Læknaneminn - 01.04.2007, Qupperneq 103
Heitsutenqd þjónusta græðara oq fleiri aðila
til staðar sannanir fyrir því að smáskammtalækningar séu
árangursríkar í meðferð klínískra sjúkdóma.14 í skýrslu
heilbrigðisráðherra um græðara og starfsemi þeirra á
Islandi segir: „Hómópatía hefur mögulega virkni en óvíst í
hvaða tilvikum".1
Á íslandi er starfræktur The Homoeopathy College of
Iceland. Námið tekur að jafnaði þrjú til fjögur ár og
útskrifast nemendur sem smáskammtalæknar að þeim
tíma loknum.13
Svæðameðferð (zonetherapy) og
viðbragðsmeðferð (reflexology)
Svæðameðferð byggir á þeirri
kenningu að í fótum og í höndum séu
viðbragðssvæði eða -punktar, sem
tengist líffærum, stoðkerfi, inn-
kirtlum eða öðrum hlutum líkamans.
Komi sjúkleiki upp á einhverjum stað
líkamans verði tiltekið svæði á hönd-
um eða fótum aumt viðkomu. Þá geti
svæðameðferðaraðili beitt þrýsti-
nuddi á þessi svæði og þannig fram-
kallað örvun eða slökun
á viðkomandi stað líkamans. Meðferðin á að auka orku-
flæði og blóðstreymi og þannig gera súrefnisupptöku í
líkamanum eðlilegri og auka andlegt og líkamlegt atgervi.15
í skýrslu heilbrigðisráðherra um græðara og starfsemi
þeirra á íslandi segir um svæðanudd: „Ekki liggja fyrir
nægjanleg gögn til þess að segja til um virkni."1
Viðbragðsmeðferð byggir á því að um líkamann streymi
orka ísamfelldri hringrás eftirorkubrautum. Um heilbrigðan
likama streymi lífsorkan án hindrana. Ef hindranir myndist
megi losa um hindranirnar með þrýstingi á punkta á
orkubrautunum eða veita örvandi eða letjandi
orkubrautarstrokur. Meðferðin á að geta minnkað verki og
spennu, styrkt líffærastarfsemi, aukið vellíðan og
heilbrigði.2
Þrír skólar á þessu sviði eru starfræktir hérlendis. Ljúka
þarf prófi í verklegri og bóklegri svæðameðferð ásamt
áföngum í framhaldsskóla á sviði líffæra- og lífeðlisfræði,
heilbrigðisfræði, sjúkdómafræði, skyndihjálp o.fl.
Nálastungur (acupuncture)
Nálastungur hafa þekkst sem verkjameðferð á
Vesturlöndum í 300 ár16 en hefur verið beitt í lækningaskyni
í Kína í meira en 4000 ár.1 Áður en slík meðferð hefst greinir
meðhöndlarinn ástand skjólstæðingsins, m.a. með því að
athuga litarhátt í andliti, lit og lögun tungu og púlsa á
úlnlið. Einnig eru einkenni skráð og mataræði og lífsmáti
skjólstæðings yfirfarin.17 Meðferðin byggir á notkun ein-
nota beittra nála sem stungið er í ákveðna punkta á líkam-
anum sem tilheyra eiga
orkurásakerfi kínversku læknis-
fræðinnar. Talið er að þannig
megi lagfæra og breyta orku-
flæði líkamans milli hinna
tveggja mótverkandi hliða
hans, svokallaðs yin og yang.
Yin og yang eru sagðir
andstæðir pólar sem vinni
alltaf í andstöðu við hvor annan
en séu samt einnig bundnir
hvor öðrum. Ójafnvægi milli
yin og yang komi af stað
sjúkdómum, verkjum og
öðrum vandamálum. Hversu
margar nálar eru notaðar í hvert skipti fer eftir aðstæðum.
Nálarnar eru yfirleitt örvaðar, oftast með höndum en einnig
með rafmagni eða hita.18 Fáar aukaverkanir eru þekktar af
völdum nálastunga.
Notkun nálastunga hefur aukist mikið á Vesturlöndum á
undanförnum árum og mun þeim vera beitt í margs konar
tilgangi og undir fjölbreyttum aðstæðum. Erfitt að segja
hvort sama hugmyndafræði og lýst var hér að ofan liggi að
baki hverri notkun.
Með rannsóknum hefur tekist að sýna fram á árangur
nálastungna í meðferð verkja eftir aðgerðir, ógleði og
uppkasta, kvíða, svefnleysis og tannpínu.19 í skýrslu
heilbrigðisráðherra um græðara og starfsemi þeirra á
íslandi segir: „Nálastungumeðferð hefur sannanlega virkni
til þess að draga úr ógleði eftir skurðaðgerðir og
krabbameinslyfjameðferð og líklega virkni gegn
meðgönguógleði, verkjum eftir tannaðgerðir og sem
viðbótarmeðferð við áfengis- og lyfjafíkn og endurhæfingu
eftir heilablóðfall og ef til vill virkni gegn verkjum eftir
skurðaðgerðir, langvinnum verkjum, astma og tóbaksfíkn."1
Sjúkraþjálfarar á Landakoti nota nálastungur til meðferðar
á liðverkjum vegna slitgigtar en einnig höfuðverk og
vöðvabólgu auk annarra kvilla.16 Nálastungur eru einnig
notaðar til verkjastillingar fyrir konur í fæðingu. í svari
Magnúsar Jóhannssonar læknis á heimasíðunni
www.doktor.is við fyrirspurn um hjálækningar segir: „Á
síðustu 30 árum hafa verið gerðar meira en 100 rannsóknir
á nálastungulækningum sem hafa verið birtar í
læknisfræðitímaritum. Fæstar þessara rannsókna voru
nógu vel skipulagðar og framkvæmdar en ef þær bestu eru
skoðaðar eru nokkrar sem sýna gagn af nálastungum en
margar aðrar sýna ekkert gagn."20.
Eyrnastungur (ear acupuncture, auricular therapy)
Eyrnastungureru eins konarundirfræðigrein nálastungna.
Þeir sem þær stunda telja ytra eyrað vera spegilmynd
líkamans. Kortlagðir hafa verið yfir 100 punktar sem hver
um sig á að samsvara ákveðnum líffærum.1 Með
Læknaneminn 2007 7 03