Læknaneminn - 01.04.2010, Síða 58

Læknaneminn - 01.04.2010, Síða 58
Sjúkrasaga 22 ára kona, GOPO, varð vör við blæðingu eftir samfarir. Hún hafði hætt á p-pillunni 4 mánuðum áður og höfðu tíðir verið heldur óreglulegar eftir það. Hún tengdi þessa blæðingu ekki við tíðir. Heilsufarssaga Hraust stúlka og tók engin lyf. Hún hafði farið síðast í PAP strok frá leghálsi 3 árum áður sem reyndist vera eðlilegt. Hún hafði greinst með klamydíusýkingu 2 árum áður og fékk meðferð við henni. Engin saga um aðgerðir á kvenlíffærum. Hafði farið í aðgerð á nefi 3 árum áður. Hún reykir ekki og neytir áfengis í hófi. Skoðun Við kvenskoðun sést eðlileg vagina. Niður úr leghálsi skagar fyrirferð sem blæddi ríkulega frá við snertingu. Rannsóknir Blóðrannsóknir reyndust vera eðlilegar, blóðstatus og elektrólýtar. Tekið var vefjasýni frá leghálsinum sem sent var í vefjafræðirannsókn og reynist það vera kirtilþekjukrabbamein (e. adenocarci- noma). Hún var send í segulóm-skoðun (e. MRI) sem sýndi æxli í leghálsi og þvermál þess var undir 4cm sem samsvarar gráðu IB. Eitlastöðvar virtust eðlilegar samkvæmt segulómskoðun. Skurðaðgerð Akveðið var vegna niðurstaðna vefjasýnis og segulómskoðunar að fara í algert leg- nám (e. radical hysterectomy). Sú aðgerð felur í sér algert brottnám á legi, leghálsi, efri hluta vaginu, parametrium og eitla í grindarholi. Gangur eftir aðgerð Henni gekk vel eftir aðgerð og varð fljótlega fótafær. Hún hafði nokkra verki en þeir gengu yfir. Útskrifaðist 4 dögum eftir aðgerð við ágæta líðan. Svar frá meinafrœðideild Skurðbrúnirnar voru fríar. Allir eitlar reyndust vera neikvæðir en sogæðaíferð sást. Hún telst því fullmeðhöndluð. Umrœða Leghálskrabbamein er annað algengasta krabbamein kvenna á heimsvísu og greinast tæplega 500 þúsund ný tilfelli árlega og fer fjölgandi. Hæsta tíðnin er í þróunarlöndunum, þá í Afríku sunnan Sahara, í Suður-Ameríku og Suður-Asíu þar sem 4 af hverjum 5 konum sem greinast í heiminum búa. Á Vesturlönd- um hefur tíðnin farið lækkandi með reglubundinni leit. Á íslandi hefur tíðnin lækkað mikið eftir að regluleg leit hófst árið 1964. Á árunum 2003-2007 voru að meðaltali 14 ný tilfelli árlega á íslandi, langflestar greindust á aldursbilinu 20- 40 ára. Meðalaldur við greiningu voru 46 ár. Konur eru nú boðaðar reglulega í leit á aldrinum 20-69 ára þar sem tekið er frumustrok (PAP-strok) frá leghálsi til að greina frumubreytingar1. Vefjagerð leghálskrabbameina eru í 75-80% tilfella flöguþekjukrabbamein (e. squamous cell carcinoma) og 15-20% kirtilþekjukrabbamein (e. adenocar- cinoma). Krabbameinið er stigað eftir því hvort það eru bundið við legháls, aðliggjandi vefi s.s. leggöng, paramet- rium, blöðru og endaþarm og hvort fjar- meinvörp séu til staðar. Helstu einkenni krabbameinsins eru blæðing eftir sam- farir eða áreynslu, útferð (hvítleit eða jafnvel blóðlituð), þrýstingeinkenni frá þvagblöðru, verkir, bjúgur á fótum og megrun. Helstu áhættuþættir legháls- krabbameins eru HPV kynfærasýkingar, margir rekkjunautar, ástundun kynlifs hafin snemma, reykingar og P-pillan3. Einstaklingar smitast af human papilloma veirunni (HPV) við samfarir ogerhún algengasta sýkingin sem smitast með kynlífi í Bandaríkjunum. Talið er að um 75-80% allra kvenna smitist af HPV veirunni einhvern tímann á lífsleiðinni og er sýkingin langalgengust hjá konum undir 25 ára:. Ónæmiskerfið losar langflestar konur við vírusinn innan tveggja ára en sumar sýkingar verða þrálátar og geta valdið krabbameinum og öðrum sjúkdómum. Mismunandi undirflokkar veirunnar eru tengdar við mismunandi sjúkdóma. Svokallaðir há- áhættu undirflokkar, 16 og 18, eru taldir valda yfir 97% af öllum legháls- krabbameinum. Sömu flokkar veirunnar valda einnig allt að 40-50% af öllum krabbameinum á ytri kynfærum kvenna og um 70% af leggangakrabbameinum. HPV undirflokkar 6 og 11 eru taldir lágáhættustofnar en valda um 90% af öllum kynfæravörtum3. Talið er að líkur- nar á því að ungar stúlkur sem stunda kynlíf smitist af hááhættu undirflokkum veirunnar séu tvöfalt meiri en af lágáhættu undirflokkum. Mikil umræða hefur átt sér stað um hvort bólusetja eigi allar unglingsstúlkur á aldursbilinu 12-15 ára fyrir HPV, áður en þær stunda kynlíf í fyrsta skipti. HPV bóluefni eru talin minnka þá sjúkdómsbyrði sem HPV-sýkingar valda, ásamt því að draga verulega úr þörf á reglubundinni leit að forstigs- breytingum3. Rannsóknir hafa sýnt að bólusetning gegn hááhættu undir- flokkum HPV, 16 og 18, myndi minnka heildartíðni leghálskrabbameins um 60% og leghálskrabbameins beint tengt þessum hááhættu undirflokkum um í allt að 95% tilfella4. Tvö bóluefni eru á markaðnum, annað er Cervarix® sem ver gegn 16 og 18 og hitt er Gardasil® sem ver gegn 16 og 18 en einnig lág- áhættu gerðunum 6 og 11. Monika Freysteinsdóttir 5. árs lceknanemi Heimildir 1. Vefur krabbameinsskrár á íslandi. 2010,1. apríl. Slóðin er: www. krabbameinsskra.is. 2. Spitzer, Mark. 2006. Human Papillomavirus: Epidemiology, Natural history and Clinical Sequelae. OBG management, júlí hefti. 3. Uptodate.com 4. Gold, Michael A. 2006. Current Cervical Cancer Screening Guidelines and Impact of Prophylactic HPV Vaccines. OBG management, júlíhefti.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.