Læknaneminn - 01.04.2007, Page 145
I
1. HEITI LYFS: Stilnoct. 2. VIRK INNIHALDSEFNI OG STYRKLEIKAR: Zolpidem 10 mg. Um hjálparefni sjá 6.1. 3. LYFJAFORM: 10 mg: Hvítar filmuhúðaðar, tafarlaus losun
(immediate release), aflangar töflur til inntöku.4. KLÍNÍSKAR UPPLÝSINGAR: 4.1 Ábendingar: Tímabundið svefnleysi. 4.2 Skammtar og lyfjagjöf: Skammtastærðir handa
fullorðnum: Ávallt ber að nota lægsta skammt, sem komistverður af með. Yngri en 65 ára: 10 mg fyrirsvefn. Ef sá skammtur reynist ófullnægjandi, má hækka hann í 15-20
mg. Eldri en 65 ára: Byrjunarskammtur er 5 mg, sem má auka í 10 mg, ef þörf krefur.Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum. Zolpidem virkar hratt og
skal þess vegna tekið inn rétt áður en gengið er til náða eða þegar komið er upp í rúm. Mælt er með 5 mg skammti fyrir aldraða og veiklaða sjúklinga þar sem þeir geta
verið sérstaklega næmir fyrir áhrifum zolpidems. Þar sem úthreinsun og umbrot zolpidems er minna hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi skal byrjunarskammtur vera 5
mg og sérstakrarvarúðargætt hjá eldri sjúklingum. Hjá fullorðnum (yngri en 65 ára) má aðeins auka skammtinn í 10 mg ef klínisktsvörun er ekki nægjanleg og þegar lyfið
þolist vel. Eins og við notkun allra svefnlyfja er langtímanotkun ekki ráðlögð og ætti meðhöndlunartímabil ekki að vera lengra en 4 vikur. í ákveðnum tilfellum getur þó
reynst nauðsynlegt að hafa meðhöndlunartímann lengri en 4 vikur; þetta skal ekki gera án þess að endurmeta ástand sjúklings. 4.3 Frábendingar: Notkun zolpidem er
frábending hjá sjúklingum með ofnæmi fyrir zolpidemi, kæfisvefn, vöðvaslensfár, alvarlega lifrarbilun, bráða- og/eða alvarlega öndunarbilun. Zolpidem á ekki að ávísa
handa börnum þar sem gögn eru ekki fyrirliggjandi. 4.4 Sérstök varnaðarorð og varúðarreglur við notkun: Ef mögulegt skal greina ástæðu svefnleysis og meðhöndla
undirliggjandi þættir áður en svefnlyf er gefið. Ef svefnleysið lagast ekki eftir 7-14 daga meðhöndlun getur það bent til geðrænna eða líkamlegra kvilla og skal reglulega
endurmetasjúklinginnaf kostgæfni.4.4.1.ÁkveðnirsjúklingahóparAldraðir:Sjáráðlagðarskammtastærðir.Öndunarbilun:Þarsemsvefnlyfgetadregiðúröndunarhvatningu,
skal gæta varúðar ef zolpidem er gefið sjúklingum með öndunarbilun. Hins vegar, hafa bráðabirgðarannsóknir ekki leitt í Ijós öndunarbælandi áhrif hjá heilbrigðum
einstaklingum eða hjá þeimsem eru með væga eða meðalvæga langvinna teppulungnasjúkdóma. Geðrænirsjúkdómar: Svefnlyf eru ekki ráðlögð til meðferðará geðrænum
sjúkdómum. Þunglyndi: Þó að ekki hafi verið sýnt fram á nein klínisk mikilvæg lyfhrif og lyfjahvarfa milliverkanir við SSRI (sjá 4.5 Milliverkanir), eins og hjá öðrum róandi
lyfjum/svefnlyfjum, skal gæta varúðarvið gjöf zolpidems hjá sjúklingum sem hafa einkenni þunglyndis. Skert lifrarstarfsemi: Sjá ráðlagðarskammtastærðir. 4.4.2. Almennar
upplýsingar Læknarsem ávísa lyfinu eiga aðtaka tillittil eftirfarandi almennra upplýsinga sem tengjast áhrifum sem sjást eftir gjöf svefnlyfja. Minnisleysi Róandi lyf/svefnlyf
geta valdiðframvirku minnisleysi. Slíkt ástand kemur oftast fram mörgum klst. eftir inntöku lyfsins og til aðdraga úr hættu eiga sjúklingar að fullvissa sig um að þeir nái 7-8
klst. af ótrufluðum svefni. Geðræn og þverstæð (paradoxical) viðbrögð Viðbrögð eins og eirðarleysi, aukið svefnleysi, órósemi (agitation), pirringur, árásargirni,
ranghugmyndir, bræði, martraðir, ofskynjanir, óviðeigandi atferli og aðrar atferlisaukaverkanir geta komið fram þegar róandi lyf/svefnlyf eru notuð. í slíkum tilfellum ber
að hætta meðferð. Þessar svaranir koma oftar fram hjá öldruðum. Þol Dregið getur úr svæfandi áhrifum róandi lyfja/svefnlyfja eftir nokkra vikna samfellda notkun.
Ávanabinding Notkun róandi lyfja/svefnlyfja getur leitt til líkamlegrar og andlegrar ávanabindingar. Hætta á ávanabindingu eykst með hækkandi skammti og lengd
meðferðar; einnig erhættan meiri hjásjúklingum meðsögu um geðsjúkdóma og/eða misnotkun áfengisog lyfja. Þessirsjúklingareiga aðvera undir eftirliti, ef þeirfá róandi
lyf. Ef líkamleg ávanabinding myndast, koma fráhvarfseinkenni fljótlega fram ef skyndilega er hætt að taka lyfið. Þessi einkenni geta verið höfuðverkur eða vöðvaverkir,
mikil angist og spenningur, eirðarleysi, rugl og pirringur. í alvarlegum tilfellum geta eftirfarandi einkenni komið fram: óraunveruskyn (derealization), sjálfshvarf
(depersonalization), ofnæm heyrn, dofi og smástingir í útlimum, ofurnæmi fyrir Ijósi, hávaða og líkamlegri snertingu, ofskynjun eða krampaköst. Bakslag svefnleysis
Stuttvarandi heilkenni, þar sem einkennin sem leiddu til meðferðar með róandi lyfi/svefnlyfi, geta endurtekið sig í enn alvarlegri mynd, þegar meðferð svefnlyfsins er hætt.
Önnur einkenni geta einnig komið fram svo sem breytingar á hugarástandi, kvíði og eirðarleysi. Mikilvægt er að sjúklingnum sé gert grein fyrir möguleika á bakslagi, þá er
hægt að lágmarka kvíða fyrir slíkum einkennum, ef þau koma fram þegar meðferð lyfsins er hætt. í tilfellum þar sem stuttverkandi róandi lyf/svefnlyf eru notuð, er ýmislegt
sem bendir til þess að fráhvarfseinkenna geti orðið vart milli inntöku skammta, sérstaklega ef skammturinn er hár. 4.5 Milliverkanir Notist ekki: Samhliða áfengisneyslu..
Slævandi áhrif geta aukist þegar lyfið er tekið samhliða alkóhóli. Þetta hefur áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla. Taka ber tilliti til: Samhliða gjöf miðtaugakerfisbælandi
lyfja. Aukning á miðtaugakerfisbælingu getur átt sér stað við samtímis notkun sterkra geðlyfja (neuroleptika), svefnlyfja, kvíðastillandi/róandi lyfja, þunglyndislyfja,
ávanabindandi verkjalyfja (ópióiðar), flogaveikilyfja, svæfingalyfja og róandi andhistamínlyfja. Hinsvegar, hafa engin klíniskt marktæk milliverkanaáhrif á lyfhrif eða
lyfjahvörf SSRI þunglyndislyfja (flúoxetín og sertralín) komið fram. Áhrif vellíðunar geta aukist með vanabindandi verkjastillandi lyfjum, sem getur leitttil aukinnar líkamlegar
vanabindingar. Efni sem hamla ákveðin lifrarensim (sérstaklega cýtókróm P450) geta aukið áhrif sumra svefnlyfja. Zolpidem er niðurbrotið af mörgum lifrarcýtókróm P450
ensímum: aðallega ensímið CYP3A4 með aðstoðar CYP1A2. Lyfhrif zolpidems minnka þegar það er gefið samhliða rifampicíni (sem örvar CYP3A4). Hinsvegar þegar
zolpidem var gefið með ítrakónazóli (CYP3A4 hemill) breyttust lyfhrif og lyfjahvörf ekki marktækt. Klínisk þýðing þessara niðurstaðna er óþekkt. Annað: Þegar zolpidem
var gefið með warfaríni, dígoxíni, ranitidíni eða címetidíni sáust engar marktækar lyfjahvarfa milliverkanir.4.6 Meðganga og brjóstagjöf: Þrátt fyrir að dýratilraunir hafi ekki
sýntvansköpun eðafósturskemmandi áhrif, hefuröryggi lyfsinsá meðgöngu ekki verið staðfest. Einsog öll önnur lyf skal forðast notkun zolpidemsá meðgöngu sérstaklega
á fyrsta þriðjungi. Ef lyfið er gefið konu á barneignaraldri, á að upplýsa hana um að hafa samband við lækni ef hún óskar eftir, eða heldur, að hún sé þunguð. Ef nauðsynleg
er að gefa zolpidem á síðasta hluta meðgöngu eða í fæðingu, getur nýburinn orðið fyrir lyfjafræðilegum áhrifum lyfsins og áhrif svo sem hitalækkun, minnkuð vöðvaspenna
og væg öndunarbæling geta komið fram. Smá magn af zolpidemi finnst í brjóstamjólk. Því eiga konur með barn á brjósti ekki að nota zolpidem. 4.7 Áhrif á hæfni til aksturs
og notkunar véla: Vara skal ökumenn og stjórnendur véla, eins og við notkun annarra svefnlyfja, um mögulega hættu á syfju morguninn eftir meðferðina. Til þess að halda
þessari hættu í lágmarki er mælt með fullum nætursvefni (7-8 klst.). 4.8 Aukaverkanir: Vísbendingar eru um skammtaháð samband milli aukaverkana, sem tengjast notkun
zolpidems, sérstaklega ákveðin áhrif á miðtaugakerfi. Eins og ráðlagt er í kafla 4.2, ættu þær að vera færri, ef zolpidem er tekið rétt áður en gengið er til náða eða þegar
komið er upp í rúm. Þær koma oftast fram hjá eldri sjúklingum. Syfja yfir daginn, minnkuð árvekni, rugl, þreyta, höfuðverkur, svimi, vöðvaslappleiki, skortur á samhæfingu
vöðva eða tvísýni. Oftast koma þessar aukavekanir fram við upphaf meðferðar. Einstaka sinnum hefur verið greint frá öðrum aukaverkunum s.s. meltingartruflunum,
breytingu á kynhvöt og húðsvörunum. Minnisleysi: Framvirkt minnisleysi getur komið fram við notkun meðferðarskammta, hættan eykst við hærri skammta. Áhrif
minnisleysis getur tengst óviðeigandi athöfnum. Geðræn og þverstæð viðbrögð: Viðbrögð eins og eirðarleysi, órósemi, pirringur, árásargirni, ranghugmyndir, bræði,
martraðir, ofskynjanir, óviðeigandi atferli, svefnganga, og aðrar atferlisaukaverkanir geta komið fram þegar zolpidem er notað. Þessi viðbrögð koma oftar fram hjá
öldruðum. Ávanabinding: Þegar zolpidem er notað samkvæmt ráðleggingum um skömmtun, meðferðarlengd og varúðarráðstöfunum, er hætta á fráhvarfseinkennum eða
bakslagi f lágmarki. Hinsvegar hafa fráhvarfseinkenni og bakslag komið fram hjá sjúklingum sem hafa sögu um misnotkun áfengis eða lyfja eða eru með geðtruflanir og
hafa notað zolpidem í meira magni en ráðlagðir skammtar segja til um. Þunglyndi: Þunglyndi, sem þegar ertil staðar, getur komið fram á meðan zolpidem er notað. Þar
sem svefnleysi getur verið einkenni þunglyndis þarf að endurmeta sjúklinga ef svefnleysið heldur áfram. 4.9 Ofskömmtun: í tilkynningum um ofskömmtun á zolpidemi einu
sér, hefur skerðing á meðvitund spannað frá höfga í létt dá. Einstaklingar hafa náð sér fullkomlega eftir 400 mg ofskömmtun af zolpidemi. Tilvik ofskömmtunar þar sem
zolpidem ásamt mörgum öðrum miðtaugakerfisbælandi lyfjum (þ.á m. alkóhóli) hafa endað með alvarlegum einkennum, og jafnvel dauða. Veita skal almenna einkenna-
og stuðningsmeðferð. Ef ekki ertaliðtil bótaaðskola maga, skal gefa lyfjakol til aðdraga úrfrásogi. Ekki skal gefa róandi lyf jafnvel þótt örvun komifram. íhuga má notkun
flúmazeníls ef mjög alvarleg einkenni koma fram. Hinsvegar, getur gjöf flúmazeníls ýtt undir einkenni frá taugakerfi (krampar). 5. LYFJAFRÆÐILEGAR UPPLÝ5INGAR: 5.1
Lyfhrif: Flokkun eftir verkun: Svefnlyf og róandi lyf (hypnotica og sedativa), ATC flokkur: N 05 CF 02. Zolpidem er ímídazópýridín sem aðallega binst omega-1 viðtaka
undirtegund (einnig þekkt sem benzódíazepín-1 undirtegund) sem samsvarar GABA-A viðtökum sem innihalda alpha-1 undireiningar, hinsvegar bindast benzódíazepínin
bæði omega-1 og omega-2 undirtegundunum. Stilling á klóranjóna göngum í gegnum þennan viðtaka leiðirtil sérvirkra róandi áhrifa sem sjást við gjöf zolpidems. Þessum
áhrifum ersnúið viðaf flúmazeníli sem hefur gagnstæða verkun benzódíazepíns. í dýrum: Sértæk binding zolpidemsviðomega-1 viðtaka getur útskýrt nær algjöra vöntun
á vövaslakandi og krampastillandi áhrifum hjá dýrum við svæfandi skammta. Þessi áhrif sjást venjulega hjá benzódíazepínum sem eru ekki sértækir fyrir omega-1. Hjá
mönnum: Zolpidem minnkar/dregur úr svefntöf og fjölda uppvaknana, það eykur lengd svefnsins og eykur svefngæði. Þessi áhrif eru tengd hefðbundnu heilarafriti, sem er
öðruvísi hjá benzódíazepínunum. í rannsóknum sem mældu prósentuhlutfall tíma sem eytt var í hverju svefnstigi, hefur almennt verið sýnt að zolpidem viðheldur
svefnstigunum. Við ráðlagða skammta hefur zolpidem engin áhrif á REM-svefn (draumsvefn). Viðhald djúps svefns (stig 3 og 4 - hægur-bylgjusvefn) gæti verið vegna
sérhæfðrar bindingar zolpidems við omega-1. Öll þekkt áhrif zolpidems ganga til baka við gjöf flúmazeníls sem hefur gagnstæða verkun við benzódíazepín. 5.2 Lyfjahvörf:
Zolpidem bæði frásogast hratt og svæfandi verkun hefst fljótt. Hámarksplasmaþéttni næst eftir 0,5 og 3 klst. Eftir inntöku er aðgengi um 70% vegna miðlungs mikilla fyrstu
hringrásar áhrifa í lifur. Helmingunartími er stuttur, meðaltalsgildið er 2,4 klst. ( ±0,2 klst.) og verkunarlengd er allt að 6 klst. Við lækningalega skammta eru lyfjahvörf
zolpidems línuleg og breytast ekki við endurtekna gjöf. Prótein binding er 92,5% ± 0,1%. Dreifingarrúmmál hjá fullorðnum er 0,54%±0,02 l/kg og lækkar í 0,34±0,05 l/kg
hjá öldruðum. Öll umbrotsefnin eru lyfjafræðilega óvirk og útskiljast í þvagi (56%) og í saur (37%). Auk þess trufla þau ekki plasmabindingu zolpidems. Athuganir hafa sýnt
að ekki er hægt að úthreinsa zolpidem með himnuskilun. Þar sem plasmastyrkur zolpidems hjá öldruðum og hjá þeim sem eru með skerta lifrarstarfsemi eykst, getur þurft
að breyta skömmtum hjá þeim. Hjá sjúklingum með skerta nýrnarstarfsemi, hvort sem þeir eru í himnuskilun eða ekki, er meðalmikil lækkun á útskilnaði. Engin áhrif eru á
aðrar lyfjafræðilegar stærðir. 6. LYFJAGERÐARFRÆÐILEGAR UPPLÝSINGAR: 6.1 Hjálparefni: Mjólkursykur, örkristallaður sellulósi, metýlhýdroxýprópýlsellulósi,
natríumsterkjuglykóllat, magnesíumstearat. Samsetning filmuhúðar: Metýlhýdroxýprópýlsellulósi, títaníum tvíoxíð (E171), pólýoxýetýleneglýkól 400. 6.2 Ósamrýmanleiki:
Ekki þekktur. 6.3 Geymsluþol: 5 ár. 6.4Sérstakarvarúðarreglurviðgeymslu: Geymistviðstofuhita. 6.5 Gerðílátsog innihald: Þynnupakkningar. 6.6 Leiðbeiningar um notkun
og meðhöndlun < og förgunx Engin sérstök fyrimæli. 7. HANDHAFI MARKAÐSLEYFIS: Sanofi-Synthelabo AB, Box 141 42, 167 14 Bromma, Svíþjóð. Umboðsaðili á íslandi:
Vistor hf - Hörgatúni 2 - 210 Garðabæ. 8. NÚMER ( SKRÁ EVRÓPUSAMBANDSINS YFIR LYF: MTnr. 880059 (IS) 9. DAGSETNING FYRSTU ÚTGÁFU MARKAÐSLEYFIS/
ENDURNÝJUNAR MARKAÐSLEYFIS: Lyfið var fyrst skráð: 1. október 1992. Markaðsleyfi var endurnýjað 16. september 2002. Gildistimi markaðsleyfis: 16. september 2002 til
16. september 2007.10. DAGSETNING ENDURSKOÐUNARTEXTANS: 27. febrúar 2003. Pakkningastærðir og hámarksverð úr apóteki eru: 10 mg 20stk 890 kr; 10 mg lOOstk
(sjúkrahússpakkning) 2.610 kr..
I