Læknaneminn - 01.04.2010, Side 67

Læknaneminn - 01.04.2010, Side 67
Ég hef verið að velta píkunni fyrir mér. Þó ber ekki svo að skilja að ég hafi setið á spegli og skoðað sjálfa mig, nei, ég hef verið að skoða píkur allt um kring. Ég hef borið orðið píkuna undir konur og karla á öllum aldri, rætt útlit hennar og lögun, lykt og rakastig, leirað hana og teiknað. Þessi áhugi á píkunni vaknaði í kjöl- far heimildamyndar sem ég sá 2009 og heitir The Perfect Vagina. Myndin fjallar um lýtaaðgerðir á píkunni og þar spila innri barmar aðalhlutverk því þá á að minnka með skurði. Nú er þessi umræða um útlitslegar breytingar á píkunni fremur ný af nálinni hér á íslandi þrátt fyrir að aðgerðirnar hafi verið gerðar hér í þó nokkur ár. Umræðan um píkuna á sér langa sögu og sterkar rætur og oftar en ekki verið tengd við þankagang ákveðins hóps. Mín nálgun á umræðuna er ekki takmörkuð við fræðilegt sjónarhorn heldur nálgast ég hana einnig persónulega með spurningunum sem veltast um í mínum huga (líkt og efiaust annarra kvenna) „Er píkan mín afbrigðileg? Er ég öðruvísi en aðrar konur? Er ég ljót?“ A Læknadögum 2010 var haldið málþing um þessar tilteknu lýtaaðgerðir og margra mögulegra skýringa leitað. Aðgerðunum var lýst itarlega og rætt um fagurfræði skurðanna svo barmarnir fái ekki útlit er kennt er við „hundseyru“. Þá var einnig talað um marktæka aukningu í fyrirspurnum kvenna, á breiðu aldursbili, eftir slíkum aðgerðum. Skýringin? Sumir bentu á klámið og kröfur nútíma karlmannsins sem krefst þess að píkan sé afsteypa kvennana á tölvuskjánum. Þegar konur voru spurðar út í ástæðu aðgerðar þá báru þær ekki fyrir sig þrýsting karlmanns heldur fannst þeim píkan einfaldlega ljót eða óhentug sökum sýnileika eða annarra óþæginda. En hver er samanburður kvenna á hvað se ljót píka og hvað falleg? I erindi minu reyndi ég að rekja ýmsar mögulegar skýringar; allt frá kynfræðslu þar sem píkan er teiknuð ferskjubleik með litla skirskotun í raunveruleikann; til háreyðingar og fjölmiðlaímyndar af sléttri píku með engar sýnilegar fellingar eða skorur. Ég talaði um Barbie og Britney Spears, án þess þó að vera viss um hvað þær ættu sameiginlegt annað en að sýna báðar brjóstaskoru og rassaskoru en ekki földu píkuskoruna (einnig nefnt „kamel tá“). Án þess að veita nein bein svör um orsök og afleiðingar þá má samt geta sér til um ákveðin fylgnisambönd og má þá álykta að aðgengi að einsleitum píkum í kynferðislega opinskáu efni sem og kynfræðslu grunnskólanna hafi skekkt ímynd píkunnar. Hvar eru allar alvöru píkurnar?! Sambandið á milli líkama og sálar virðist vera að fjarlægjast með degi hverjum. Eina leiðin sem ég sé til að tengja þarna á milli er að ræða líkamann opinskátt og hreinskilnislega. Kynfærin eru hluti af líkamanum en sökum tengingar við siðferðislega viðkvæm málefni þá fær þessi líkamshluti oftar en ekki ófullnægjandi útskýringu og kennslu. Ég vil nota kynfæri en ekki bara píka því typpin þarf líka að ræða, sérstaklega á tímum stærðardýrkunar. Ég legg til að nú byrjum við á byrjuninni og ræðum kynfæri við börn, unglinga, fullorðna og heldra fólk. Kennum fólki að þekkja sinn eigin líkama, lesa og læra inn á hann og bera virðingu fyrir honum sem einni heild. Leitin að hinum heilaga kaleik, hinu fullkomna kynfæri, lýkur þar sem hún hefst, við skoðun eigin spegilmyndar. Sigríður Dögg Arnardóttir http:l/www. siggadogg. is/
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.