Læknaneminn - 01.04.2010, Side 35
GUÐRUN MARIA
JÚNSOÚniR
DÁNSÍNNSc
Guðrún Maria Jónsdóttir er 24 ára og
er á fimmta ári í læknisfræðinni. Hún er
fædd og uppalin i Vesturbæ Reykjavíkur
en hefur búið undanfarin tvö ár í
miðbænum. Að eigin sögn fór hún hina
dæmigerðu Vesturbæjarleið á námsferli
sínum, það er að segja gekk í Melaskóla,
Hagaskóla og útskrifaðist sem stúdent
frá Menntaskólanum við Reykjavík. Nú
er hún stödd í Bandaríkjunum, nánar
tiltekið í Boston, þar sem hún ákvað
að taka sér ársfrí frá læknisfræðinni og
sinna rannsóknum og sínu helsta áhuga-
máli, dansi. Hana langaði að fara utan
að afla sér þekkingar og reynslu í klín-
ískum rannsóknum, ásamt því að læra
faraldsfræði og tölfræði. Hún sinnir
rannsóknum á Brigham and Women's
hospital sem er næst stærsta kennslu-
sjúkrahús Harvard Medical School.
Á hennar yngri árum voru fimleikar
aðaláhugamálið og æfði hún af kappi og
keppti þar til hún varð 19 ára gömul.
Eftir það fékk hún áhuga á alls kyns
líkamsrækt og útivist. Hún hefur kennt
leikfimi í fjögur ár í Nordica Spa.
Fyrir um tveimur og hálfu ári hafði
hún spurnir af Háskóladansinum, dans-
félagi fyrir háskólanema. Þar er boðið
upp á ódýra danstíma, bæði í par- og
einstaklingsdönsum. Hún ákvað að prófa
og eftir það var ekki aftur snúið, dansinn
var hinn nýi lífstíll. Hún líkir dansinum
við að læra nýtt tungumál þar sem hún
og dansherrann þurfa að tala saman
til að geta swingað. Einnig veitir hann
mikla útrás, bæði líkamlega og andlega
sem henni finnst lífsnauðsynleg með
náminu við læknadeild.
Við Háskóladansinn eru kenndir hinir
ýmsu dansar; swingdansar svo sem
Boogie Woogie, Swing and Rock’n’Roll
og Lindy hop en einnig salsa, hip hop
og contemporary dans. Guðrún María
hefur áhuga á þeim flestum og dansar
marga þeirra. I mestu uppáhaldi er þó
swing pardans og þá helst West Coast
Swing, sem er þó ekki kenndur reglulega
í Háskóladansinum. Hálfu ári eftir
að hún byrjaði að dansa kynntist hún
dansfélaga sínum, Hrafnkatli Pálssyni
og deila þau sameiginlegri ástríðu fyrir
West Coast Swing dansinum. Guðrún
María og Hrafnkell sóttu um styrk í
gegnum Háskóladansinn til Leonardo
námsáætlunarinnar en það er styrkur
veittur á vegum menntaáætlunar Ev-
rópusambandsins sem Islendingar eiga
aðild að í gegn um EES samninginn.
Þau fengu ríflegan styrk til að byggja
upp West Coast Swing á Islandi og
fóru þau til London tvisvar sl. sumar
á námskeið og í einkakennslu. Einnig
hafa þau farið á eigin vegum til London,
Bandaríkjanna og Frakklands til að æfa
og keppa og þannig fengið góða reynslu
sem dansarar til að geta kennt hér á
landi. Afraksturinn hafa verið sumar-
og helgarnámskeið í Reykjavík sem
hafa verið mjög vel sótt og mikil ánægja
verið með þau. Leonardo áætlunin er
ætluð íslendingum meðal annars til að
fara utan og koma með nýja þekkingu
til landsins og er áhugasömum bent á
www.leonardo.is. Guðrún Maria segir
að áhuginn á West Coast Swing fari
sífellt vaxandi en hann sé mjög vinsæll
í Bandaríkjunum og breiðist hratt út
um Evrópu. Dansinn er helst dansaður
við blús en einnig við nútíma popp
tónlist sem gerir hann mjög brúklegan
að hennar sögn, það er að segja hann er
ekki háður ákveðnum danskvöldum þar
sem sérstök danstónlist er spiluð, líkt og
aðrir swingdansar eða salsa svo dæmi
séu tekin.
En af hverju læknisfræði? Guðrún
María segir að það hafi verið margt
sem hana langaði að læra en ekki
margt sem hana langaði að vinna við.
Hún hafði áhuga á fara í stærðfræði,
verkfræði og önnur raungreinafög og
einnig arkitektúr en sá sig ekki fyrir sér
vinna við tölvu allan liðlangan daginn.
Læknisfræði hafi upp á svo margt að
bjóða enda gríðarlega víðfeðmt fag,
spennandi starfsvettvangur og endalaus
tækifæri í boði. Hún segir að sig hafi
langað að vinna með fólki og í teymi.
Hún sér sig fyrir sér í framtíðinni sinna
klínísku starfi sem læknir og samfara því
sinna rannsóknarvinnu og skrifa greinar.
Draumurinn er að geta miðlað því sem
hún hefur lært til yngri kynslóða og það
á við bæði um læknisfræðina og dansinn.
Monika Freysteinsdóttir