Læknaneminn - 01.04.2007, Blaðsíða 104
Heilsutenqd þjónusta græðara oq fleiri aðila
nálastungum í þessa punkta megi stýra innri líffærum,
byggingu líkamans og virkni hans. Eyrnastungur hafa borið
árangur í fíknimeðferð, t.d. gegn tóbaksfíkn,21 og sem
verkjameðferð.22 Beitendur þeirra segja þær einnig gagnast
í meðferð lyndisraskana, offitu o.fl.23
Þrýstipunktanudd (acupressure)
Aðferðin byggir á sömu kínversku fræðum og nálastung-
ur. Þrýstingi er beitt á tiltekna punkta sem kallaðir eru
orkustöðvar. Á sama hátt og nálastungur byggir þrýsti-
punktanudd á örvun svokallaðs orkurásakerfis til að ná
fram jafnvægi milli yin og yang. Kenningin er sú að verkir
eða annars konar sjúkdómsástand stafi af hindrun í orku-
rásakerfinu. Sagt er að með nuddi á áðurnefnda punkta
verði losun á endorphinum sem hindri að sársaukaboð
berist til heila á sama tíma og súrefnisframboð til viðkom-
andi svæðis aukist. Þannig slakni á vöðvum og blóðrás ör-
vist sem auki lífsorku. Gáttakenningin fræga um sársauka-
boð hefurverið notuðtil að skýra virkni þrýstipunktanudds.24
Tilgangur þrýstipunktanudds getur verið að losa um streitu,
minnka verki, draga úr kvíða eða ógleði, losa fólk við
ofnæmi, meðhöndla svefnleysi og minnka þreytu. Þekktust
er ef til vill notkun úlnliðsbands með kúlu sem á að þrýsta
á P6 þrýstinuddspunktinn og á með því að draga úr ein-
kennum bílveiki og sjóriðu. Rannsóknir hafa sýnt fram á að
þrýstingur á þennan punkt geti varnað ógleði eftir aðgerðir
en ekki varnað uppköstum.25 Þá geti þrýstipunktanudd
einnig varnað ógleði við krabbameinslyfjameðferðir26 og
linað króníska ósértæka mjóbaksverki.27
Shiatsu
Shiatsu er ein gerð af punktanuddi (acupressure) sem á
að stuðla að auknu jafnvægi orkuflæðis um líkamann með
jöfnum og þéttum þrýstingi á fingur, lófa, olnboga eða
jafnvel hné eða iljar. Þrýst er á punkta sem sagt er að liggi
eftir orkubrautum líkamans (meridian lines). Shiatsu á að
losa um djúpa spennu, minnka verki, minnka streitu, auka
lífskraft og vellíðan og hjálpa líkama og sál við að leysa úr
læðingi lækningarmátt líkamans.2 Losun liðamóta ásamt
mjúku togi getur einnig verið hluti af þessari meðferð.
Shiatsu er þekktast fyrir að minnka streitu, draga úr ógleði
og uppköstum28 og minnka verki29 en á einnig að geta
hjálpað gegn höfuðverkjum, taugaverkjum, vöðva-
verkjum, gigt, svefnleysi, meltingartruflunum, bakvanda-
málum o.fl.30 Það tekur um þrjú ár að læra að verða shiatsu
meðferðaraðili.
Grasalækningar / náttúrulækningar
(herbal medicine / phytotherapy)
Grasalækningar eru mörg þúsund ára gömul
lækningaraðferð sem hefur meðal annars
stuðlað að þróun ýmissa lyfja, svo sem aspírins, digoxins,
quinine og morfíns.31 Grasagræðarar nota lauf, blóm,
rætur, ber og stilka jurta til að bæta heilsu fólks og draga
úr sjúkdómseinkennum en einnig til að fyrirbyggja
sjúkdóma. Grasagræðarinn framkvæmir líkamsskoðun og
spyr út í líkamlegt og andlegt ástand þess sem til hans
leitar. Þá biður hann um upplýsingar um fyrri sjúkdóma,
lífshætti, mataræði o.fl. Á þessum upplýsingum byggir
grasagræðarinn greiningu sína og metur hvaða jurtir hann
telur að geti hjálpað viðkomandi, í hvaða skömmtum og á
hvaða formi. Jurtir og jurtablöndur eru gefnar ýmist sem
te, safar, kaldir og heitir bakstrar, innöndunargufa, olíur,
áburðir, baðsölt eða í hylkjum til inntöku.71
Grasalækningar hafa verið stundaðar hér á landi um
langt skeið og má segja að þær hafi verið notaðar við
næstum hvaða heilsufarslega vandamáli sem er. Rann-
sóknir hafa m.a. sýnt fram á virkni þeirra gegn mjóbaks-
verkjum32, kvíða33 og mögulega gegn háþrýstingi34. Hér á
eftir eru nefnd nokkur dæmi um jurtir og notkun þeirra
samkvæmt upplýsingum af netsíðunni www.doktor.is:
• Ginkgo biloba (musteristré) - við blóðrásartruflunum
og til blóðþynningar
• Ginseng - talið að virki hressandi en skortur er á
áreiðanlegum rannsóknum
• Hvítlaukur - til blóðþynningar og varnar gegn hjarta-
og æðasjúkdómum
• Kamilla - til að draga úr krömpum, bólgum og
meltingartruflunum en einnig talin hafa róandi og
svæfandi áhrif
• Sólhattur - vísbendingar um ónæmisörvandi áhrif en
ekki verið staðfest með áreiðanlegum rannsóknum35
Náttúrulyf eru skilgreind í reglugerð um markaðsleyfi
náttúrulyfja (reglugerð nr. 684/1997) á eftirfarandi hátt:
„Náttúrulyf innihalda eitt eða fleiri virk efni sem unnin eru
á einfaldan hátt (t.d. með þurrkun, mölun, úrhlutun,
eimingu eða pressun) úr plöntum, dýrum, örverum,
steinefnum eða söltum. Hrein efni einangruð úr náttúrunni
teljast ekki náttúrulyf".70 Hérlendis þarf að sækja um
markaðsleyfi til Lyfjanefndar ríkisins fyrir náttúrulyfjum
sem eru auglýst á þann hátt að þau séu ætluð til lækninga.
Þau þurfa að standast sömu kröfur um hráefnis-,
framleiðslu- og gæðaeftirlit og lyfseðilsskyld lyf-
Framleiðendur náttúruvara þurfa aftur á móti ekki að fá
slík leyfi.36
Mikilvægt er að fólk sé upplýst um að flestum lyfjum,
þ.m.t. hefðbundnum lyfjum, jurtalyfjum og fæðubótarefn-
um, fylgir hætta á aukaverkunum. Það að efni/afurð/lyf sé
sagt „náttúrulegt" þýðir ekki að það sé öruggt eða án auka-
verkana.1 Margir halda því fram að oft forðist sjúklingar að
veita læknum sínum upplýsingar um það hvort þeir hafi
leitað sér óhefðbundinnar meðferðar. Það skapar hættu á
að sjúklingar séu, á sama tíma og þeir nota lyf sem læknir
hefur ávísað þeim, að nota efni sem fara illa saman með
/ 04 Læknaneminn 2007