Læknaneminn - 01.04.2007, Page 77

Læknaneminn - 01.04.2007, Page 77
Á kantinum í Kenýa Á kantinum í Kenýa Árdís Björk Ármannsdóttir, 5. árs læknanemi Sigríður Karlsdóttir, 5. árs læknanemi Vaka Ýr Sigurðardóttir, 4. árs læknanemi Flugstöð Leifs Eiríkssonar, 3. júní 2006 kl. 06:30. í biðsalnum sitja þrjár ungar læknastúdínur. Þær eru í kakibuxum, háum flugsokkum, sandölum, með mittistösku, í flíspeysum og með myndavélar um hálsinn. í hinum sérlega glæsilegu mittistöskum hefur ýmsum nauðsynjavörum Afríkufara verið haganlega fyrir komið. Allt er á sínum stað; malaríutöflur, handspritt, hálfgildings klósettpappír, moskítóáburður, glás af Imodium, gemsi, kenýskir shillingar, vegabréf og bólusetningarvottorð í þríriti, vasaljós og nóg af snæri. í fjórum ferðatöskum á leið út í flugvél eru vel yfir 100 kg af hjálpargögnum sem aflað hefur verið á undangengnum vikum með góðri aðstoð íslenskra fyrirtækja og samtaka. Stúlkurnar sötra í sig síðustu dropa vestrænnar menningar, Café Latte og Croisant, áður en þær halda af stað í þriggja vikna ferðalag suður fyrir miðbaug. Stefnan er sett á höfuðborg Kenýa. Síðastliðin ár hefur verið komið á samvinnuverkefni IFMSA (International Federation of Medical Student's Ássociations) í gegnum samtök læknanema í Noregi og Provide International sem eru frjáls félagasamtök starfandi í Kenýa. Provide samtökin voru stofnuð árið 1986 og reka 1 dag 5 heilsugæslustöðvar í fátækrahverfum Nairobi. Markmið IFMSA með þessari samvinnu er að gefa lasknanemum tækifæri á að kynnast heilbrigðisvandamálum þriðja heimsins með því að senda nema til starfa í sjálfboðavinnu. Með samstarfinu er einnig stuðlað að fjáröflun og styrkveitingum til handa Provide samtakanna. Sumarið 2005 fóru 5 læknanemar fyrstir íslendinga til Kenýa að vinna að þessu verkefni og ruddu með því brautina fyrir íslenska læknanema. Ári síðar vorum það við skytturnar þrjár: Árdís Björk Ármannsdóttir, Sigríður Karlsdóttirog Vaka ÝrSævarsdóttir 3. og 4. árs læknanemar sem lögðum land undir fót til að taka þátt í Kenýa verkefninu. Eftir tæplega sólarhringsferðalag með viðkomu í London lentum við á flugvellinum í Nairobi. Það var sunnudagsmorgunn, sólin að koma upp og moskítóflugur sveimuðu um í Ijósaskiptunum. Lofthitinn var ekki nema rúmar 20°C enda kaldasti tími ársins við miðbaug. Við komu í flugstöðina drifum við okkur úr flugsokkunum og bárum móskítóáburð á bjúgaða leggina. Við vorum að sjálfsögðu eiturspenntar enda ævintýrið rétt að byrja. Okkur tókst vandræðalaust að komast með allt okkar hafurtask á gistiheimilið Nairobi Backpackers en þar höfðum við pantað okkur gistingu í gegnum netið. Þar sem við höfðum daginn fyrir okkur ákváðum við að fá okkur göngutúr um miðbæ Nairobi. Við vorum nú frekar varar um okkur þar sem þetta var jú fyrsti dagurinn í mjög ókunnu landi og reyndum því eftir bestu getu að láta lítið fyrir okkur fara. Talsvert var af fólki á gangi og virtust flestir stefna í sömu átt. Við vorum forvitnar og ákváðum að elta fjöldann en reyndum eins og áður sagði að fara að öllu með gát og láta lítið fyrirokkurfara. Þegará áfangastað var komið, sem reyndist vera stærðarinnar almenningsgarður, rann upp fyrir okkur að við vorum staddar á trúarlegri útisamkomu þar sem var sungið, Vaka og Árdís í útimessunni Læknaneminn 2007 77
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.