Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1979, Qupperneq 11

Læknaneminn - 01.12.1979, Qupperneq 11
í lungum eru hins vegar óverulegar ef nokkrar. í efri loftvegum, fyrst og fremst larynx, finnast oft minniháttar bólgubreytingar, venjulega hnattfrumu- íferð. Ekkert af þessu er í því magni að neinar líkur séu á að það hafi beint orsakað dauðann. Tvö líf- færi, sem gjarnan sýna stressbreytingar fljótt við sjúkdóma, hóstarkirtill og nýrnahettur, eru án slíkra ummerkja. Eitlar og eitlavefur víðs vegar í líkam- anum eru innan eðlilegra marka. Oft er magi fullur af fæðu (mjólk) og magainnihald getur fundist i barka, en venjulega ekki niðri í berkjum. Hjarla- blóð er oftast fljótandi og hægri hjartahólf vægt út- víkkuð. Orsahir Meira en hundrað hugmyndir um orsakir skyndi- dauða ungbarna hafa verið settar fram í læknatíma- ritum. Flestar hafa þær þegar verið afsannaðar, en margar nýjar og gamlar hugmyndir koma fram á hverju ári. Stundum er auðvelt að sýna fram á að hugmyndirnar stangast á við það sem þegar er vit- að um skyndidauða ungbarna og stundum má benda á að hugmyndirnar geti ekki átt við um öll þessi börn. Enn hefur því engin algilcl skýring fundist. Rétt er að geta þess strax að það er hugsanlegt að engin ein skýring nægi og að orsakir geti verið margvíslegar. Köfnunarhugmyndin hefur verið lífsseig allt frá dögum Biblíunnar þegar talið var að fullorðinn í sama rúmi kæfði barnið. Tíðnin virðist þó ekki hafa breyst eftir að ungbörn hættu að sofa í rúmi hjá foreldrum og fóstrum. Leikmenn og þá sérstaklega foreldrar eru oft hræddir um að barnið hafi getað flækt sig í rúmfötunum og kafnað þess vegna. Venju- lega eru vegsummerki þannig að sá möguleiki er ekki sennilegur. Aldursdreifing samrýmist heldur ekki þeirri hugmynd, þ.e. tíðni er hæst eftir að börn- in eru farin að stjórna höfuðhreyfingum. Þá hefur því einnig verið hald'ð fram að venjuleg rúmföt geti alls ekki kæft börn. Næsta meiriháttar hugmyndin byggðist á því að hóstarkirtillinn væri óeðlilega stór og gæti valdið öndunarerfiðleikum og köfnun. Búið er að sanna að kirlillinn hjá þessum börnum er ekki stærri en hann ætti að vera. Minniháttar bólgubreytingar finnast oft í öndun- arfærum við krufninguna og var því oft áður fyrr, sérstaklega um 1940, talið að dánarorsök væri epi- glottitis, laryngitis eða lungnabólga. Þessar „bólgu- breytingar“ eru hins vegar smávægilegar og finnast oft hjá börnum sem deyja af öðrum orsökum. Margar hugmyndir hafa komið fram um ofnæmi eða anaphylaxis sem orsök að skyndidauða ung- barna. Um 1960 var því haldið fram að ofnæmi fyr- ir kúamjólk væri orsökin. Sýnt var fram á að ungar marsvína geta dáið skyndilega af mjólkurofnæmi. Þessar tilraunir hafa síðar verið gagnrýndar og benl hefur verið á að mörg börn sem enga kúamjólk hafa fengið hafa dáið skyndilega. Immunologiskar mæl- ingar, t.d. á mótefnum gegn kúamjólk í blóði barn- anna, á complementi og IgE hafa ekki sýnt fram á mun hjá börnum eftir skyndidauða og öðrum börn- um. Þá hefur ekki verið hægt að sýna fram á það við krufningar að mast-frumur hafi tæmt korn sín og gefið frá sér þau efni sem anaphylaxis valda. Loks getur þessi hugmynd illa samrýmst því, að tíðni skyndidauða fer lækkandi þegar börnin eru farin að framleiða sín eigin mótefni um 6 mánaða aldurinn. Hins vegar getur vel verið að skyndidauði sé tengdur ónæmiskerfinu á einhvern annan hátt. Tíðni hans er hæst á þeim tíma, sem mótefni frá móður- inni eru að lækka í blóði barnsins og eigin mótefna- framleiðsla barnsins er ekki komin í gang að fullu. Þetta gæti bent til þess að skyndidauðinn sé tengdur eða stafi af sýkingu á þeim tíma, sem mótstaða barnsins er minnst. Tíðnin er líka hæst á þeim tíma ársins, sem sýkingar alls konar eru algengastar. í allt að 45% tilfella hefur verið hægt að rækta ein- hverja marktæka sýkla úr einstökum líffærum barns- ins við krufningu, ýmist bakteríur eru vírusa. Deilt er þó um, hvort slíkt sé nóg til að sanna að um út- breidda sýkingu og sepsis sé að ræða. Þær smávægi- legu bólgubreytingar, sem oft finnast í efri loftveg um, styðja þessa sýkingarhugmynd. Onnur merki um almenna og útbreidda sýkingu finnast þó ekki við krufningu. Ef lil vill má þá líta svo á, að barnið hafi haft yfirþyrmandi sepsis og dáið áður en hún náði að setja merki sitt á líffærin. Margar hugmynd- ir um orsakir skyndidauða eru á líkan veg, þ.e. þær eru að einhverju leyti sennilegar. en ósannanlegar. Ymsar hugmyndir hafa komið fram um vanskapn- LÆKNANEMINN 9
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.