Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1979, Blaðsíða 13

Læknaneminn - 01.12.1979, Blaðsíða 13
þegar andlátið ber að og þá er sektartilfinningin og vandamálin öll miklu erfiðari viðureignar. Þegar fólk deyr vegna undanfarandi sjúkdóms eru ættingjar oft að vissu leyti undirbúnir undir dauð- ann og sorgin því ekki eins óbærileg og við skyndi- dauða. Við skyndidauða eru aðstandendur auk þess ráðvilltir vegna skorts á haldbærum skýringum. Mikilvægt er að veita foreldrum og öðrum ættingj- um alla þá hjálp sem völ er á. Slík aðstoð hefst um íeið og dauðinn hefur verið staðfestur. Þá þarf lækn- irinn að segja þeim frá því að barnið sé látið og um leið að gefa þeim einhverja hugmynd um það, hvað gerðist. Nauðsynlegt er að hafa slíkar skýr- ingar stuttar og skilmerkilegar. Varst ber að grípa til skýringa eða gefa í skyn eitthvað, sem fólkið á auðvelt með að skilja, en fær svo ekki staðist. Stund- um hafa menn freistast til að segja að barnið hafi dáið vegna hjartasjúkdóms eða annars meðfædds galla í þeirri von að fólkið eigi auðveldara með að meðtaka skýringuna. Þetta getur gefið stundarfrið, en veldur óhjákvæmilega vandræðum síðar, þegar farið er að útskýra það sem finnst við krufninguna. Miklu betra er að segjast ekki vita hver dánarorsök- in er og halda fast við það, þar til niðurstöður krufningarinnar liggja fyrir. Þegar frumgreining úr krufningu liggur fyrir er rétt að útskýra nánar fyrir foreldrunum, að um skyndidauða ungbarna hafi verið að ræða, að þetta sé vel þekkt fyrirbæri, en orsakir óþekktar. Síðan, þegar krufningarskýrsla er fullgerð, er rétt að gefa foreldrum kost á enn einu viðtali til frekari umræðu og útskýringa. Það bætast ekki við neinar hald- betri skýringar á þeim tíma, en þá er oft nógu lang- ur tími liðinn til að hægt sé að ræða málin af ró- semi. Þá er hægt að svara og leita eftir ýmsum spurningum, sem óhjákvæmilega vakna. Mjög mikil- vægt er að veita foreldrunum næg tækifæri til að spyrja spurninga og eins, jafnvel að fyrra bragði. að drepa á ýmis atriði, sem oft eru misskilin. Þá þarf að koma því að, að um vanrækslu hafi ekki verið að ræða, og að sennilega hefði ekki verið hægt að koma í veg fyrir dauðsfallið eða lífga barnið með neinum aðgerðum. Sem betur fer vita leikmenn nú oft eitthvað um vöggudauða, en hugsunarlausar athugasemdir aðstandenda geta stundum vakið upp gamla fordóma eða ýtt undir óhjákvæmilega sektar- kennd. L öðrum löndum eru sums staðar til sam- tök foreldra, sem hafa misst börn á þennan hátt. Hjálp þeirra getur verið mikils virði. Lokaorð Skyndidauði ungbarna eða vöggudauði er vel þekkt fyrirbæri hjá börnum á fyrsta aldursári. Or- sakir eru óþekktar, en nauðs/nlegt er að láta einskis ófreistað við rannsókn á hverju tilfelli fyrir sig. Veita þarf aðstandendum barnanna alla þá hjálp, sem völ er á. HEIMILDIR: Meira hefur verið skrifað um skynidauða ungarna en hægl er að tíunda hér. Bent skal einungis á eftirfarandi greina- 1'st.a og vfirlit: 1) Valdcs-Dapena M.: Sudden and unexpected deatli in in- fancy: a review of the wcrld literature 19I4-1SÖ5, Pedi- atrics 39: 123, 1957. 2) La Veck G.D.: Sudden Infant Death Syndromc; Selec.ted annotated bibliography 1960-1971, DHEW Publ. No (NIH) 74-237. 3) Valdes-Dapena, M.: Sudden unexplained infant deat'a, 1970 through 1973; An evclution in understanding; DEHW Publ. No (HSA) 78-5235. 4) Burmeister, P.: Sudden unexpected death in infants; January 1974 through Mareh 1976; 159 Citations; U.S. Dept. cf Health Education and Welfare. LÆ KNANEMINN 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.