Læknaneminn - 01.04.2010, Side 68
Heimsfaraldur inflúensu fer um heiminn nokkrum sinnum á
hverri öld. A síðustu öld gengu þrír heimsfaraldrar; spánska
veikin 1918 með inflúensu A(H1N1), Asíuinflúensan 1958
með inflúensu A(H2N2) og Hong Kong inflúensan með in-
flúensu A(H3N2). Heimsfaraldrarnir voru misalvarlegir, hæst
var dánartíðnin 1918 með um 40 - 50 milljónir dauðsfalla
á heimsvísu, en faraldrarnir 1957 og 1968 voru vægari með
1-3 milljón dauðsföll hvor. En það sem þessir faraldrar áttu
sameiginlegt voru seinni bylgjur sem fylgdu í kjölfarið og voru
alvarlegri en sú fyrsta.
Inflúensu A veiran er flokkuð eftir hemagglutin (HA) og
neuraminidasa (NA) mótefnavökum á yfirborði veirunnar.
Vitað er að veirur sem eru með HAl, HA2 eða HA3 mótefnavaka
og NAl eða NA2 mótefnavaka geta valdið sýkingum í
mönnum. I dýraríkinu valda mun fleiri stofnar sýkingum með
möguleika á sextán mismunandi HA mótefnavökum og níu
mismunandi NA mótefnavökum. Síðastliðin ár hafa komið
upp sýkingar í dýrum sem hafa borist í menn en ekki náð að
smitast á milli manna. Inflúensa A (H5N1) hefur um árabil
valdið sýkingum í fuglum með stöku sýkingum í mönnum sem
eru alvarlegar með háu dánarhlutfalli. Annað nýlegt dæmi er
inflúensa A(H7N7) sem greindist í fuglabúum í Hollandi 2003,
samkvæmt mótefnamælingum smitaðist um helmingur þeirra
einstaklinga sem voru í námunda við fuglana. Helstu einkennin
voru tárubólga en einn maður lést af völdum sýkingarinnar.
Á síðastliðnum áratug hafa stöku tilkynningar um inflúensu
A(H9N2) borist frá Hong Kong en þessi stofn er talinn
landlægur í öndum á þeim slóðum. Ekki er vitað hvort allar
veirur sem valda sýkingum í dýrum geti tekið breytingum og
borist milli manna sem er forsenda fyrir nýjum heimsfaraldri.
Síðastliðinnáratugjókstmjögviðbúnaðurgegnheimsfaraldri
inflúensu en langur tími var liðinn frá heimsfaraldrinum 1968.
Alþjóðaheilbrigðsmálastofnunin (WHO) gaf út sína fyrstu
viðbúnaðaráætlun gegn heimsfaraldri inflúensu árið 1999 og
hvatti þjóðir heims til að hefja gerð viðbúnaðaráætlunar.
Síðastliðin ár hefur sóttvarnalæknir lagt mikla vinnu í gerð
viðbragðsáætlunar gegn heimsfaraldri inflúensu í samvinnu
við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Viðbragðsáætlunin
sem er þverfagleg er umfangsmesta áætlun sem hefur verið
gerð hér á landi. Hún tekur á því hvernig halda skuli sam-
félaginu gangandi í alvarlegum faraldri auk þess sem fjallað
er um starfsemi heilbrigðisþjónustunnar og hugsað fyrir
nauðsynlegu birgðahaldi. Fyrsta viðbúnaðaráætlunin var
gefin út 2008 en hafa skal í huga að áætlunin þarf að vera
í stöðugri endurskoðun og þegar er komin þörf á uppfærslu
hennar hérlendis.
Fyrstu tilkynningar um svínainflúensu A(H1N1) 2009 í
mönnum í Bandaríkjum Norður-Ameríku og Mexíkó bárust
í Apríl 2009 og greint var frá alvarlegum faraldri í Mexíkó
með háu dánarhlutfalli í áður frísku ungu fólki. Þann 27. apríl
2009 hækkaði Alþjóðaheilbrigðistofnunin viðbúnaðarstig
gegn heimsfaraldri inflúensu frá þriðja á fjórða stig og tveimur
dögum síðar frá fjórða á fimmta stig. Viðbúnaðarstigin eru sex
talsins og þegar sjötta stigi er lýst yfir er heimsfaraldur skollinn
á. Samtímis hvatti Alþjóðaheilbrigðistofnunin þjóðir heims
til að virkja viðbúnaðaráætlanir sínar gegn heimsfaraldri
inflúensu og vera vakandi gagnvart óvæntum hópsýkingum
inflúensulíkra einkenna og/eða alvarlegrar lungnabólgu.
Eftir að viðbúnarðarstig var hækkað, hófst undirbúnings-
vinna svo auka mætti vöktun á inflúensu. Inflúensa var gerð
tilkynningarskyld og komið var á rafrænum sjálfvirkum til-
kynningum á tilfellum inflúensu. Tilkynningarnar voru
byggðar á stöðluðum sjúkdómsgreiningum inflúensu sem
skráðar voru í Sögu sjúkraskrá. Þegar inflúensugreining
var skráð á sjúkling barst sóttvarnalækni staðlaðar grunn-
upplýsingar innan sólarhrings eftir að læknir staðfesti sam-
skiptin. Það var því hægt að fylgjast með aldri, kyni og búsetu
allra sem greindust með inflúensulík einkenni í rauntíma.
Upplýsingar um staðfest tilfelli bárust frá rannsóknastofu í
veirufræði á Landspítala.
í maí og júni bárust fáar tilkynningar um inflúensulík
einkenni en um miðjan júlí fór þeim nokkuð fjölgandi. Mest
var þó aukningin í október þegar hlutfall grunnskólabarna
jókst mikið, en í ágúst og september voru flestir þeirra sem
veiktust á aldrinum 15-29 ára. í nóvember fór tilfellum
fækkandi aftur og í desember bárust fáar tilkynningar um
tilfelli inflúensulíkra einkenna.
Fyrsta staðfesta tilfelli inflúensu A(H1N1) 2009 hérlendis
greindist um miðjan maí. I júní var sýkingin staðfest hjá
þremur en um miðjan júlí fór tilfellum fjölgandi. Um miðjan
ágúst var ljóst að inflúensusmitið var viðvarandi í samfélaginu
svo sóttvarnalæknir mæltist til að dregið yrði úr sýnatöku.
Sýni skyldi nú einungis taka við alvarleg veikindi eða hjá fólki
með undirliggjandi áhættuþætti. í kjölfar þessara tilmæla
dró úr sýnatöku og fjölda tilfella með staðfesta inflúensu
A(H1N1) 2009 en jókst aftur verulega þegar tilkynningum
um inflúensulík einkenni fjölgaði í október. Samtímis hækkaði
hlutfall jákvæðra sýna sem send voru í öndunarfæragreiningu
á rannsóknarstofuna í veirufræði.
Tveir sjúklingar létust af völdum staðfestrar inflúensu
A(H1N1) 2009, en ekki varð vart við almenna aukningu
á dauðsföllum á seinni hluta ársins 2009. Um 180 manns
voru lagðir inn á sjúkrahús vegna staðfestrar inflúensu eða
inflúensulíkra einkenna og þar af lágu 16 manns á gjörgæslu.
Sóttvarnalæknir fór í víðtækar aðgerðir í samstarfi við
almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Gefin voru út vegg-
spjöld og bæklingar fyrir almenning með leiðbeiningum um
hvernig mætti forðast smit, heimasíðan www.influensa.is var