Læknaneminn - 01.04.2007, Side 89
Sjúkratilfelli 4
Sjúkratilfelli 4
Þórarinn Arnar Ólafsson
5. árs læknanemi
Sjúkrasaga
13 ára stúlka kemur í fylgd móður sinnar inn á
bráðamóttöku. Hún kvartar undan verk í kvið og er
örmagna. Skömmu eftir komu kastar hún upp. Hún kom
heim fyrr í dag úr vikulöngu keppnisferðalagi í dansi til
Kaupmannahafnar og leið skringilega alla ferðina, hún hafi
stöðugt verið þyrst og með tíð þvaglát. Þá hafði í gær liðið
yfir hana er hún reis upp af íþróttagólfi. Þegar hún kom
heim úr fluginu sofnaði hún fljótlega, en vaknaði um
kvöldið og var þá búin að missa þvag í rúmið og var mjög
óglatt. Móðir fór þá með hana á bráðamóttöku.
Hún hefur almennt verið hraust en móðir hefur haft
áhyggjur af holdarfari hennar að undanförnu og óttast að
hún sé með átröskun. Hún er ekki byrjuð á blæðingum. Þá
óttast móðir líka að hún hafi verið að drekka því það hafi
verið „einhver lykt út úr henni" við heimkomuna frá
Kaupmannahöfn. Stúlkan neitar áfengisneyslu. Hún hefur
lítið sótt læknisþjónustu en fór til augnlæknis fyrir mánuði
síðan sem meðhöndlaði hana við augnþurrk.
Blóðmeinafræði: Viðmiðunarmörk:
Na+ 138 137 - 145 mmol/L
K+ 5,1 * 3,5 - 5,0 mmol/L
ci- 109 101 - 112 mmol/L
Kreatinin 73 35 - 75 pmól/L
Úrea 11 * 3,0 - 8,0 mmol/L
Osmolalitet sermis 293 280 - 300 mOsm/kg
Glúkósi 23 * 4-6 mmol/L
CRP 4 <5
Blóðqös: Viðmiðunarmörk:
pH 6,95 * 7,38 - 7,42
PC02 31 * 36 - 42 mmHg
P02 102 83 - 108 mmHg
HC03- 11 * 22 - 26 mmol/L
Skoðun
Við skoðun er að sjá granna stúlku sem liggur fyrir með
lokuð augu og andar djúpt og hratt. Hún er með meðvitund
en svararspurningum lágt og illskiljanlega. Blóðþrýstingur:
92/54 mmHg, púls: 118 /mín, hiti: 36,2°C, öndunartíðni:
30 /mín. Súrefnismettun 99% án súrefnis. Varir og
slímhúðir í munni eru þurrar. Dreifð þreyfieymsli er að
bnna um ofanverðan kvið. Frá vitum hennar leggur lykt
sem minnir á naglalakkseyði. Þvagstix sýnir 3+ af ketónum
°9 4+ af glúkósa. Akút blóðsykursmæling gefur gildi upp á
23 mmól/L. Niðurstöður frekari blóðprufa má sjá í töflu.
Anjónabil reiknast svo:
[Na+] - ( [C! ] + [HC03 ] ) 138 - ( 109 + 11 ) = 18 *
(eðlileg mörk eru 6-10)
Hjartalínurit er eðlilegt og röntenmynd af lungum er
eðlileg. Ekki sáust bakteríur eða hvít blóðkorn í þvagi.
Hver er sjúkdómsgreiningin?
Læknaneminn 2007 89