Læknaneminn - 01.04.2007, Blaðsíða 87
Lýðheilsufélag læknanema
Lýðheilsufélag læknanema
Undanfarin ár hefur mikið verið rætt um að stofna
lýðheilsufélag læknanema. Fyrirmyndin er fengin frá
Alþjóðasamtökum læknanema í gegnum starf Alþjóða-
nefndar en lýðheilsustarf er einn stærsti þátturinn í starfi
læknanema í mörgum löndum.
I haust varð stofnun lýðheilsufélags loksins að veruleika
Þegar góður hópur læknanema af öllum árum tók að hittast
reglulega og byrja að undirbúa og skipuleggja starfið.
Markmiðið er að sinna forvörnum og fræðslu um heilsutengd
málefni, að láta gott af sér leiða um leið og læknanemar
sem taka þátt fá reynslu og þekkingu sem þeir ættu erfitt
með að afla sér annars staðar. Lýðheilsufélagið er líka
hugsað sem vettvangur fyrir læknanema til að koma
hugmyndum sínum og hugsjónum í framkvæmd.
Til að byrja með var lagt upp með þrjú verkefni, bangsa-
spítala, blóð- og líffæragjafir, og greinaskrif.
Auðveldlega gekk að koma greinaskrifunum af stað. Haft
var samband við Fréttablaðið og tóku þeir vel í hugmyndina
°9 buðu okkur að vera með reglulega pistla í blaðinu. Frá
miðjum nóvember hafa svo birst reglulega greinar eftir
lasknanema. Er umfjöllunarefnið margvíslegt og sem dæmi
rná nefna hreyfingu, sykursýki, langvinna lungnateppu og
heilsu ferðamanna. Skrifstofa kennslu,
vísinda og þróunar (SKVÞ) á LSH hefur verið
sérlega hjálpleg og séð til þess að
sérfræðingar lesi yfir allar greinar sem birtast
og þannig hefur tekist halda vissum
gæðastimpli á skrifunum.
Meðan verið var að koma greinaskrifunum
af stað voru önnur verkefni látin bíða. Um
áramót voru greinaskrifin komin nokkuð vel
af stað og þá var farið að huga að öðrum
verkefnum. í byrjun mars (þetta er skrifað
um miðjan febrúar) fáum við svo fyrst að sjá
afrakstur þess starfs og undirbúnings sem
hófst um áramótin.
Mars verður sérstakur blóðgjafamánuður
læknanema. Verkefninu verður hleypt af
stokkunum með fræðslufundi Blóðbankans
og lýðheilsufélagsins en vonir standa til að
sem flestir læknanemar slái til og gefi blóð.
Markmiðið er að sem flestir læknanemar
verði virkir framtíðarblóðgjafar og sýni þar
með gottfordæmi fyriraðrar heilbrigðisstéttir.
í framhaldinu mætti e.t.v. koma á fót blóð-
gjafakeppni milli ára eða jafnvel milli deilda Háskólans.
Bangsaspítölum hafa læknanemar um allan heim komið
á fót. Hugmyndin er sú að barn komi með bangsann sinn
til læknis. Bangsinn er veikur og barnið (sem foreldri)
kemur með hann til læknis þar sem fram fer viðtal, skoðun
og svo er reynt að lækna bangsann eftir því sem við á.
Settar umbúðir, plástrað, saumað o.s.frv.
Tilgangurinn með bangsaspítalanum er að kynna lækna
og heilbrigðisstofnanir fyrir börnum í gegnum leik og
þannig reyna að koma í veg fyrir vanlíðan og hræðslu
þegar þau sjálf þurfa svo að leita læknis. Ekki skiptir minna
máli að með þessu fá læknanemar tækifæri til að þjálfast í
samskiptum við börn og vonandi verður þetta góð
skemmtun fyrir alla sem taka þátt, læknanema, börn og
bangsa.
Um miðjan mars verður haldinn fyrsti bangsaspítalinn.
Þá koma til okkar fjörutíu fjögurra ára börn með bangsana
sína og heilsa uppá okkurá Læknavaktinni. En aðstandendur
Læknavaktarinnar hafa verið svo almennilegir að bjóða
okkur alla aðstöðu og hjálp sem við þurfum. í vikunni fyrir
bangsaspítalann verður boðið upp á fræðslu fyrir
læknanemana (læknana) sem taka þátt í von um að við
verðum við öllu búin.
Læknaneminn 2007 87