Læknaneminn


Læknaneminn - 01.12.1979, Síða 58

Læknaneminn - 01.12.1979, Síða 58
A B Mynd 17. Sphenoid wing meningioma. A: VH. Upptöku- svæðið er hringlaga, 2-3 cm í þvermál, í regio temporalis. B: AP. Hér sést óreglulegt eða e. t. v. þríhyrningslaga upp- tökusvœði neðst vinstra megin, skilst ekki jrá perijerunni cða basis cranii. æxlisins necrotiskur og er þá geislavirkni í honum minni en í jaðrinum (Mynd 16). Fyrir kemur að hluti jaðarsins er hið eina sem sést og getur þá verið mjög erfitt að ráða í hvers konar meinsemd er um að ræða. Þegar fram kemur á heilaskanni aukin geisla- virkni, sem virðist vera vegna æxlis, má reyna aS leiða líkur að nánari greiningu. Meningioma liggja á yfirborði heilans eða fast við miðlínu og koma • fram á AP- og PA-myndum í samræmi við það (Mynd 17). Þau taka TcO^^ jónina vel í sig, koma yfirleitt fram sem „heitir“ blettir á blóðflæSimynd- um og á kyrrmyndum, sem teknar eru strax eftir inn- Mynd 18. Astrocytoma gr. 1-2. A: HH. B: AP. Skannið var túlkað sem injarct. Einkenni hójust fyrir 5 árum. Skann var j>á vægt grunsamlegt en talið innan normal marka. Angio- grajía gaj þá grun um fyrirjerðaraukningu, en endurtekning 4 mán, seinna dró úr þessum grun. Angiografía nú positíj. gjöf geislavirka efnisins33,33. Yfir 90% meningi- oma koma fram á heilaskanni.') Astrocyloma myndast í hvíta efni heilans og sjást á AP- eSa PA-myndum oft miðja vegu milli mið- línu og hliðarmarka (Mynd 16 B), eða inn við mið- línuna og ganga stundum yfir hana. Upptaka er yfir- leitt góð í astrocytoma af gráðu 3-4, jafnvel ekki síðri en í msningioma, en oft ber þó á necrotisku svæði innst, sem mjög sjaldan kemur fyrir i men- ingioma. Upp undir 90% af þessum æxlum koma fram á heilaskanni'*. Erfiðara er að fá fram astro- cytoma af gráðu 1-2. Þau eru hægt vaxandi og valda tiltölulega lítilli truflun á blood-brain-barrier. Upptaka í þessum æxlum er því oft mjög lítil. Lög- un þeirra verður þá oft óregluleg á skanninu og því hætta á að þau séu tekin sem heiladrep (Mynd 18). Acousticus neurinoma sjást sem upptökusvæði upp úr basis cranii, rétt framan við sinus sigmoideus á hliðarmynd, og nálægt miðlínu á PA-mynd. Þau eru oft strýtumynduð, og skera sig þannig nokkuð úr öðrum meinsemdum á þessu svæði. ÞaS virðist sem þau sjáist best nokkrum klst. eftir að geislavirka efnið hefur verið gefið inn, og telja sumir að besti tími sé 2% klst. eftir inngjöf24. Það virðist sem um 80% af þessum æxlum og öðrum æxlum í cerebello- pontine angle komi fram á skanni23,24. DeLand og Wagner25 fengu 12 positíf skönn frá 14 sjúklirig- um með acousticus neurinoma. ASeins tvö þessara A B Mynd 19. Medulloblastoma. A: VH. Aukin geislavirkni sam- jallandi við sinus sigmoideus. B: PA. Ógreinilegt upptöku- svœði nálœgt miðlínu vinstra megin á móts við sinus trans- versus og þar neðan við. Carotis og vertebralis angiograjía var negatif. 48 LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.