Læknaneminn - 01.04.2010, Blaðsíða 62
Það má í raun segja að þegar grunnnámi í læknisfræði lýkur
sér aðeins hálfur björninn unninn. Fæstir láta þar við sitja,
heldur halda utan til framhaldsnáms. Á undanförnum árum
hafa möguleikar íslenskra unglækna til þess að hefja sérnám
hér á landi aukist. Það þykir oft fýsilegur kostur fyrir ungt
fólk sem er að koma sér upp fjölskyldu að geta ýtt úr vör
hér heima, þar sem viðkomandi þekkir til staðarhátta, talar
tungumálið reiprennandi og amma og afi geta stokkið til
og passað. í flestum tilvikum er um að ræða tímabundnar
ráðningar þar sem tíminn hér á spítalanum fæst að einhverju
eða fullu leyti metinn í því framhaldsnámi sem viðkomandi
læknir heldur til, en sumar deildir bjóða upp á fullmótað
program og veita sérfræðileyfi að loknu námi. Hér má líta á
stutta samantekt á því hvaða dyr standa unglæknum opnar
hér á landi.
Lyflœknisfrœði
Landspítalinn býður upp á þriggja ára nám í almennum
lyflækningum og er það hugsað sem grunnur fyrir þá sem
hafa hug á að sérhæfa sig í einhverri grein lyflækninga, en
einnig er þetta ákveðin þjálfun í þeim vinnubrögðum sem
viðhöfð eru innan lyflæknisfræðinnar. Á lyflækningasviðum
eru 26 stöður fyrir deildarlækna, að jafnaði eru 12 á fyrsta
ári, 8 á öðru ári og 6 á þriðja ári. Þá eru að auki 18 stöður
fyrir aðstoðarlækna (kandídata). Námið tekur þrjú ár og
samanstendur af róteringu milli legudeilda, en einnig fá
deildarlæknar reynslu á göngudeild, ráðgjöf og bráðamóttöku.
Markmiðið er að unglæknarnir fái sem mesta innsýn i helstu
greinar lyflæknisfræðinnar. Sérfræðingar veita umsögn eftir
dvöl á hverri deild. Þá er fyrirkomulagið með þeim hætti að
deildarlæknar i prógrammi fá vaxandi ábyrgð eftir því sem
líður á námið.
Bókleg kennsla er metnaðarfull og samanstendur af
fræðslufundum, tilfeilafundum, MKSAP fundum og
fyrirlestrum. Að auki er skylda í náminu að deildarlæknar
framkvæmi rannsóknir og hefur verið boðið upp á stuðning
við rannsóknarvinnu, m.a. undirbúningsnámskeið í tölfræði
og gagnrýnni nálgun heimilda. í lok hvers námsárs þreyta
deildarlæknar árlegt próf Internal Medicine In-Training
Examination sem fengið er frá American Board of Internal
Medicine og fá að auki heildarumsögn um frammistöðu
á árinu. Enn sem komið er hefur námið fengist metið á
Norðurlöndunum, en lítil reynsla er komin á það annars staðra
í Evrópu. Stefnt er að því að deildarlæknar sem ljúka þriggja
ára námi í lyflækninum taki evrópska sérfæðiprófið (European
Federation of Internal Medicine Diploma Examination) eða
breska MRCP prófið á síðasta misseri sínu i náminu. Náminu
lýkur með umsögn um frammistöðu og útgáfu skírteinis.
Sknrðlœknisfrceði
Á skurðdeildum Landspítalans eru 13-15 stöður í boði
fyrir unglækna og þar stendur til boða að hefja grunnnám
í skurðlækningum. Ekki er þó um formlegt sérnám í
skurðlæknisfræði að ræða, en boðið er uppá tveggja ára
program þar sem starfað er á skurðdeildum Landspítalans,
ýmist á legudeildum, göngudeild, bráðamóttöku og skurð-
stofu. Þá er ætlast til þess að deildarlæknar á skurðdeild
aðstoði við skurðaðgerðir og nái tökum á einfaldari verkum.
í sumum tilfellum hafa unglæknar getað ráðið sig á ákveðnar
skurðdeildir stefni þeir á nám í því fagi og er þá miðað við
ráðningu í hálft ár eða lengur í senn . Margir sem stefna á
framhaldsnám í skurðlækningum geta róterað á HNE,
kvennadeild og svæfingu til að bæta við þekkinguna og greiða
fyrir umsókn um stöðu erlendis.
Bókleg kennsla á skurðsviðinu er á formi fyrirlestra,
greinafunda og umræðufunda, en einnig eru deildarlæknar
hvattir til að vinna að rannsóknum, þó ekki sé gerð krafa um
slíkt. Reynsla á skurðdeild hefur alla jafna fengist metin að fullu
eða hluta til upp í sérnám á mörgum stöðum á Norðurlöndum.
Bæklunarlækningar: Unglæknar sem stefna á sérnám í
bæklunarlækningum geta ráðið sig í 1 -2 ár á bæklunarskurðdeild
Landspítalans og fengið reynsluna á deildinni metna víða á
Norðurlöndunum. Ekki er þó í boði formlegt námsprogram þar
en verið er að byggja upp slíkt program að sænskri fyrirmynd.
Deildarlæknar fá á deildinni úthlutaðan handleiðara og er
þá reynt að raða saman sérfræðingi og deildarlækni sem eiga
skap saman. Handleiðarinn heldur þá utan um program
unglæknisins og veitir honum umsögn, en einnig hefur
tíðkast að unglæknar fái að spreyta sig á bráðaaðgerðum undir
handleiðslu síns mentors, séu þeir saman á vakt. Þá eru gerðar
kröfur um að deildarlæknar í programi á bæklunardeild nái
færni í einföldum aðgerðum og haldi möppu yfir afrek sín.
Bókleg kennsla á deildinni er í höndum sérfræðinga, sem halda
fyrirlestra fyrir deildarlækna.
Háls- nef- og eyrnalœknisfrœði
Tvær stöður eru fyrir deildarlækna á HNE deild Landspítalans
og er fólk oftast ráðið í hálft til eitt ár í senn. Flestir sem ráða
sig á deildina stefna á sérnám í HNE, en einnig hefur reynslan
gangast þeim sem hyggja á sérnám í heimilislækningum eða í
svæfingarlækningum. Um er að ræða óformlegt program sem
byggist á starfi á deildinni og er reynt að finna viðfangsefni
við sem hentar reynslu hvers og eins. Ætlast er til þess að
eftir að hafa starfað á deildinni hafi unglæknar náð tökum á
greiningu og meðhöndlun einfaldra og algengra vandamála
í greininni. Bókleg kennsla er formi vikulegra fyrirlestra
og sjá deildarlæknar um að undirbúa fyrirlestra og kynna
vísindagreinar.