Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1979, Síða 9

Læknaneminn - 01.12.1979, Síða 9
Skyndidauði ungbarna (Vöggudauði, Sudden infant Death Syndrome) Jóhann Heiðar Jóhannsson læknir „Þá dó sonur þessarar konu um nótt, af því að hún hafði lagst ofan á hann.“ Fyrri Konungabók 3:19. Stundum kemur það fyrir að ungbörn deyja skyndi- lega í rúmi sínu án þess að vitað sé um undanfar- andi sjúkdóm eða að vegsummerki hendi á slys eða voveiflegan dauðdaga. Þegar krufning hefur farið fram, fæst í sumum tilfellum viðhlítandi skýring, svo sem lungnabólga eða heilahimnubólga, en alltaf verður eftir nokkuð stór hópur þar sem krufning leiðir ekki í ljós dánarsök. Þessi hópur myndar það sem kallast Sudden Infant Death Syndrome eða Skyr.didauði Ungbarna. I daglegu tali er jjetta oft nefnt Vöggudauði. Fyrirbærið er vel þekkt meðal vestrænna þjóða og hefur verið mikið rannsakað á síðustu tveimur áratugum. Þessi grein mun leitast við að rekja þá sögu að nokkru. Faraldursfrœði Skyndidauði ungbarna er nú talin ein algengasta dánarorsök barna á aldrinum eins mánaðar til eins árs, þ.e. eftir að kornabarnasjúkdómunum sleppir. Tíðnitölur eru til frá ýmsum löndum og eru skráðar allt frá 0.06/1000 til 3/1000 lifandi fæddra og virð- ast algengastar um 2/1000 lifandi fæddra barna. A nokkrum stöðum hafa tíðnitölur milli ára verið born- ar saman og kernur jtar í Ijós að tíðni hefur farið lækkandi með lækkuðum ungbarnadauða af öðrum ástæðum. Aldursdreifing er mjög einkennandi. Flest tilfellin finnast á aldrinum 2-4 mánaða (um 80% á aldrinum 1-5 mán.). Sveinbörn verða oftar fyrir þessu en meybörn og eru um 60% tilfellanna dreng- ir. Þess ber þó að gæta að fæðingartala og dánar- tala sveinbarna er hærri en meybarna. Lág fæðing- arþyngd og fæðing fyrir tíma virðist auka áhættuna eitthvað. Sama sést hjá fleirburum. Hærri tíðni hef- ur sést hjá dökku kynflokkunum jtar sem hægt er að beita samanburði innan sambærilegra landsvæða. Þar blandast þó félagslegar aðstæður inn í málið, en í ijós hefur komið aukin tíðni hjá fátækum og borgarbúum. Tiðni meðal óskilgetinna barna er einn- ig aukin og eins meðal barna mæðra, sem fá litla læknisþjónustu í meðgöngu. Sjúkdómar móður í meðgöngu virðast jró ekki skipta máli. Hins vegar skiptir aldur foreldranna máli því að áhættan er aukin hjá mæðrum vngri en 20 ára, en ]jó ekki hjá fyrsta barni jjeirra. Á tímabili var talið að brjósta- gjöf minnkaði áhættuna á skyndidauða, en ekki hef- ur verið hægt að sýna fram á það með endurtekn- um athugunum, né heldur virðist kúamjólk auka áhættuna. Ekki hefur tekist að sýna fram á erfða- þátt og tíðni er ekki aukin við skyldleikagiftingar. Hins vegar er tíðnin hjá síðari börnum í fjölskyld- um, þar sem skyndidauði ungbarns hefur jtegar kom- ið fyrir, lítillega aukin. Ekki þykir þó rétt að ráð- leggja ]dví fólki að draga úr frekari barneignum, jtar sem tíðniaukningin er mjög lítil. Á vetrum er skyndi- dauði ungbarna aukinn, sérstaklega þar sem vetur eru kaldir og rakir. Dauðsföllin verða á öllum dög- um vikunnar, en lang oftast milli miðnættis og klukk- an 9 á morgnana. Flest börnin deyja heima hjá sér og eru oftast talin sofandi áður. Það virðist ekki skipta máli hvort þau liggja á bakinu, maganum eða hliðinni og sjaldnast eru merki um að jjau hafi brot- ist um á dauðastundinni. Fullorðnir eru oft í sama herbergi á þeim tíma, sem barnið telst deyja og oft- ast heyrist ekkert óeðlilegt frá barninu. Heilsufar þessarra barna er almennt talið gott. Sumir hafa þó bent á að vöxtur þeirra og jjroski sé oft í lægri mörkum. Samkvæmt skilgreiningu er um að ræða óvæntan og skyndilegan dauðdaga án undanfarandi veikinda. Á síðustu árum hefur þó verið safnað upplýsingum um að ýmis konar smá- LÆKNANEMINN 7

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.