Læknaneminn - 01.12.1979, Síða 18
Mynd 5. Btint jósturhjartarafrit. Myndin sýnir silfurspiralrafskautið og staðsetni.ngu jarðrafskauta og útskrift af monitor.
I öðru lagi skráir monitorinn hjartsláttinn á blað
með hitapenna, sem hlykkjótt línurit.
I þriðja lagi er oft hljóð- og ljósakerfi, sem tifar
og blikkar við hvern hjartslátt svo fylgjast má með
taktinum á sama hátt og hægt er að hlusta á hann
þegar hjartsláttarhljóðritun er notuð.
V nl á tæUni viS shráningu fósturhjart-
sláttar (FHR)
Áður minntumst við á hinar svokölluðu áverka-
lausu aðferðir til að mæla og fylgjast með fóstur-
hjartslætti. Þær má nota til þess að fylgjast með
fóstrinu í móðurkviöi á meðgöngu og í byrjun fæð-
ingar áður en belgir hafa sprungið og legháls víkk-
að svo að hægt sé að koma upp rafskauti. Það er
margt sem truflar áðurnefnda mælingartækni, eins
og hreyfingar, líkamsgerð og almennt ástand móður,
t.d. sé hún kvíðin og með vöðvaskjálfta.
a) Óbeina hjartarafritið mengast af rafboðum
frá hjarta (ECG) og vöðvum móðurinnar (electro-
myogram) sem hindrar að hægt sé að telja fóstur-
hj artsláttinn nákvæmlega.
b) Hjartahljóðritun (Phonocarcliography) truflast
frá utanaðkomandi hljóðum, bæði innan og utan
móðurinnar og í fæðingu, frá hreyfingum móður
og rembingi.
c) Hátíðnihjartahljóðritun (Ultrasound) er því
algengust til þess að skrá fósturhjartslátt, bæði í
meðgöngu og í fæðingu fram að því stigi að bein
skráning er möguleg.
Nú eru flestir monitorar gerðir svo, að nota má
bæði beina og óbeina aðferð við fósturhjartsláttar-
ritun. Síðan velur sá sem fæðingu stjórnar þá aðferð
sem best á við hverju sinni.
Þegar tengt er í eitt tæki annars vegar fósturhjart-
sláttarritun og hins vegar hríðaritun og bæði ritin
eru skráð út á sama strimil, vex gildi monitorsins,
því þá má sjá tengsl hjartsláttar við hríðir, sem er
aðalatrið ð og það sem máli skiptir. (Mynd 7.)
Þessi monitor gefur hríða- og hjartsláttarrit og
þannig er skammstöfunin CTG (Cardiotocograph)
til komin.
16
LÆKNANEMINN