Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1979, Qupperneq 23

Læknaneminn - 01.12.1979, Qupperneq 23
Meöferð brjóstkrabbameins Sigurður Björnsson læknir Vaxandi tíðni brjóstkrabbameins ásamt stórstígum framförum í greiningu og meðferð hafa valdið því að fáir sjúkdómar eru meira í sviðsljósinu meðal almennings jafnt sem lækna. Ljóst er að ef ekki er að gert, leiðir sjúkdómurinn nær undantekningar- laust til dauða sjúklingsins þótt stundum Hði mörg ár frá greiningu og það var ekki fyrr en á þessari öld að læknar gátu breytt þar einhverju um. Brjóst- krabbamein eru algengust krabbameina í konum. Ar- ið 1979 voru greindir 68 nýir sjúklingar á Islandi, þar af var einn karl, en víðast er talið að eitt af hverjum hundrað brjóstkrabbameina sé í körlum. Stigun Hefðbundin meðferð á brjóstkrabbameini hefur byggst á þeim skilningi að æxlið eigi upptök sín í brjósti og berist þaðan með sogæðum til eitla í hol- hönd og síðan til annarra Hffæra með blóðrás. Mönnum varð snemma ljóst, að lækningalíkur voru því minni sem æxlið í brjóstinu var stærra og eink- um voru horfur slæmar ef eitlar í holhönd eða fjarmeinvörp voru til staðar. Margvísleg stigunar- kerfi hafa verið hönnuð (sjá töflu), með það fyrir augum að auðvelda ákvarðanir um meðferð, bera saman árangur mismunandi aðgerða og spá fyrir um horfur sjúklinganna. Einföld stigun, sem mjög hefur rutt sér til rúms á síðustu árum er vefjaskoðun á holhandareitlum, sem fjarlægðir eru um leið og brjóstið. Niðurstöður slíkrar skoðunar eru nú í vaxandi mæli hafðar lil hliðsjónar við ákvörðun meðferðar og skiptir því miklu að vel sé til vandað bæði sýnislökunnar og vefjaskoðunarinnar. Finnist engin meinvörp í holhandareitlum má ætla að 80% sjúklinganna séu frískir 5 árum eftir aðgerð, ef 1-3 eitlar finnast með meinvörpum eru 50% friskir, en séu 4 eða fleiri eitlar sýktir eru aðeins 20% sjúkl- inganna án sjúkdómseinkenna. Eftir 10 ár lifa 65% af þeim sem ekki höfðu eitlameinvörp, innan við 40% þeirra, sem greindust með 1-3 sýkta eitla, en einungis 13% þeirra kvenna, sem höfðu 4 eða fleiri eitla með meinvörpum. Áður en rætt er um meðferð brj óstkrabbameins er rétt að rifja upp að við tvö meginvandamál er að etja. 1 fyrsta lagi er æxlið í brjóstinu, sem getur orðið mikið að vöxtum, vaxlð gegnum húð og breiðst út um brjóstvegginn, sýklar setzt í, blætt úr o.s.frv. Slíkt getur valdið sjúklingnum óbærileg- um óþægindum en sjaldan aldurtila. Hinsvegar eru meinvörp frá frumæxlinu, sem berast til mikilvægra innri líffæra og granda sjúklingnum fyrr eða síðar. Talsverður meirihluti kvenna, sem greinast með brjóstkrabbamein, hafa þegar slík meinvörp þótt sjaldnast verði þeirra vart fyrr en mánuðum eða jafnvel árum seinna. Aðalástæðan fyrir bæltum horf- um sjúklinga með brjóstkrabbamein undanfarna áratugi felst í því að þeir koma nú fyrr til með- ferðar og færri hafa slík örmeinvörp (micrometa- stasa). Meðferð Skipta má meðferð á brjóstkrabbameini í tvennt: A Staðbundin (local) meðferð 1) Skurðlækningar 2) Geislameðferð B Víðtæk (systemic) meðferð 1) Hormónalækningar a) lyf: estrogen antiestrogen androgen progesterone corticosterar b) brottnám innkirtla: eggj astokkataka læknaneminn 19
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.