Læknaneminn - 01.03.1970, Blaðsíða 88
n
LÆKNANEMINN
izt aftur til skila. Erindi tveggja seinni
framsögumannanna, Matthiasar E.
Halldórssonar og Einars Thoroddsen,
féllu undir „létt móralskt hjal,“ og þótti
fundarmönnum þau standa vel undir
slíku.
A5 loknum framsöguerindum ræddi
revisor svo um algengari varnarmátana
og bætti við mörgum fróðlegum upplýs-
ingum. Svaraði hann ýmsum fyrirspurn-
um.
Fundurinn var óvenju fjölmennur, og
góður fundarandi ríkti meðal hinna 110
fundarmanna.
Á fundinum var Ásgeir Theodórsson
kosinn stúdentaskiptastjóri.
Fundur var haldinn í F. L. 18. des.
1969. Fundarefnið var „Takmarkanir
inn í deildina og skýrsla Davíðs Daviðs-
sonar og Ottós Björnssonar." Á fund-
inum var mættur Ottó Björnsson, töl-
fræðingur, og skýrði hann skýrsluna I
forföllum Davíðs Davíðssonar, pró-
fessors. Taldi hann töflurnar m. a. sönn-
un þess, að nauðsyn væri á stöðluðu
stúdentsprófi, ef einkunnatakmörkum
yrði beitt. Svaraði hann svo fyrirspurn-
um að lokinni tölu.
Á þessum fundi voru einnig mættir
þeir Magnús Gunnarsson, form S.F.H.I.,
og Allan V. Magnússon, form Stúd-
entaráðs. Skýrði Allan frá bréfi, sem
háskólaráði hefði borizt frá læknadeild,
þar sem farið er fram á, að ráðið fari
fram á það við ráðherra, að stúdents-
próf verði staðlað (i ákv. greinum).
Hófust siðan almennar umræður, og
sögðu þá ýmsir hvað þeim bjó í brjósti.
Frá stjórninni kom tillaga I þrem lið-
um varðandi:
1. staðlað stúdentspróf í ákveðnum
greinum,
2. sameiginlegt grunnnám með nátt-
úrufræðiskor, sem lyki með prófi,
3. hækka lágmarkseinkunn á 1. árs
prófi.
Eftir nokkur orðaskipti féllu menn
frá liðum 1 og 3, en miklar umræður
urðu um 2. lið. Fór þá svo, að skipuð
var samræmingarnefnd og skyldi hlut-
verk hennar að gera tillögu um sam-
einingu 1. árs læknadeildar og náttúru-
fræðiskorar. Þ. D. B.
Arshátíð.
Árshátíð F. L. var haldin 27. febrúar.
Fyrri hluti hennar fór fram í XI.
kennslustofu H. I. Þar flutti Brjmleifur
Steingrlmsson, héraðslæknir, á Selfossi
ræðu, sem hann nefndi „Læknirinn og
þjóðfélagið". Fletti hann þar ofan af
Barnard og slíkum köppum. Hlaut hann
verðskuldað klapp fyrir.
Seinni hluti var háður í Þjóðleikhús-
kjallaranum og hófst með borðhaldi.
Fjölbreytt dagskrá var þar. Fyrst söng
Vilborg Árnadóttir, 1 knanemi, einsöng.
Ólafur Jensson, lækni’', hélt ræðu. Þá af-
henti Guðjón Magnússon, form. F. L.
Kristbirni Tryggvasyni, yfirlækni, gjöf
frá læknanemum í viðurkenningarskyni
fyrir vel rekinn kursus á Barnaspítala
Hringsins. Einar Thoroddsen, lækna-
nemi, flutti gamanvísur. Að lokum
skemmti „Islandstrúðurinn" Ómar
Ragnarsson. Pálmi Frímannsson, stjórn-
aði veizlunni við góðan orðstír. Dansað
var til 03,00 þ. 28. febrúar s. á.
Árshátíð þessi fór að flestu leyti vel
fram. Þó skyggði það nokkuð á, að lítill
hópur manna hafði fengið sér það rif-
legan stuðdósis, að truflun olli bæði við
einsöng og ræðu.
Lúðví-k Ólafsson.
Kúrsusar i miðhluta.
1 síðasta tölublaði Læknanemans
(sjá einnig Meinvörp, 1. tbl., 1969) var
sagt frá störfum nefnda, sem athuguðu
og gerðu tillögur um endurbætur á
kúrsusum og annarri verklegri kennslu
í II. og III. hluta. Tillögurnar hlutu
samþykki á almennum fundum félagsins
í haust og voru sendar kennslunefnd
deildarinnar og kynntar forstöðumönn-
um hinna einstöku námskeiða og kúrs-
usa. Hvorki hefur borizt afsvar né sam-
þykki kennslunefndar við þessum til-
lögum nú í janúarlok, en hér verða
stuttlega raktar breytingar, sem þó
hafa orðiö á kúrsusunum, að því er
miðhluta varðar. Eru upplýsingarnar
dregnar saman af miðhlutastúdent.
Lyflæknisdeild á Landsspítala: Kúrs-
usinn breyttist í nóvember. Þá hófst
skipuleg kennsla fyrir stúdenta 5 daga
vikunnar, 2 kennslustundir á dag.
Læknar og kandidatar á deildinni ann-
ast kennsluna, sem lýtur að klínískri
lyflæknisfræði, fræðilegri og verklegri.
Þar er stúdentum meðal annars kennt
að fara með ýmis tæki önnustudeildar
(EKG-ritara, monitor, defibrillator,
respirator). Áður var kennsla lítil og
óskipulögð, og fóru stúdentar oft á mis
við hana. Nú er einnig sérstakur um-
sjónarmaður (tútor) stúdenta á deild-
inni, sem þeir eiga einkum að leita tii
um skipulag dvalar sinnar. Stúdentar
taka sjúkraskrár, fá þær gagnrýndar