Læknaneminn - 01.04.2010, Side 6
Óljós líkamleg einkenni og leiðir til að
bceta tjáskipti sjúklinga og lcekna.
Engilbert Sigurðsson
Yfirlæknir við geðsvið Landspítala,
dósent í geðlæknisfrœði við Lœknadeild
Háskóla Islands.
Líkamleg einkenni og kvartanir sem ekki finnast vefrænar
skýringar á við sögutöku, skoðun og rannsóknir eru afar algeng,
raunar svo algeng að þau eru samofin daglegu lífi tugþúsunda
Islendinga. Slík einkenni spanna vítt svið, allt frá vægum
ónotum sem flestir eiga auðvelt með að umbera án þess að leita
til læknis, til svæsinna og mjög hamlandi einkenna sem geta
valdið alvarlegri og stundum langvinnri fötlun. Einstaklingar
með óljós líkamleg einkenni (ÓLE) leita sumir endurtekið til
lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna, fá og taka iðulega
lyf til að draga úr vanlíðan sinni, geta þurft veikindavottorð
og fara sumir á örorku af þessum sökum. ÓLE svara stundum
réttri nálgun lækna vel á stuttum tíma, en krefjast stundum
langtíma meðferðar og endurhæfingar líkt og á við um marga
aðra sjúkdómaflokka.
Faraldsfræðilegar rannsóknir erlendis frá hafa sýnt að fjórir
af hverjum fimm hafa fundið fyrir a.m.k. einu eða fleirum ÓLE
vikuna áður en spurt var og hjá einum af hverjum fimm var eitt
eða fleiri einkenni af þessum toga að valda verulegri truflun í
daglegu lífi1. I rannsókn Hiller og félaga á allstóru úrtaki 14
ára og eldri Þjóðverja reyndist marktækt samband á milli þess
að hafa fundið fyrir slíkum einkennum og vera kvenkyns, eldri
en 45 ára, með minni menntun, lægri tekjur og að búa í sveit .
Meðal einkenna sem höfðu a.m.k. 20% algengi vikuna áður en
spurt var voru t.d. bakverkir, höfuðverkir, liðverkir, verkir í
útlimum, fæðuóþol og áhugaleysi á kynlífi auk kynjabundinna
einkenna eins og verkja tengdum blæðingum, ristruflunum og
truflunum á sáðláti.
I alþjóðlegum sjúkdómaflokkunarkerfum eins og ICD-
102 og DSM-IV-TR’’ falla ÓLE undir flokkinn „somatoform
disorders“ (tafla 1) sem er eins konar regnhlífarhugtak yfir
víðfeðman flokk kvartana sem ekki finnast greinilegar líkam-
legar skýringar á. Slík flokkun útilokar þó ekki að annað en
að sálrænir eða félagslegir þættir eigi þátt í tilurð einkennanna.
Skipta nöfn sjúkdómaflokka máli ?
Ymsir hafa bent á fræðilega og praktíska annmarka flokk-
unarinnar „somatoform disorders“4. Segja má að raunveru-
leikinn sé flóknari en s vo að annars vegar leiti til lækna sjúklingar
Tafla 1
Flokkun DSH-IV-TR á somatoform disorders
Somatization disorder
Conversion disorder
Hypochondriasis
Pain disorder
With psychologícal factors___________________________
With both psychological factorsanda generalmedicalcondition
Body dysmorphic disorder______________________________
Undifferentiated somatoform disorder
Somatoform disorder not otherwise specified
með með skýr líkamleg einkenni á grunni sannreynanlegra
vefrænna sjúkdóma og hins vegar einstaklingar með líkamleg
einkenni sem ekki stafa af vefrænum sjúkdómum heldur eigi
sér einvörðungu sálrænar skýringar. Sjaldan er hægt að útiloka
með vissu að smávægileg lífeðlisfræðileg röskun geti ekki verið
eins konar fræ sem streita, kvíði, þunglyndi eða önnur sálræn
einkenni fá til að vaxa eða trufla einstaklinginn og hans daglega
líf meira en áður. Sharpe og Mayou hafa einnig bent á ýmsar
praktískar hindranir sem fylgi notkun heitisins „somatoform
disorders"4. Þar vegur þungt að margir sjúklingar eiga erfitt
með að sætta sig við að fá greiningu sem þeim finnst kollvarpa
þeim hugmyndum sem þeir hafa um ástæður vanlíðunar
sinnar. Þeir finna fyrir líkamlegum einkennum, oft verkjum,
og gera (eðlilega) ráð fyrir að fyrir því séu frekar líkamlegar
orsakir en sálrænar. Sharpe og Mayou leggja raunar til að heitið
„somatoform disorders“ verði lagt fyrir róða og tekin frekar
upp flokkunarheiti. Best sé að þau séu umfram allt lýsandi,
geri ekki skilyrðislaust ráð fyrir að orsakir einkennanna séu
eingöngu sálrænar og sem sjúklingar geti betur fellt sig við
og stuðla frekar að árangursríku meðferðarsamstarfi læknis
og sjúklings4. Tillaga þeirra er í anda þess sem flestir læknar
gera að líkindum í daglegum samskiptum sínum við sjúklinga.
Reynslan hefur kennt mörgum læknum að vanda verður orðaval
þegar einfalda á vandasöm samskipti fremur en flækja þau,
0
-•