Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1979, Page 40

Læknaneminn - 01.12.1979, Page 40
kjarnaskráÖ protein í yfirborði fruma eru háð eðli- legri starfsemi mit-DNA6. Allt er þetta mjög flókið en jafnframt merkilegt; enda er mikið unnið á þessu sviði nú. Erfðafrœði orkukorna hefur borið á góma. Ekki verða henni nein almennileg skil gerð hér. Mit-DNA lýtur ekki Mendels lögum og er þetta oft kallað non- Mendelsk erfðafræði, eða cytoplasmic genetics eða extra-nuclear genetics (sem þýðir ekki nákvæmlega það sama). 1 hryggdýrum virðast orkukorn í frumum einnar veru allar komnar frá móður; ekki föður, sem er ólíkt Mendelskum leiðum. Reyndar eru þessar erfðir um móður ekki fullstaðfestar enn, og virðist þó flest styðja þær. - Við giftingu eggdýrs og sæðis fer lítið af orkukornum inn í eggdýrið — ef nokkuð — við þessu eru svör ekki enn óyggjandi. Mit-DNA á sér engar fyrirmyndir í kjarna, erfist .,cýtóplasmískt“. Ekki er vitað hvort DNA hinna ýmsu orkukorna einnar frumu getur verið mismunandi. Sá munur er jrá lítill, ef einhver er. Séu ósamkynja (alfa og a) einlitna gerfrumur, sem hafa ólík orkukorn, leiddar saman, verða þær eitt, tvílitna fruma; hún gefur af sér dætur, og eru þær mismunandi m. t. t. orkukorna, sem sýnir, að endurröðun á mit-DNA á sér stað (rekombinaiion). Lýst hefur verið virus-myndun í orkukornum. Telst það varla staðreynd ennþá, gæti orðið. Stjórn á starfsemi orkuUorna Kjarninn ræður miklu um starfsemi orkukornanna í frumum æðri dýra. Hvernig þau boð berast - það veit enginn. Orkukornum er líka stjórnað með boð- efnum beint að utan, t.d. hormónum. I vanþróuðum frumum, s.s. gerfrumum, ræðst starfsemi orkukorna af mörgu öðru, t.d. af magni sykra í umhverfi frumunnar (og veit enginn hvern- ig orkukorninu herast þær upplýsingar) ; eins hefur súrefnismagn mikil áhrif á starfsemi orkukorna. Kunnugt er um áhrif orkukorna á kjarna í lægri frumum. Hvort slíkt á sér stað í æðri frumum, það er ekki ljóst. Yfirleitt virðist öndun vera mikið notuð í mjög sérhæfðum frumum. Gerjun virðist aftur notuð meira á lítt sérhæfðum frumum, svo sem snemma í fósturlífi, í krabbameinsfrumum o.s.frv. Margar undantekningar eru þó frá þessari „reglu“. Menn hafa lýst aukinni gerjun fruma (samfara minnkaðri öndun) meðan á skiptingu stendur, þar sem frumurnar notuðu ]rá tiltölulega mikið af öndun í starfsfasa (fasa sérhæfðrar vinnu, interphase). Ekki verður neitt fullyrt á þessu stigi um hvort þetta er regla. (Enda geta frurnur skipt sér þótt engin gerjanleg efni séu nærtæk). Lítið er á þessi stigi hægt að tíunda af samspili kjarna og orkukorna, en mikið er unnið á þessu sviði og; rnargt óvarlega sagt. Nú verður vikið nánar að nokkrum þáttum í stjórn orkukorna. I spendýrafrumum hefur skjaldkirtilhormónið, thyroxine, mikil áhrif á orkukorn. Ondun eykst, hita- framleiðsla eykst (e-ð af ATP syntetasa tekið úr sambandi), protein myndun á ríbósómum orkukorna eykst8. Stera-hormón hafa í tilraunum veruleg áhrif á starfsemi orkukorna: progesteron letur öndun (próf- að á lifrarfrumum), estradiol leysir kalk út í frymið (gert á uterus-vöðvafrumum) 9. Gætu þetta vel verið náttúruleg áhrif steranna eins og receptor-hugmyndir um þá. Einangruð orkukorn anda dýpra, sé þeim gefið kalk. Fitusýruesterar kunna að reynast náttúruleg stjórnefni; in vitro letja þeir phosphorylation. Hringmyndað AMP (cAMP) hefur hvetjandi áhrif á orkukorn gerfruma.10 Óvíst er um þessi áhrif í mönnum. Crabtree-áhrif er það kallað þegar fruma (in vitro) er böðuð í mikilli glúkósu, og dregur það um- svifalaust úr önduninni. Verður það bæði hjá æðri frumum og lægri. „Glucose repression“ heitir það í lægri frumum, þegar þær eru ræktaðar í miklum glúkósa, og hætta þær þá að anda, en nota gerjunina þeim mun meira. Standi þetta lengi, hverfa öndunarkeðju-hvatarnir: er nú fruman „glucose-repressed“. Minnir þetta á þegar frumur eru ræktaðar fjær súrefni; stjórn á þessum tveim fyrirbærum hlýtur að skarast. Sé fruman aftur á móli ræktuð á galaktosa, verð- ur ekki slík „repression“ í orkukornum. Þvert á móti 32 LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.