á lækni, er ávísar
lyfi við sjúkdómi, sem hann er ekki
viss um ao sé til staðar, sé ekki svo
ýkja mikill! 1 sama kafla er anzi
skemmtilega gerð grein fyrir hinum
fimm helztu flokkum lyfjameðferðar:
kausal, symptómatísk, palliatíf, súbsti-
tutions og prófýlaktísk.
ÞDB
LÆKNANEMANTJM hafa borizt eftirfarandl rit, og kunnum við sendendum
beztu þakkir fyrir hugulsemina:
-^- Tumoral Calcinosis with Hyperphosphatemia. A report of a Pamily with
Incidence in Pour siblings.
Eftir Höskuld Baldursson, M.D., E. Burke Evans, M.D., Warren F. Dodge,
M.D., og W. Thomas Jackson, M.D.
Sérprentun úr The Jour. of Bone and Joint Surgery, Vol. 51—A, No. 5, bls.
913—925, júlí 1969.
Angioneurotic Edema and Deficiency of C’l Esterase Inhibitor in a 61- Year-
Old Woman.
Eftir Sigurð E. Þorvaldsson, M.D., Richard E. Sedlack, M.D., Gerald J. Gleich,
M.D., og Shaun J. Ruddy, M.D.
Sérprentun úr Annals of Int. Medicine, Vol. 71, No. 2, ágúst 1969.
-^- Sjúkrarúmaþörf. Athugun á sjúkrarúmaþörf £ Reykjavík árið 1970. Einnig
tillögur varðandi skipulag sjúkrahúsmála í Reykjavík 1970—1980. Eftir Jón Sig-
urðsson, borgarlækni.
TAKIÐ EFTIR!
Læknadeild hefur fengið heimild til að ráða ritara í
hluta úr starfi. Hér er á ferðinni gott tækifæri fyrir
eiginkonu eða unnustu læknanema.
Nánari upplýsingar veitir Jónas Hallgrímsson, lækn-
ir, Rannsóknastofu Háskólans við Barónsstíg.