Læknaneminn - 01.12.1979, Qupperneq 39
oacetic-sýru, þá fæst cítrín-sýra; hvatar hringsins
naga af cítrín-sýrunni bæði H og C02 þar til oxal-
óacetic-sýra er aftur fengin. NAD flutti H yfir á
öndunarkeðjuna.
Ondunarkeðjan er staðsett í innhimnu orkukorns-
ms. Henni er ofí lýst sem „röð“ efna (ensíma og
kóensíma): NAD - FAD-CoQ - cyt b - cyt c - cyt a -
(02). Við öndun er H+ dælt út fyrir himnuna, en
elektrónan talin „hlaupa“ eftir „strengnum“, keðj-
unni, yfir íil 02, sem er hinn endanlegi viðtakandi
rafeinda (H+ og é komið upphaflega frá „redúser-
uðum“, hydrogeniseruðum fæðuefnum).
Aður var talað lauslega um hugmyndir Peters
Mitchells um hvernig ATP myndist frá ADP og Pi.
Hann áleit að aðaldriffjöðrin við ATP-myndun væri
H+-gradientin, hábrekkan, sem verður til við önd-
un. M. ö. o.: 1. öndun, 2. H+ halli verður til, 3. hall-
inn nýttur til ATP-myndunar. (H leitar inn yfir
himnuna aftur, „þrýstingur“ þess er virkjaður til
ATP-myndunar frá ADP og Pi ).
Fáar spurningar hafa lagst með meiri þunga á hug
líffræðivísindamanna, en sú, hvernig oxidatif phos-
phorylatio (ATP myndun við öndun) fari fram.
Enn er þeirri spurningu ekki svarað. Kenning P.M.
þykir þó hafa fært menn nær svari. Fékk hann
Nóbels-verðlaun fyrir vinnu sína á þessum sviðum.
Færsla jóna yfir himnuna fylgir öndun og „ox-
andi fosíær.ngu“ (eins og einhver þýddi oxidativa
phosphorylation). Fyrst og fremst er um Ca++ að
ræða, einnig fosfat; en játa verður, að jónsýslan er
ekki mjög náið þekkt enn. Mjög mikið hefur verið
unnið á þessu sviði hin síðari ár. Einkum er mikill
áhugi á stjórn orkukorns á kalki í frymi. Er það
ekki undarlegt: kalk getur hvatt mikinn fjölda hvata,
og latt jafnmarga.
Beta oxidation fitusýra fer fram í orkukornum,
og ekki annars staðar í frumunni.
Jóna - stjórn hefur oft verið nefnd. Talið er að í
mörgum frumum sé stjórn á kalkmagni frymis aðal-
lega í höndum orkukorna. Þó grípa þar aðrir aðil-
ar inn í, úthimna frumunnar, „míkrósómin“ (endo-
plasmic reticulum) - og í þverrákóttum vöðvafrum-
um eru sérhæfðar himnumyndanir í aðalhlutverki,
þ.e. „sarcoplasmiskar vesikúlur“. Með því að breyta
kalkmagni í frymi gætu orkukorn haft afgerardi
áhrif á fjölda hvata.
Hem - syntliesa. Myndun hem - kjarnans fer að
mestu leyti fram innan orkukorna. Hem — kjarni er
notaður í cytokróm öndunarkeðjunnar. Og í blóð-
rauða, hemóglobín; reyndar í nokkra aðra hvata
s.s. catalasa, sem eyðir H202 (mikilvægt við eyð-
ingu „frírra radíkala").
Steróíð (kynhormón) eru a.n.l. gerð í orkukorn-
um: stigin cholesterol - progesterone gerast innan
orkukorna; frekari tilvinnsla þeirra gerist utan
þeirra; hydroxylation á cholecalciferol (vítamín D)
í stöðu 1 og 25 fer a.n.l. fram í orkukornum (enn
tengsl við kalk-búskap).
Uppbygging lípíða fer fram bæði utan og innan
orkukorna. Þó eru vissir hvatar sem nauðsynlegir
eru í þessari uppbyggingu, sem einungis finnast í
orkukornum.
Urea hringur þarf á orkukornum að halda. Einn
hvata hans, ornithin carbamoyl transferasa, er að-
eins að finna í orkukornum.
Gerjun sumra sykurtegunda (þeirra sem ekki
valda „glucose repression") er háð DNA orkukorns,
sem þar með er orðið meðábyrgt fyrir stjórn gerj-
unar4. Gerjun annarra sykurtegunda (þeirra sem
valda glucose - repression; glúkosa, frúktósa, mann-
ósa) er og líklega að einhverju leyti háð DNA orku-
korns6.
„Fríir radikalar“ eru taldir framleiddir að ein-
hverju leyti í orkukornum (vide-supra). Þetta er
ekki mikið kannað enn.
Gró-myndun (sporulation) tvílitna gerfruma
verður ekki nema orkukorn séu í fullu fj öri. Er þetta
af mörgum talið benda til þess að sérhæfing yfirleitt
þurfi á orkukornum að halda. Rímar þetta vel við
upplýsingar frá spendýrafrumum.
Hitaframleiðsla frumunnar verður fyrst og fremst
í orkukornum.
Ahrij á kjarna. Samvinna er mjög flókin milli
hinna tveggja erfðakerfa frumunnar, kjarnakerfis og
kerfis orkukorna. Áður er getið, að bæði cýtókróm
a og b eru gerð hvort um sig af mörgum peptíðum,
og eru sum peptíðin mynduð innan orkukorna en
sum utan þeirra. Er ekki vitað hvernig þau berast
að utan og inn. En skemmtileg er þessi samvinna
tveggja ólikra protein-myndandi kerfa við myndun
einstakra proteina. Ljóst er líka að orkukorn hafa
áhrif á kjarnastarfsemi, sem sést m.a. á því, að
ÍÆKNANEMINN
31