Læknaneminn - 01.04.2010, Page 40

Læknaneminn - 01.04.2010, Page 40
Hin fjögur fræknu a Valbor; Gleðin ieyndi sér Dagurinn er 14. mars 2009, staðurinn er Grand Hótel, við erum stödd á árshátíð Félags Lœknanema. Það skynsamlegasta sem okkur datt í hug að gera á þessum tíma var að taka leigubíl til Keflavíkur, hoppa upp í flugvél og fara beinustu leið til Lundar. Hrein skyndiákvörðun! Nei grín. En við fórum samt, pann 15. mars. Rannsóknarverkefnið Rannsóknarverkefni á 3. ári í Læknadeild er unnið að vori og í stuttu máli sagt virkar kerfið þannig að mörg verkefni frá íslenskum læknum eru í boði sem sett eru í pott og valið úr þeim. Þó eru alltaf nokkrir sem vilja skella sér í smá útrás, stökkva út úr hversdagsleikanum og freista gæfunnar annars staðar í heiminum. Um haustið á 3. ári er ferlið kynnt en þá er lítill tímarammi fyrir þá sem vilja finna sér verkefni sjálfir til að skila inn umsókn og fá hana samþykkta. Fyrst er að íhuga hvert hugurinn leitar og hvar áhugasviðið liggur þegar kemur að rannsóknum. Hentugast þótti okkur að hafa samband við eldri nema sem gerðu rannsókn á sömu slóðum og við kusum. Rannsóknarverkefni fyrri ára er hægt að nálgast á skrifstofu Læknadeildar og þau er hægt að nýta sér til að grennslast fyrir um fyrri nemendur sem lagt hafa land undir fót í þessum tilgangi. Styrki má sækja um frá Erasmus fyrir Evrópulöndin og Nordplus fyrir Norðurlöndin, en umsóknarfresturinn rennur út 1. mars fyrir komandi vetur. Fyrir læknanema þýðir þetta að þeir þurfa að vera komnir með verkefni í hendurnar og sækja um styrkinn heilu ári áður en farið er út til rannsókna. Þessar upplýsingar voru okkur ekki kunnar þegar við fórum á stúfana til verkefnaleitar en okkur til happs höfðu margir styrkþegar hætt við sínar ferðir og fengum við því undanþágu til að sækja um styrk um haustið. Við fengum öll fullan styrk, 2000 evrur frá Erasmus. Umsóknarferlið er dálítið vesen og mikið pappírsflóð, en vel þess virði. Ferlið fer allt í gegnum Alþjóðaskrifstofu stúdenta hjá HÍ (www.hi.is/is/skolinn/ althjodaskrifstofa) og hefur verkefna- stjóri þar umsjón með stúdentaskiptum og styrkjum. Lundur Lundur er mikill háskólabær og því þéttsetinn á veturna, enda eykst íbúa- fjöldinn þá um helming. Því hefði verið heppilegt að byrja snemma í leitinni að húsnæði, en við enduðum öll hvert í sínu horni bæjarins vegna hins litla undir- búningstíma. Eftir á að hyggja hefði verið skemmtilegra að búa nálægt hvert öðru eða jafnvel leigja saman. Sum okkar voru svo lánsöm að fá skjól hjá ættingjum eða vinum en önnur fundu sér íbúð á netinu á eftirfarandi slóðum; www.blocket.se og www.islund.se. Islensku læknarnir sem búa í Lundi hafa oft reynst hjálplegir og fannst þeim ekki tiltökumál að leggja nokkrum læknanemum lið þegar við leituðum til þeirra. Sama hvort við þekktum þá eða ekki. Það er mikil hjólamenning í Svíþjóð og þar sem Lundur er ekki stór bær tekur það um það bil korter að hjóla frá miðbænum út í jaðar bæjarins í hvaða átt sem er. Því var kjörið að taka með eigið hjól eða kaupa sér ódýrt, notað hjól á www.blocket.se. Það var mjög mikilvægt að kaupa sér stóran og sterkan risalás því það er bófafélag frá Malmö sem kemur reglulega til Lundar á sendiferðabíl og hrúgar í hann öllum (ÖLLUM) fall- egum, illa læstum íslenskum hjólfákum. Strætókerfið innan bæjarins er einnig mjög gott og einfalt og kortin á hagstæðu verði og gilda auk þess um allan Skán. Lestarkerfið milli Lundar og litlu bæjanna í kring var stopult en dugði þó vel í lengri ferðir. Lif okkar i Lundi Vorið byrjaði snemma og við nýttum frítímann vel til að skoða okkur um. í
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.