Læknaneminn - 01.04.2010, Síða 72
Ekkert slegið af þrátt fyrir kreppu.
Síðustu tvö ár hefur Félag læknanema (FL) verið rekið án
aðalstyrktaraðila og því hefur þurft endurskipulagningu á
fjárútlátum félagsins. Nú má segja að ákveðnu jafnvægi hafi
aftur verið náð. Allar nefndir hafa unnið hart að því að
lækka kostnað við viðburði og leita styrkja. Sú vinna hefur
skilað gríðarlegum árangri og gert okkur kleift að halda uppi
kröftugu félagslífi.
Fulltrúaráð hefur haldið utan um fjölda vísindaferða auk
Stelpu-/strákakvölds. Ein nýjung þetta árið eru Pub-quiz kvöld
sem fyllt hafa einstaka auða föstudaga. Nýnemaferð var farinn
í upphafi skólaársins og hópurinn hristur saman fyrir átökin.
Nýnemarnir voru síðan kynntir fyrir eldri nemum á vel sóttri
Spíritusvigslu. Jólaglögg læknanema var haldið í desember
sem lokahnútur haustannarinnar. Iþróttaviðburðir voru hefð-
bundnir með snóker- og fótboltamótum. Læknaleikarnir, þar
sem keppt er í fjölda jaðariþrótta, voru síðan haldnir í apríl.
Frœðsla á vegum félagsins.
Kennslu-ogfræðslumálanefndhefurhaldiðfjöldafræðslu-atburða
þetta skólaárið. Hjartahlustunarkennsla var haldin í samstarfi við
Vistor í október og fræðslufundur um svína-flensufaraldurinn í
samstarfi við GSK í nóvember. A vorönninni hefur verið málþing
um sérfræðinám. Þar voru helstu valmöguleikar kynntir og gaf
það læknanemum vonandi hug-mynd um hvert þeir munu vilja
leita menntunar og reynslu í framtíðinni. Læknanemadagurinn,
styrktur af Actavis, var haldinn í mars undir yfirskriftinni
„Hreyfing og næring“. Þar var fjöldi áhugaverðra fyrirlestra um
aðkomu lækna að þessu stóra málefni.
Ástráður hélt uppteknum hætti þetta árið með kynfræðslu
framhalds- og grunnskólanema um land allt. Sumarið fyrir
skólaárið fór mikil endurskipulagning fram á framkæmd
fræðslustarfsins, ásamt því að nýr og glæsilegur fyrirlestur
var búinn til. Ástráður fagnaði síðan 10 ára starfsafmæli sínu
sumardaginn fyrsta, 22.apríl.
Norrœnt samstarf
Alþjóðanefnd FL hélt í haust hina víðfrægu FINO ráðstefnu
að Úlfljótsvatni. 65 norrænir læknanemar sóttu ráðstefnuna
þar sem þemað var Blátt Gull, þ.e. baráttuna um hreint vatn.
Á sama tíma hittust formenn norrænu læknanemafélaganna
í Reykjavík. Þar var rætt um möguleika læknanema á að taka
kandidatsárið utan námslands auk þess sem fulltrúar deildu
reynslu sinni af niðurskurðartímum.
Glœsileg árshátið.
Árshátíð FL var haldin á Hótel Sögu þann 13.mars síðastliðinn.
Óhætt er að segja að árshátíðin hafi verið hin glæsijegasta
og heppnast vel í alla staði. Skemmtiatriði áranna og sprell
ó.árs nema undir borðhaldinu héldu athygli fólks á milli þess
sem verðlaun voru veitt. Að venju lauk kvöldinu síðan með
nokkrum danssporum en plötusnúður kvöldsins hélt uppi
stemmningunni fram á nótt.
Þrenn verðlaun voru veitt þetta árið. Unglæknaverðlaun,
heiðursverðlaun og kennsluverðlaun. Guðný Stella Guðna-
dóttir deildarlæknir á LSH hlaut unglæknaverðlaun. Hefur
hún verið mjög virk í kennslu á deildum og vöktum auk þess
að hafa haldið utan um stutt ACSL námskeið fyrir 5.árs nema.